19. júní


19. júní - 19.06.1985, Page 49

19. júní - 19.06.1985, Page 49
Viö hringboröiö: Guölaug Pétursdóttir, Anna Sigurðardóttir, Aðalheiður Fransdóttir og Hildur Kjartansdóttir. (Ljósm. Fríða Björnsdóttir). samninginn. Þeirra kjör eru svo sem ekki góð heldur. Annars er það nú svo að þegar konur eru óánægðar tala þær og pukra hver í sínu horni. Svo þegar á að fara að gera eitthvað fyrir þær, halda fundi þar sem þær geta talað og sagt sitt álit, þá mæta þær ekki. Ég held þetta sé svona með flestallar konur. -Líta þær ekki á fiskvinnuna sem framtíðarstarf? Aöalheiður: Ég held að fiskvinna sé starf sem fólk fer í af því það þarf að Guðlaug Pétursdóttir vinnur á Kópavogshælinu. Hún er í Sókn, er trúnaðarmaður á vinnustað og hefur verið í samn- inganefnd. Guðlaug hefur unnið á Kópavogshælinu í tíu ár. „Eg byrjaði á kvennaárinu 1975 og eiginlega vegna þess að systir mín var að gera grín að mér og spurði, hvort maðurinn minn væri enn að sjá fyrir mér. Eg varð svo reið, að ég fékk mér vinnu daginn eftir“ fara að vinna, er að leita sér að vinnu, og hefur ekki fundið það sem það ætlar sér. Það er alltaf hægt að fá vinnu í fiski, og á fiskvinnuna hefur verið litið sem þriðja flokks starf. Hildur: Kjörin hjá okkur hafa farið hraðversnandi síðustu tvö árin. Ég er sammála Aðalheiði og held að ástandið sé nokkuð svipað hjá okkur og fisk- vinnslukonunum. Við getum reyndar sagt upp bónusnum, og þá allar í einu. Það getur ekki bara ein og ein kona unnið í bónus á sama vinnustaðnum. Bónusinn er þrælavinna. Það er enginn ánægður með að vera í honum. Það er svo slítandi bæði andlega og líkamlega. Þetta er bara eini möguleikinn til þess að fá aðeins hærra kaup. Ég held því að það sé mjög erfitt að taka bónusinn af. Alla vega verða verkalýðsfélögin að taka sig mjög á áður en það er hægt. Ég held að það sé samstöðuleysið sem orsakar þetta ástand. Á þessa fundi, sem eru svo mikilvægir, þegar greiða þarf atkvæði um samning, mætir ekki nema fastaliðið, sem hefur mikinn áhuga. Guðlaug: Það er líka vegna þess að þeir sem reifa samningana gera það þannig að þeir rugla fólkið. Það veit ekki hvað það er að semja um. Aðalheiður: Það er svo með alla samninga að túlka má þá á tvo vegu. Hildur: Það væri hægt að fá upplýs- ingar, ef fólk leitaði eftir þeim. Hildur Kjartansdóttir vinnur í Sjóklæðagerðinni. „Ég er bónustrúnaðarmaður og hef unnið í Sjóklæðagerðinni í fimm ár. Ég er í stjórn Iðju, fé- lags verksmiðjufólks og auk þess í varastjórn Menningar og fræðslusambands alþýðu - MFA - og í stjórn Tónlistar- félags alþýðu“ 49

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.