Almanak alþýðu - 01.01.1930, Blaðsíða 41
þess að hjálpa f>eim kaupstöðum, sem vilja
losna við áfengið, til þess að ná pví marki.“
Loks samþykti sambandsþingið eftirfarandi:
„10. þing Alþýðusambands Islands skorar á
ríkisstjórnina:
ad hefja tafarlaust undirbúning undir afnám
Spánarundanþágunnar,
ad sjá um, meðan undanþágan er í gildi, að
útsölumenn Áfengisverzlunarinnar fái föst
laun, en ekki „prósentur" af sölunni, >
ad þann tíma, sem enn verður Ieyft að selja
áfengi í veitingahúsum, sé þess vandlega
gætt, að gróðaálagning seljenda sé aldrei
meiri en hún hefir verið lægst, og að
strangt eftirlit sé með þvi, að ekki sé selt
þar utan leyfilegs tíina,
að auka enn eftirlit með því, að lyfjabúðir
og læknar misnoti ekki leyfi tii áfengisút-
láta,
ad vanda sem bezt til Tjanngæzlu og hindra
á allan mögulegan hátt innflutning ólöglegs
áfengis og ganga ríkt og vægðarlaust að
því að uppræta alla áfengisbruggun."
6. BjUrnnnarstarfseml oy lamUielfjlsflæzln.
„10. þing Alþýðusambands íslands felur þing-
mönnum flokksins að hlutast til um, að tekið
verði til rækilegrar athugunar, hvernig heppi-
legast verði fyrir komið aukinni björgunarstarf-
semi og landhelgisgæzlu við alt landið."
Enn fremur var samþykt tillaga þess efnis
að skora á þingmenn flokksins að beita sér
fyrir því, að björgunarskip verði fyrir Norður-
landi (á Siglufirði) yfir haustvertíðina ár hvert.
37