Íslendingur - 04.06.1965, Side 2
RITSTJORI:
HREI9AR JONSSON
Valur-Akureyri 4:2
ÞAR SEM allir eru búnir að
lesa um gang leiksins og úrslit,
ætla ég aðeins að skrifa um Ak-
ureyrarliðið í heild, og einstaka
leikmenn þess. Það er óhætt að
segja að meirihluti áhorfenda
voru hliðhollir Akureyringum,
en urðu fyrir vonbrigðum með
leik þeirra. Einstakir leikmenn
eru ágætir, hafa góða knattmeð
ferð og úthald, en samvinna og
samspil ekki nægilegt. Betri
hluti liðsins var framlínan að
þessu sinni, þó mörkin væru að
eins tvö. Akureyringarnir áttu
mun meira í leiknum fyrri hálf
ieikinn, utan tíu fyrstu mínút-
urnar. í þessum leikkafla áttu
þeir ágætar sóknarlotur, með
laglegu samspili, sem framverð-
irnir byggðu upp, enda réðu þeir
miðhluta vallarins. Mörg þess-
ara upphlaupa enduðu með all
góðum skotum, sem oftast voru
þó af of löngu færi, enda varin
auðveldlega, eða fóru fram hjá.
Það var ánægjulegt að sjá dreng
ina reyna að skjóta, því það hef
ur oft háð þeim. Þó voru þeir
oft fulllengi að laga knöttinn fyr
ir sér. Utherjarnir léku of innar
lega þegar nær dró marki Vals
manna, og þjöppuðu því vörn
mótherjanna saman í stað þess
að sundra henni.
Páll átti sæmilegan leik, en
mætti reyna að skjóta meira.
Skúli var bezti maður framlín
unnar, vann vel en einlék full
mikið. Steingrímur virðist í
VALUR SIGRAR ÍBA
MEÐ 4:2
AKUREYRINGAR léku annan
leik sinn í 1. deild sl. sunnudag,
í Reykjavík og þá við Val. Leik
ar fóru á þá leið að Valur sigr-
aði með fjórum mörkum gegn
tveim. Mörk Akureyringa skor
aði Skúli Ágústsson. Að sögn
sunnanblaða lék lið ÍBA betri
knattspyrnu og var í sókn
mest allan leikinn, en lið Vals
var heppið með markskot og
gerði það gæfumuninn. Næsti
leikur Akureyringa í fyrstu
deild verður á annan • í Hvíta-
sunnu, og verður þá leikið hér á
Akureyri við lið Akranesinga.
Vormót í knattspyrnu
í KVÖLD (föstudag) fer fram
á íþróttavellinum leikur milli
KA og ÞÓRS í meistaraflokki.
Er hér um að ræða leik í Vor
móti knattspyrnumanna, hefst
leikurinn kl. 20,30.
góðrj; æfingu núna, duglegur og
fyíginn sér. -Sævar átti góðan
leik, en Valsteinn var mistæk-
ur og vantar mjög yfirvegun í
Íeik sínum. Ahnárs voru innherj
arnir full-lengi að koma vörn-
inni til aðstoðar. Vömin átti
heldur erfiðan-’dag þó voru fram
verðirnir báðir góðir og byggðu
öft vel upp, en sátu of oft eftir
frammi, þegar Valsmenn sneru
vörn í sókn. Jón var traustur að
vanda og byggði oft vel upp, en
má þó gjarnan hreinsa betur
þegar pressan er mikil. Bak-
verðirnir voru slakir, einkum
Ævar, sem réði ekki við hægri
útherja Vals. Sennilega hafa bak
verðirnir ekki fengið nógu mikla
aðstoð frá framvörðunum, og
því hafi aftasta vörnin opnazt
svo mikið, sem raun bar vitni.
Staðsetningar bakvarðanna
voru og mjög slæmar, en á því
má eflaust ráða bót með góðri
tilsögn. Fyrsta markið kom úr
aukaspyrnu frá vítateig. Vegg-
urinn var mjög illa myndaður,
og tvímælalaust eiga bakverðirn
ir að stilla sér upp á marklínu
út við stöng í þessu tilfelli. Ef
til vill hefði fyrsta markið ekki
komið með slíkri staðsetningu.
Hin mörkin þrjú komu öll á svip
aðan hátt, hröð upphlaup sem
sundruðu vörn Akureyringa,
og skorað af stuttu færi, svo
Samúel fékk ekki við neitt ráð
ið. Annars hefur Samúel góð
grip og ágætar markspyrnur, en
þarf að æfa staðsetningar bet-
ur. Það var sameiginlegt með
öllum leikmönnum okkar, að
spyrnur voru ónákvæmar. Þetta
lið ætti að geta náð langt með
meiri leikgleði, og baráttuvilja,
einnig þurfa þeir að æfa ein-
hverja ákveðna taktík, reyn-
andi væri að prófa 4—2—4 kerf
ið og sjá, hvernig það reynist.
H.
Vormót í fnálsíþróttum
VORMÓT frjálsíþróttamanna
fór fram sl. laugardag. Keppend
ur voru allmargir, eða 25. Var
keppt í 7 greinum og auk þess
í þrem aukagreinum kvenna.
Veður var mjög gott til keppni
en áhorfendur fáir. Árangur
var sæmilegur miðað við að
þetta er fyrsta mót sumarsins.
Nokkrir efnilegir ungir menn
komu fram, og má búast við að
þessir drengir nái góðum árangr
um í framtíðinni og verði lyfti-
stöng fyrir frjálsar íþróttir hér
á Akureýri.
ÚRSLIT:
100 m. lil. sek.
Haukur Ingibergsson HSÞ 12.0
Reynir Hjartarson Þór 12.0
Þóroddur Jóhannss. UMSE 12.0
Langstökk. ' meírar
Gestur Þorsteinsson UMSS 6,36
Fríðrik Friðbj'öms. UMSE 6.01
Ásgeir Sigurðsson ÍMA 5.81
400 m. hl,.. sek.
-Jóhann Jónsson UMSE 55,9
Baldvin Þóroddsson KA 56.4
Stefán Friðg.son UMSE 63.8
1500 m hl. mín.
Baldvin Þóroddsson KA 4.29,6
Vilhj. Björnsson UMSE 4.37,3
Friðrik Sigurðsson KA 4.57,3
Halldór Matthíasson KA 4.58,5
Friðrik og Halldór eru enn á
sveinaaldri.
Kúluvarp. metrar.
Þóroddur Jóhannss. UMSE 13.36
Ingvi Eiríksson UMSE 10.54
j Ásgeir Sigurðsson ÍMA 10.31
Hástökk. metrar.
Jóhann Jónson UMSE 1.70
Haukur Ingibergsson HSÞ 1.65
Haraldur Árnason UMSE 1.50
Kringlukast. metrar.
Þóroddur Jóhannss. UMSE 36.57
Gestur Þórsteinss. UMSS 27,63
Ingvi Eiríksson UMSE 26.86
Halldór Jónsson skák-
meistari Akureyrar
SKÁKÞINGI Akureyrar er ný-
lega lokið. Keppendur í meist-
araflokki voru 11 og urðu heltu
úrslit sem hér segir:
1—2 Halldór Jónsson 7 V2
1—2 Jón Björgvinsson 7 V2
3 Gunnl. Guðmundss. 7
4 Júlíus Bogason 6V2
5 Haraldur Ólafsson 6
6 Jón Ingimarsson 5
í unglingaflokki varð Svein-
björn Björnsson efstur. Halldór
og Jón kepptu síðan til úrslita
4 skákir og vann Halldór með
2 V2 gegn IV2 og hlaut því titil-
inn skákmeistari Akureyrar
1965.
LESENDUR!
Verzlið að öðru jöfnu við þá,
sem auglýsa í blaðinu
fsTENDTTF^
fæst í Hreyiilsbúð-
inni við Kalkofns-
veg, Reykjavík.
Frá vinstri: Frú kommandör Westergaard, borgarstjóri Geir Hall-
grímsson major Driveklcpp, menntamálaráðherrá Gylfi Þ. Gísla-
son og konunandör Westergaard.
Hjálpræðisherinn stofnar skólaheimili
í TILEFNI af 70 ára afmæli
Hjálpræðishersins á íslandi opn
aði hann skólaheimili að Bjargi
á Seltjarnarnesi, sem ætlað er
ungum stúlkum. Við vígsluat-
höfnina var boðið mörgum fyr-
irmönnum, en umdæmisstjóri
„Hersins" á Norðurlöndum var
viðstaddur og lýsti yfir opnun
heimilisins, en það á að rúma
11 stúlkur. Þar verður haldið
uppi fræðslu í bóklegum og verk
legum greinum.
SKÓLUM SLITIÐ Á HÚSAVÍK
GAGNFRÆÐASKÓLINN.
Húsavík 26. maí. Gagnfræða-
skóla Húsavíkur var slitið 15.
maí. Nemendur voru 109. Nýir
stundakennarar voru Ásta
Valdimarsdóttir og Hulda Sím-
onardóttir. Þessir gestir heim-
sóttu skólann og sýndu myndir:
Bjarni Bjarnason, Laugarvatni,
dr. Haukur Kristinsson og Sig-
urður P. Björnsson. Félagslíf
mikið og fjölbreytt. Skíðanám-
skeið var haldið, svo og dans-
námskeið. Árshátíð var í byrj-
un marz. Nemendur Héraðs-
skólans að Laugum komu í
heimsókn ásamt kennurum á
MÁLVERKASÝNING
Á HÚSAVÍK
Húsavík 26. maí. Benedikt Jóns-
son hefur undanfarna daga haft
hér niálverkasýningu í skóla-
! húsinu, og er aðstaða þar hin
bezta. Á sýningunni eru yfir 60
j myndir, stórar og smáar, og
fjölbreytni mikil. Þetta er 4.
sýning Benedikts og án efa sú
athyglisverðasta. Áður hefur
hann sýnt hér, svo og á Akur-
eyri og í Reykjavík.
Mesta athygli hafa vakið vatns
litamyndirnar, og seldust þær
allar fyrstu dagana, og þegar
þetta er skrifað, er vel helming-
ur myndanna seldar. — Aðsókn
hefur verið mjög mikil, komið
hefur fólk úr nærliggjandi
sveitum, og margt unglinga,
sem sagt er að hafi öðru að
sinna nú til dags.
Sýning Benedikts er á sinn
hátt listrænn viðburður og
kærkomin tilbreyting í bæjar-
hfinu, sem áhorfendur hafa
kunaað vel að meta. Joðge.
ofanverðum vetri. — Sigurður
Guðmundsson, sjómaður, Húsa-
vík, færði skólanum að gjöf 40
tegundir eggja, til notkunar við
kennslu. Þá eignaðist skólinn
gamlar Ijósmyndir, teknar á
Húsavík á öndverðri þessari
öld.
Sýning á handavinnu og
teikningum nemenda var sunnu
daginn 9. maí.
Ellefu nemendur þreyta lands
próf. — Hæstu einkunn á ung-
lingaprófi hlaut Páll Þorgeirs-
son, 8,75 en hæstu einkunn í
skólanum hlaut Sigurgeir Jóns-
son, 1. bekk, 9,17.
N. k. haust eru 20 ár liðin
frá því starf Gagnfræðaskóla
Húsavíkur hófst. Áður hafði
um langt árabil verið starfrækt-
ur unglingaskóli, kenndur við
Benedikt Björnsson, stofnanda
hans.
BARNASKÓLINN.
Barnaskóla Húsavíkur var slit-
ið 15. maí. í skólanum voru 220
nemendur í 11 bekkjardeildum.
Fastir kennarar 7 auk skóla-
stjóra.
Barnaprófi luku 37, þar af .4
með ágætiseinkunn. Hæstu ein-
kunn á barnaprófi hlaut Elísa
Þorsteinsdóttir. — Veitt voru
tvenn bókaverðlaun við barna-
próf, fyrir beztu frammistöðu í
íslenzku og sögu, og hlaut þau
Karl E. Gunnarsson, og fyrir
bezíu frammistöðu í sundi og
leikfimi. Hlaut þau Kristján
Hermannsson.
Barnastúka starfar innan skól
ans, sem skólafélag, og er gild-
ur þáttur í skólastarfinu. Árs-
skemmtun skólans var haldin í
marz og var fjölbreytt. -' V
, ....Joðge. 4
ÍSLENDINGU?