Morgunn - 01.12.1997, Blaðsíða 77
Guðjón Baldvinsson:
Áfangaskýrsla
rannsóknanefndar SRFÍ,
flutt á aðalfundi félagsins, 5. maí, 1988.
r
Astjórnarfundi í SRFI 15. september 1987, voru
lögð fyrstu drög að s.k. rannsóknanefnd SRFÍ, og
var undirrituðum falið að vera tengiliður hennar
við stjórnina og fá til samstarfs við sig áhugasama aðila
um þau verkefni er þar skyldu unnin. Var svo gert og má
telja það mikið happ hversu einstakir atorku og áhuga-
samir menn fengust þar til samstarfs, en þeir eru:
Sigurður Rúnar ívarsson,
Ævar Jóhannesson
og Örn Guðmundsson.
Hafa þeir allir sýnt mikla atorkusemi og vilja í störfum
nefndarinnar, en í reglugerð félagsins segir svo um verk-
efni hennar:
„Formaður deildarinnar, ásamt öðru starfsfólki, annast
rannsóknir á dulrænum fyrirbærum. Gerir fræðilegar
athuganir í sambandi við drauma og draumvitund manns-
ins. Skipuleggi og framkvæmi langtíma rannsóknir á
dulhæfileikum íslendinga, fyrr og nú. Fylgist með og
rannsaki huglækningastörf lækningamiðla á vegum
félagsins.“
Svo sem sjá má af framansögðu eru verkefnin, sem
nefndinni eru ætluð, eigi alllítil og að sjálfsögðu ljóst að
þau verða ekki unnin í einu vetfangi. Að áliti nefndarinnar
MORGUNN 75