19. júní


19. júní - 19.06.1978, Blaðsíða 45

19. júní - 19.06.1978, Blaðsíða 45
látin fylgja móðurinni. Það skal tekið fram, að forræði barns skal vera óskipt hjá öðru hvoru for- eldrinu. Það foreldri, sem ekki fær forræði barns, hefur nú lög- bundinn umgengnisrétt við það. Það gildir svipað með það og for- ræði, að ef foreldrar eru ásáttir um hvernig skipa skuli um- gengnisrétti þess foreldris við barn, sem ekki fær forræði þess, þá skal dómsmálaráðuneytið staðfesta þá skipan, nema það komi í bága við þarfir barnsins. Ef foreldra greinir á um, hvernig skipa skuli þessum umgengnis- rétti, þá sker ráðuneytið einnig úr og leitar umsagnar barnavernd- arnefndar, ef þörf þykir. Nú munu flestir sérfróðir menn sam- mála um, að börnum sé mikil þörf á að halda sambandi við báða foreldra, þótt þau séu skilin, en því miður er það staðreynd, að oft reynir það hjóna, sem hefur forræði barns að torvelda það, að hitt foreldrið geti umgengist barnið. Hægt er að knýja það foreldri, sem torveldar þannig umgengni hins foreldrisins við barnið, til að láta af þessum tálmunum með dagssektum, sem nema frá 50—500 krónum á dag. Samningi eða úrskurði um for- ræði barna má breyta með dómi eða ákvörðun dómsmálaráðu- neytisins, ef það telst réttmætt vegna breyttra aðstæðna og með tilliti til þarfa barnsins. Hverjar virðast þér vera helstu skilnaðarástæður fólks, hvað ber fólk fyrir sig? Eftir minni reynslu sýnist mér, að ástæðurnar séu aðallega þrjár. I fyrsta lagi ósamlyndi, í öðru lagi drykkjuskapur og í þriðja lagi hjúskaparbrot eða framhjáhald. Þessar þrjár ástæður blandast að sjálfsögðu oft saman og stundum er jafnvel öllu þessu um að kenna. Það, sem komið hefur mér einna mest á óvart í þessu starfi, er það, hve algengt það virðist vera, að konur á miðjum aldri sæki um skilnað, konur, sem eru kannske búnar að vera í hjónabandi í 20—30 ár eða lengur. Mér finnst það athyglisvert, að nokkrar þessara kvenna hafa sagt sem svo, að þær hafi látið sig hafa það að vera í þessu hjónabandi allan þennan tíma, af því að þær hafi verið meira eða minna tilneyddar vegna barnanna og vegna þess, að þær hafi ekki séð fram á það, að þær gætu framfleytt þeim einar. Nú á síðustu árum hafi þær farið út á vinnumarkaðinn og upp- götvað það, að þeirra vinna var lika peninga virði, og séð, að þær ættu möguleika á því að geta séð fyrir sér og börnunum sjálfar og þannig losnað út úr hjónabandi, sem hafði kannske verið þeim um langan tíma lítt bærilegt. Eg er þess fullviss, að það er jafnréttis- hreyfing síðasta áratugar, sem hefur ýtt við þessum konum og fengið þær til þess að fara að hugsa um stöðu sína. Telur þú, að fólk skýri að jafnaði frá hinum raunverulegu ástæðum eða ber það e-ð annað fyrir sig? Já, ég tel, að fólk segi almennt sannleikann um skilnaðarorsakir, og það jafnvel svo, að oft þarf lögfræðingurinn að vera í hlut- verki félagsráðgjafa eða sálfræð- ings. Þegar kona er komin til lög- fræðings og er ákveðin í því að sækja um skilnað, er það ef til vill fyrsta tækifærið, sem hún hefur haft í langan tíma til þess að létta á hjarta sínu. Finnst þér, að fólki sé almennt nægilega kunnugt um réttindi sín og skyldur í hjúskap og/eða við slit hans? Eg hef áður komið inn á þann misskilning, sem oft ríkir við hjúskaparslit. Það kom mér mjög á óvart, þegar ég var að byrja í þessu starfi hvað konur, og sér- staklega eldri konur, voru illa að sér um fjárhagsstöðu búsins. Þær gerðu sér að vísu grein fyrir eign- um búsins yfirleitt, en þegar kom að skuldunum var oft komið að tómum kofanum. Margar konur virðast ekki hafa hugmynd um hve búið skuldar mikið og það, sem er kannske ennþá verra, að þær virðast stundum ekki vilja vita það. Því miður liggur við, að maður fái þá hugmynd, að margar þessara kvenna hafi verið ósköp ánægðar með það að þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur af skuldum. Þær hafa fengið pen- inga fyrir daglegum nauðsynjum, kannske verið rétt smáupphæð á hverjum morgni til þess að kaupa í matinn fyrir, eða fyrir úlpu eða gallabuxum á börnin, en þær hafi verið ósköp sáttar við það að þurfa ekki að vita af neinum skuldum eða fjárfestingum bús- ins. Þar við bætist, að margar konur hafa ekki hugmynd um hvaða tekjur eiginmaðurinn hef- ur. I lögum um réttindi og skyld- ur hjóna segir, að hjónum sé skylt að segja hvort öðru um efnahag sinn, svo að ákvörðun verði tekin um framfærsluskyldur þeirra. Þegar ég hef spurt þessar konur, hvernig í ósköpunum standi á því, að þær viti ekki hvaða tekjur maður þeirra hefur, þá hafa þær venjulega svarað, „ja, hann segir, að mér komi það ekkert við“. En ég vil taka það skýrt fram, að þetta er miklu sjaldgæfara meðal yngri kvenna. Þær virðast yfir- leitt vera mun betur að sér um fjárhagslega stöðu búsins. Telurðu að sáttaumleitunum þeim sem lögin kveða á um sé framfylgt í raun? Telurðu að þær séu vænlegar til árangurs? Lögum samkvæmt skal, áður en skilnaðarleyfi er veitt, leita sátta með hjónum, og er það þá gert, annaðhvort með sáttanefnd eða þá að prestur, eða löggiltur forstöðumaður trúfélags, leitar sátta. Sárasjaldan reynir á sátta- umleitan fyrir sáttanefnd, lang- flestir leita til prests í þessum til- gangi. Eg held, að það sé ákaflega 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.