Fréttablaðið - 26.03.2011, Side 34

Fréttablaðið - 26.03.2011, Side 34
● lh hestar 26. MARS 2011 LAUGARDAGUR2 ● ÁRLEGUR VIÐBURÐUR HÉÐAN Í FRÁ „Reykjavíkurborg styrkir verkefnið Hestadagar í Reykjavík til næstu þriggja ára ásamt Ice- landair,“ segir Einar Karlsson, verkefnisstjóri ferða- mála hjá Höfuðborgarstofu. „Og við greiðum götu þessa viðburðar á allan hátt eins vel og við getum.“ Einar segir að meiningin sé að Hestadagar verði árlegur viðburður héðan í frá en Landssamband hestamannafélaga sér um framkvæmdina og alla skipulagningu. Fer ekki mannlíf í miðbænum á annan endann ef allt fyllist af hestum? „Það held ég nú ekki þar sem viðburðirnir fara flestir fram á svæðum þeirra sex hestamannafélaga sem taka þátt. En Hestadagarnir munu áreiðanlega setja sterkan svip á bæjarlífið,“ segir Einar. „Miðbærinn er reyndar þegar farinn að litast af Hestadög- unum því um síðustu helgi voru Íshestar með hestateymingu á Ingólfs- torgi og í dag kemur Íslenski hesturinn með hesta á torgið milli kl. 14 og 15 og býður borgarbörnum á öllum aldri að stíga á bak, ókeypis að sjálfsögðu.“ Einar Karlsson, verkefnisstjóri markaðsmála hjá Höfuðborgarstofu. ● HESTADAGAR VEKJA ATHYGLI ERLENDIS „Inspired By Iceland kemur að Hestadögum í Reykjavík ásamt samstarfsaðilum þess verkefnis,“ segir Sunna Þórðardóttir, verkefnisstjóri hjá Íslandsstofu, spurð um aðkomu Íslandsstofu að Hestadögum. „Við sjáum um að kynna verkefnið er- lendis meðal annars með því að draga að blaða- menn til að fjalla um viðburðinn og með því að fjalla um Hestadagana og ýmislegt tengt íslenska hestin- um og hestamennsku almennt á samfélagsmiðlum, til að mynda Facebook.“ Sunna segir Hestadagana vekja töluverða athygli er- lendis og að hingað muni koma blaðamenn víða að til þess að fylgjast með þeim. „Okkar verkefni er að ná í og hafa umsjón með þeim erlendu blaðamönnum sem hingað koma og sjá um að þeir hafi greiðan aðgang að viðburðinum, auk þess að kynna fyrir þeim hvað Ísland og Reykjavíkurborg hafa upp á að bjóða sem áfangastaðir fyrir ferðamenn,“ segir Sunna. „Það koma blaðamenn frá Bandaríkjunum, Bretlandi, Norðurlöndunum og Þýskalandi og það er okkur kappsmál að Hestadagarnir fái jákvæða umfjöllun sem víðast.“ Sunna Þórðardótt- ir verkefnisstjóri hjá Íslandsstofu. „Við vonum að hestadagarnir geti orðið að hefð og hugsum okkur þá ekki ósvipaða Airwaves-hátíð- inni sem tók nokkur ár að festa í sessi,“ segir Hildur Ómarsdóttir, forstöðumaður sölu- og markaðssviðs Icelandair hótela. Sú hótelkeðja, ásamt Icelandair og Iceland Travel, er í samstarfi við LH og borgina um hestahátíðina sem fram undan er. „Til að efla ferðaþjónustu á Íslandi yfir vetr- artímann er mikilvægt að auka úrval viðburða sem höfða til ólíkra markhópa,“ segir Hildur. Hún kveðst vita að íslenski hesturinn sé þekktur víða er- lendis og telur hestahátíð eins og þessa kjörna til að laða áhugamenn um hestamennsku hingað til lands. „Við sem störfum hjá fyrirtækjum í eigu Ice- landair Group fögnum þessu framtaki hestamanna og nýtum að sjálfsögðu viðburðinn í markaðssetn- ingu okkar á landinu og þeirri þjónustu sem við bjóðum upp á,“ segir Hildur. „Það tekur vissulega einhvern tíma en þátttaka í hátíðinni nú lofar góðu.“ Bæði Hilton Reykjavík Nordica og Icelandair Hótel Loftleiðir eru fullbókuð dagana sem hátíðin stendur. Hildur segir hátíðina kynnta hótelgestum með margvíslegum hætti. Ekki ósvipað Airwaves-hátíð „Mikilvægt er að auka afþreyingu og úrval viðburða sem höfða til ólíkra markhópa,“ segir Hildur. MYND/GVA Mikið verður um að vera alla Hestadagana en þeir ná hámarki á laugardaginn, 2. apríl. Þá verður skrúðreið upp Laugaveginn og fjölskylduskemmtun í Laugardalnum. „Hestadagar hafa ekki verið haldnir áður í miðborginni með þessum hætti, þó að auðvitað hafi verið haldnar sýningar víða. Þeir verða skemmtilegir, ekki bara fyrir keppnisfólk heldur alla vel- unnara íslenska hestsins. Til dæmis fær fjölskyldufólk heil- mikið við að vera,“ segir Oddrún Ýr Sigurðardóttir skrifstofustjóri hjá Landssambandi hestamanna- félaga. Eitt af hennar hlutverk- um hefur verið að vinna að undir- búningi hátíðarinnar, ásamt sam- starfsaðilum sem að henni standa. Dagskrá Hestadaganna er fjöl- breytt og ætti að höfða til flestra að sögn Oddrúnar. „Helgin núna byrjar með Orrasýningu í dag og Lífstöltinu, kvennatölti Harðar í Mosfellsbæ, til styrktar Kvenna- deild Landspítalans, á morgun,“ byrjar hún upptalningu. Hún nefn- ir líka ferðir austur fyrir fjall og á Hvanneyri, fagsýningu Félags tamningamanna og sölusýningu í reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ, fjör í Hafnarfirði á föstudag á bílaplani Fjarðarkaupa og þá um kvöldið stórsýningu sem er stíluð inn á fjölskyldufólk í Reiðhöllinni í Víði- dal. Þar kostar 1.000 krónur inn og er frítt fyrir 13 ára og yngri. „Laugardagurinn er svo heil hátíð,“ segir Oddrún og bendir á að alger nýlunda sé að farin sé hópreið upp Laugaveginn á hest- um. „Þar verða um tvö hundruð hross. Fremst ríður kona í söðli, íklædd skautbúningi, aftar verð- ur póstlest og hestamannafélögin munu bera sína félagsfána. Þetta verður tilkomumikið.“ En hvernig býst hún við að hestarnir kunni við sig á helstu verslunargötu borgar- innar? „Hestar eru hópdýr og hafa stuðning hver af öðrum í svona reið. Auðvitað verður þetta skrít- ið fyrir þá, en þessir hestar eru nú ýmsu vanir.“ Hópreiðin endar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum og þar verð- ur fjörug dagskrá frá klukkan 13.30 til 16. Frítt er inn í garðinn. Laugardagurinn endar á glæsi- legri sýningu á ísnum í Skauta- höllinni í Laugardal. „Þarna eru bara glæsilegustu hestarnir okkar og umgjörðin er flott,“ lofar Odd- rún. „Rjóminn af íslenskri hesta- mennsku. Allir skulu mæta.“ - gun Skrautreið tvö hundruð hesta upp Laugaveginn „Fremst ríður kona í söðli, íklædd skautbúningi, aftar verður póstlest. Þetta verður tilkomumikið.“ Þannig lýsir Oddrún hópreið- inni upp Laugaveg. MYND/GVA Útgefandi: Landsamband hestamannafélaga | Heimilisfang: Íþróttamiðstöðin í Laugardal | Ritstjóri og ábyrgðar- maður: Oddrún Ýr Sigurðardóttir | Vefsíða: www.hestadagar.is | Sími: 514 4030 Eina hestaleigan í Reykjavík Hestaleiga – Reiðskóli - Hestaferðir www.islenskihesturinn.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.