19. júní


19. júní - 19.06.1986, Síða 50

19. júní - 19.06.1986, Síða 50
Á fjórða ár er liðið frá því Samtök um Kvennaathvarf hófu starfrækslu neyð- arathvarfs, en Kvennaathvarfið í Reykjavík var opnað 6. desember 1982. Margar konur hafa leitað þangað með börn sín og hafa sumar þeirra verið virkar í starfsemi athvarfs- ins eftir að dvöl þeirra lauk. Sífcllt eykst að konur sæki til athvarfsins. Oþarft er að rökstyðja að eitt hús til að anna þessu starfi dugar engan veg- inn til að fullnægja þeirri gífurlegu þörf sem skapast af því að í athvarfinu dvelja konur úr nálægum sveitarfé- lögum og reyndar af landinu öllu. Um tíma var reyndar rekið annað kvenna- athvarf á Akureyri en það er búið að loka því. Til þess að kynna lesendum 19.júní starfsemi athvarfsins, helstu vandamál og skipulag samtaka um kvennaat- hvarf, fór undirrituð þess á leit við Elísabetu Gunnarsdóttur að hún svar- aði spurningum er lúta að neyðarat- hvarfi, og tók hún því vel. Elísabet hefur starfað á vegum samtakanna frá stofnun þcirra. - Er vandinn jafn dulinn og var? Já, hann er það, en ofbeldi á heimil- um hefur verið dregið fram í dags- 50 Elísabet Gunnarsdóttir ljósið og tilvist athvarfsins getur stundum virkað sem hemill á menn. — Er það ekki rétt að meirihluti sam- býlis- og eiginmanna eru ódrukknir þegar þeir beita ofbeldi? Jú, ofbeldi gegn konum á sjaldnast rætur að rekja til áfengisneyslu, þar ber okkar tölum saman við skýrslur kvennathvarfa í nágrannalöndunum. I meira en helmingi lilfella hefur ekki verið um áfengi eða aðra vímugjafa að ræða. Á síðastliðnu ári kvörtuðu þær konur sem til okkar komu meira undan því að um áfengisvandamál væri að ræða, hver sem skýringin á því kann að vera. Konur á öllum aldri - A hvaða aldri eru þœr konur sem leita til athvarfsins? Þær eru á öllum aldri, frá því um og innan við tvítugt og þær elstu yfir sjötugt. Meðalaldurinn hefur lækkað nokkuð, fyrst var meira um að rosknar konur kæmu til okkar og höfðu þá beðið eftir kvennaathvarfi jafnvel ára- tugum saman. Núna eru um 33% á aldrinum 26-35 ára og 36% 36-50 ára. Hvernig erskiptingin milli líkamlegs og andlegs ofbeldis? Líkamsmeiðingar eru varla án and- legs ofbeldis. Rúmlega 40% kvenn- anna sem koma í athvarfið eru með áverka en átta af hverjum tíu gefa upp bæði andlegt og líkamlegt ofbeldi sem ástæðu fyrir komu sinni.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.