19. júní


19. júní - 19.06.1985, Side 48

19. júní - 19.06.1985, Side 48
Laun kvenna lækka eftir því sem þeim fjölgar á vinnumarkaðinum Hefur jafnréttis- baráttan haft áhrif á kjör kvenna í láglaunastéttum, og hefur eitthvaö breyst sídustu tíu árin, á kvennaáratugnum? Til þess að fá svör við þessum spurningum og ýmsum öðrum fengum við fjórar konur úr jafnmörgum stéttarfélögum til hringborðsumræðna. Konurnar eru Aðalheiður Fransdóttir í Framsókn, Anna Sigurðardóttir í Félagi starfsfólks í veitingahúsum, Guðlaug Pétursdóttir í Sókn og Hildur Kjartansdóttir í Iðju. Hér á eftir fá lesendur að kynnast viðhorfum kvennanna, sem ekki voru mættar til leiks sem fulltrúar viðkom- andi félaga heldur einstaklingar innan félaganna, með eigin skoðanir og sína persónulegu reynslu. -Hafa orðið einhverjar breytingar á kjörum ykkar á undanförnum misser- um? Guðlaug: Ég get ekki fundið það. Mér finnst orðið miklu erfiðara að lifa á tekjunum í dag en mér fannst fyrir nokkrum árum þrátt fyrir það að nú erum við bara þrjú í heimili en vorum 7-8 áður. Sókn hefur dregist aftur úr í launum. Við fengum nokkuð góða samninga 1982, þá bestu sem við höfum fengið, en síðustu samningar voru lélegir. Og svo kom gengisfellingin strax og reif af okkur meira en það sem við fengum. Anna: Ég hef aldrei fundið eins mikla ólgu í konunum eins og núna eftir seinustu samninga. Þær hafa verið óánægðar áður. Nú eru þær raunveru- lega óánægðar, mjög sárar og reiðar, og þá sérstaklega með kaupið. Við höfum oft borið okkur saman við Sókn, og nú Aðalheiður Fransdóttir vinnur hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur. „Ég hef unnið þar í þrjú ár, og var bónustrúnaðarkona um tíma, en er það ekki lengur“ erum við svo sannarlega á botninum. Þar við bætist að alltaf er komið leiðin- legar fram við lægstlaunaða fólkið. Því erfiðari og leiðinlegri störf sem fólk vinnur, því verr er komið fram við það. -Eru konur í miklum meirihluta í þínu félagi? Anna: Já. Auk kvennanna eru aðeins dyraverðir og birgðaverðir í félaginu en dyraverðirnir eru fáir í fullu starfi. -Nú er formaðurinn karlmaður. Væri ekki eðlilegra að hann væri kona? Anna: Jú, en þetta er félag sem í er ófaglært fólk og konurnar þykjast ekki treysta sér í formennskuna. Svo held ég líka að konur sem vinna svona vinnu hafi ekki næga trú á sjálfum sér og ekk- ert álit á öðrum konum. Aðalheiður: Ástandið hefur ekki breyst til hins betra hjá okkur heldur. Við sátum eftir í febrúarsamningunum í fyrra. Til þess að ná lægstu tekjum þurfum við að gefa fyrstu 36 klukku- stundirnar í hverjum mánuði af bón- usnum til að ná dagvinnutekjutrygging- unni, sem er algjörlega fáránlegt. Við förum alltaf niður á við í launurn. í samningunum í haust náðum við heldur ekki lægstu launum, ekki fyrr en við erum búnar að vinna í eitt ár. í okkar samningum er alltaf miðað við bónus. Hann er tekinn ofan á launin okkar. Þetta er ekkert nema aukaálag, sem hver og einn leggur á sig. -Hvað finnst þér um bónusinn? Aðalheiöur: Það á að afnema hann. Annars er það upp og ofan hvað fólki finnst um það. Stelpurnar sem koma inn um stundarsakir og eru hraustar og duglegar vilja ekki missa bónusinn, því með honum geta þær náð verulega góðu kaupi. En ég held að viðhorfið breytist, þegar þær eru búnar að vinna í 3-4 ár. Við höfum ekkert val, við verðum að vera í bónus hvort sem við viljum eða ekki. Aftur á móti geta atvinnurekcndur tekið bónusinn af þegar þeim dettur í hug; T.d. ef lítið er um hráefni, má taka bónusinn af sein- asta daginn, sent eitthvað er að gera. Við verðum þá kannski að fara í að þrífa eða eitthvað annað álíka, því þegar fólk ræður sig í frystihús ræður það sig í hvaða starf sem er. -En af hverju voru svona lélegir samningar undirritaðir? Aðalheiður: Ég get ekki svarað því. Ég skil það ekki enn. Það mættu reyndar mjög fáar konur frá okkur á fundinn, og það voru því að stórum hluta til ræstingakonur sem samþykktu Anna Sigurðardóttir vinnur á Loftleiðahótelinu. Hún er í Félagi starfsfólks í veitinga- húsum. Anna hefur verið í samninganefnd í nokkrum samningum. „Ég er búin að vinna úti í sextán ár, og hef allt- af unnið á Loftleiðahótelinu“ \ 48

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.