19. júní


19. júní - 19.06.1985, Síða 57

19. júní - 19.06.1985, Síða 57
Bókmenntir sem allar komust í bæjarstjórn. Þórunn, Guðrún og Katrín sátu í bæjarstjórn í sex til átta ár og beittu sér einkum fyrir fátækramál- um, heilbrigðismálum og menntunarmálum auk margra annarra málefna. „Fánaberi íslenskra kvenna“ Björg C. Þorláksson, f. 1874, varði doktorsritgerð við Sorbonneháskóla í París 1926, fyrst fslenskra kvenna. En höfundur segir okkur, að hún hafi jafnframt verið fyrst Norður- landabúa doktor frá þeim skóla. Hún var um tveggja áratuga skeið samstarfsmaður manns síns, Sigfúsar Blöndal við Islensk- dönsku orðabókina, sem kom út 1920-24, og átti mikinn þatt í samningu hennar. Það var ekki fyrr en eftir útkomu bókarinnar, að Björggat hafið nám á nýjan leik, þá46ára að aldri, í sálar- oglífeðlisfræði. Aukþessliggja eftir hana þýðingar og greinar um margvís- leg efni, leikrit og Ijóð. Þá tók hún drjúgan þátt í kvenfrelsisbaráttunni. „Stofnandi Kvennaskólans í Reykjavík“, Þóra Melsteð, f. 1823 var brautryðjandi í skólamálum kvenna og er þáttur hennar í íslenskri menningarsögu merkur. Hún menntaðist í Damnörku og gerði sér grein fyrir menntunarleysi íslenskra kvenna og hófst því handa um að ráða bót á því. Þegar hún lét af skólastjórn 1906 höfðu um 1000 stúlkur notið kennslu í Kvennaskólanum, en skólastýran hafði ekki kosningarétt. „Mælskukraftur hennar var stórvcldi“ nefnir Björg þátt af Þorbjörgu Sveinsdóttur, ljósmóður, f. 1827. Hún ber með réttu nafnið fyrsta kvenréttindakonan. Hún hafði forgöngu um stonfun Hins íslenska kvenfé- lags 1894, sem hafði kvenréttindi að höfuð- markmiði og stóð fyrir undirskriftasöfnun- um þúsunda kvenna undir áskoranir til Alþingis um aukin réttindi kvenna. Hún var Ijósmóðir í Reykjavík í nær hálfa öld og hafði ómæld áhrif á sína samtíð. Það verður ekki um deilt, að konur höfðu pólitísk áhrif löngu áður en þær fengu kosningarétt. „Á bekk með skáldum“ fjallar um Guð- nýju Jónsdóttur frá Klömbrum, f. 1804. Ævi Guðnýjar var um flest afar frábrugðin ævi annarra kvenna í þessu riti. Þrátt fyrir stutta ævi lifir nafn hennar vegna ljóða hennar, en hún er eina konan sem Ijóð voru birt eftir í Fjölni. Ljóð hennar voru fyrst gefin út 150 árum eftir lát hennar. „Boðberi kærleikans“ var Ólafía Jóhannsdóttir, f. 1863, systurdóttir Þor- bjargar Sveinsdóttur og fósturdóttir. Starf hennar vó þungt í kvenfrelsisbaráttunni hcr á landi. Hún starfaði að bindindismálum og stofnaði Hvítabandið. Hún hafði veg og vanda af Ársriti Hins íslenska kvenfélags, var um tíma ritstjóri Æskunnar og Fram- sóknar. Starfaði erlendis mikinn hluta ævi sinnar. „Með gleði, festu og ljúflyndi“. Svo lýsir höfundur Ásthildi Thorsteinsson, f. 1857, konu Péturs J. Thorsteinsson á Bíldudal. Hún var sonardóttir Ástríðar Guðmunds- dóttur, sem fyrsti þáttur þessa rits fjallar um. Hún lét aldrei eignamissi né mikinn ástvina- missi buga sig. „Meira skáld en margir hyggja“ er Ólöf Sigurðardóttir á Hlöðum, f. 1857. Hún var lærð ljósmóðir en stundaði ljósmóðurstörf einungis í fá ár. Kunnust er hún af Ijóðum sínum og ritstörfum, en líka af áhuga á stjórnmálum og kvenfrelsismálum. Hún safnaði íslenskum jurtum og fékk verðlaun fyrir tóvinnu á iðnsýningum í Reykjavík og á Akureyri. „Islendingur og alheimsborgari“ er Thora Friðriksson, f. 1866, alin upp á menningar- heimili í Reykjavík, rak verslun í Reykjavík og „...opnaði löndum sínum dálítinn glugga að menningu, málefnum og siðum Mið-Ev- rópubúa, einkum Frakka, sem voru henni hjartfólgnir." (325). Hún var ein af fyrstu konum, sem kenndu við Miðbæjarskólann, samdi kennslubækur og starfrækti skóla fyrir stúlkur í Reykjavík. Hún var óvenju víð- förul kona, jafnvel á okkar tíma mæli- kvarða. „Reit þátt í Reykjavíkursögu“ fjallar um Guðrúnu Borgfjörð, f. 1856. Hún hefur með Minningum sínum reist sér óbrotgjarnan minnisvarða og svo vel segir hún frá, að öllum, sem þær lesa verða þær ógleymanleg- ar. Þá er bók Guðrúnar merk heimild um Reykjavík fram um 1890. „Leiklistin var landnám hennar“ Stefanfu Guðmundsdóttur, leikkonu, f. 1876, sem nefnd hefur verið „hin ókrýnda drottning leiklistarinnar hér á landi.“ Björg bendir á sambandið milli góðtemplarareglunnar og leiklitstarinnar í Reykjavík, og því má bæta við, að tengsl voru milli kvenréttindahreyf- ingarinnar og leikstarfseminnar í bænum. Konurnar, sem Björg fjallar um, voru vel þekktar í sinni samtíð. Til marks um það má nefna, að í uppsláttarritinu Hver er maður- inn? (1944) er tólf þeirra að finna, og má það teljast góður árangur þegar þess er gætt hve óvíða kvenna frá fyrri tíð er getið í slíkum ritum. Björg ritar gott mál og litríkt. Að útliti og öllum frágangi er bókin afar vönduð og veg- lega úr garði gerð. Hér er á ferðinni bók, sem áerindi til allra, karla jafntsem kvenna. Hún vekur fjöldann allan af spurningum um þessar konur, sem margar ruddu brautina fyrir okkur og hlýtur að vera hvatning til að afla frekari vitneskju um konur fyrri tíma og lífskjör þeirra. Mættum við fá meira að heyra. 57
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.