19. júní


19. júní - 19.06.1986, Page 69

19. júní - 19.06.1986, Page 69
Bændur og dýralæknar slógu sanian í „bás“ og komu konur daglcga austan úr sveitum til að kvnna bústörfin. Salómc Þorkclsdóttir og Svcrrir Hcrniannsson á góðri stund. Aö morgni 24. október 1985 opnuðu konur sýningu á störfum sínum og kjörum í húsnæði Seðlabanka íslands við Arnarhól. Yfir 70 stéttar- ogfagfélögsýndu þar í verki, máli og myndum hversu mikil og fjölbreytt atvinnuþátttaka kvenna er orðin og um leiö hversu ótrúlega lítið þær bera úr býtum. Fjöldi félaga og baráttu- samtaka kvenna tók einnig þátt í sýningunni. Margir tugir kvenna unnu að undirbúningi Kvennasmiðjunnar og á rúmri viku var óinnréttuðu húsnæðinu breytt í blómlegt og lifandi torg undir öruggri forystu Ragnheiðar Harvey framkvæmdastjóra. Og viti menn-það mynduðust biðraðir langt út á Arnarhólinn! Um 18 þúsund manns höfðu heimsótt Kvennasmiðjunna þegar henni var lokað að kvöldi 31. október, þeirra á meðal fjöldi skólanema sem komu þar í starfs- kynningu. Hver dagur var helgaður ákveðnum stéttum með fræðslu og skemmtan og listamenn lögðu fram drjúgan skerf til skemmtidagskrársem haldin var á sviöinu hvert kvöld og tvisvar á dag um helgina. Það var ’85-nefndin sem stóð fyrir Kvennasmiðjunni en undirbúningshópinn skipuðu: Anni G. Haugen, Álfheiður Ingadóttir, Arndís Steinþórsdóttir, Ingi- björg Sólrún Gísladóttir, Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir og Þórunn Gestsdóttir. Sjónvarpið lét gera 30 mínútna heimildarmynd um Kvennasmiðjuna og önn- uöust Sonja B. Jónsdóttir, MaríannaFriðjónsdóttirogBaldurHrafnkell Jónsson gerð hennar. Þá gáfu blaða- og bókagerðarmenn út dagblað á hverjum sýningar- degi. Þessar ágætu heimildarmyndir sýna vel þá samstöðu og samvinnu sem Kvennasmiðjan útheimti og um leið að íslenskar konur skortir ekki þor þegar þær vilja sýna hvað þær geta! Myndir og texti: Álfheiður Ingadóttir 69

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.