Morgunn


Morgunn - 01.01.1978, Page 47

Morgunn - 01.01.1978, Page 47
ARNALDUR ÁRNASON, STYKKISHÓLMI: SKÝRSLA UM RAUNVÍSINDALEGT SAMBAND VIÐ FRAMLIÐNA MENN, SEM NÚ ÞEGAR ER FYRIR HENDI Heiðraði ritstjóri Morguns! Við erum væntanlega sammála um, að það eitt sé bein sonnun fyrir framhaldslífi, að framliðnir menn geri vart við S1g með raunvísindalegum hætti, það er innan ramma eðlis- h'æðinnar. Við skulum hugsa okkur málinu til skýringar, oð mönnuðu geimfari væri skotið út úr sólkerfinu eitthvað ut í himingeiminn og síðan rofnaði allt samband við geim- farana. Það væri vissulega gleðiefni ef geimförunum tækist að senda okkur skeyti með geislum til móttökustöðvar hér a jörðu niðri. Skeytið væri sönnun fyrir því að geimfaramir vœru enn á lifi. Nakvæmlega á sama hátt myndu framliðnir menn sanna hlvist sína, ef þeir sendu okkur boð með geisla eða örbylgju- tækni. Á öld vísinda og tækni hlýtur spurningin um fram- haldslífið að vera sett fram sem tilgáta á sviði raunvisinda, það er innan þeirra marka sem eðlisfræði og eðlisfræðirann- sóknir setja okkur. Nú hafa margir ágætir menn lýst þeirri skoðun sinni, að ekki sé mögulegt að sanna framhaldslífið eftir leiðum raun- V1smda, málið sé þannig vaxið í eðli sínu. En þetta er að sjalfsögðu aðeins sú hlið málsins er að okkur snýr. Við getum ekki sannað að til sé mannkyn á öðrum hnöttum, en það er

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.