Útvarpstíðindi - 01.11.1953, Blaðsíða 28

Útvarpstíðindi - 01.11.1953, Blaðsíða 28
snöggvast upp til að skoða inn í skipið, og settist svo aftur. Og við vorum allir harla glaðir . Og þegar svo mikill fiskur var kom- inni í rennuna að jafnvel annar eins dugnaðarforkur og Kristmundur hafði ekki lengur undan að greiða úr, þá vik- um við Guðmundur frá spilinu og rúll- unni nokkur augnablik og blóðguðum fiskinn í kassanum, eða greiddum úr með Kristmundi. Við vorum búnir að draga fyrstu trossuna um leið og sólin kom upp yfir Vífilsfell, og lögðum hana strax aftur á sama stað. Greiddi Halldór fyrir kúlun- um og Kristmundur fleygði út steinun- um, en við hinir blóðguðum á meðan það, sem enn var óblóðgað í kassanum. Svo var stímt að næstu trossu. Á leiðinni þangað fór ég að raula fyrir munni mér slagara, sem þau Sigrún Jónsdóttir og Alfreð Clausen syngja oft í Óskalögum sjúklinga og fjallar um mann, sem hét Gvendur og kveikti á luktunum á liðinni öld. Mér fannst ég raula hann ósköp lágt, en félagar mínir tóku samt eftir því, og spurðu hvort mig væri farið að langa í landlegu. Ég hafði sem sé gleymt þeim gamla og góða vís- dómi, að maður á aldrei að syngja eða blístra á sjó. Sérstaklega er varhugavert að syngja Ólafur reið með björgum fram, því það bregzt aldrei að þá skell- ur á óveður. Og ef maður syngur Ólaf- ur reið með björgum fram, og klórar svolítið í mastrið um leið, þá má ganga út frá því sem vísu, að innan stundar verði komið aftakaveður. Auðvitað steinhætti ég að raula um hann Lukta-Gvend, og við fórum að draga næstu trossu. Til að byrja með var engu minna í henni en þeirri fyrstu. En þegar kom svolítið út í annað netið skipti skyndi- lega um, og varð nú lítið að gera fyrir Guðmund að gogga inn fyrir. Þetta hafði sem sé ekki verið annað en stjóragleypa. En þó að fátt væri um þorskinn í þess- ari trossu, þá vantaði þar ekki háfinn. Að minnsta kosti var þar meira af hon- um en eðlilegt gat talizt á þessum tíma, því að þegar kemur fram í október er háfurinn venjulega alveg horfinn úr Bugtinni. Nýtur háfurinn lítilla vin- sælda meðal sjómanna, því að hann er þeim einskis virði og vinnur það eitt sér til frægðar að skemma veiðarfærin og téfja fyrir. Enda segja sjómenn um háfinn: „Þetta er ekki fiskur.“ Eins og allir vita, er háfurinn hákarls- tegund, og hann fæðir lifandi afkvæmi. Verður hann stærstur um metri á lengd, og býður ekki af sér góðan þokka; aug- un eru að vísu fallega smaragðsgræn, en ótrúlega flærðarleg, og hjá bakuggun- um eru beinbroddar hvassir, sem háfur- inn notar eflaust til að gera illt af sér meðal heiðarlegra fiska, en voru víst áður fyrr mikið brúkaðir sem tann- stönglar í veizlum danskra faktora. — Kunna sjómenn aðeins eitt ráð til að losna við ágengni háfsins, og það er að brytja hann í smátt og fleygja pörtun- um í sjóinn. Háfur sá, sem fyrir er í sjónum étur þá hinn sundurskorna bróð- ur sinn ( og sýnir það hvað kvikindið er gráðugt), og verður svo illt af öllu sam- an (og sýnir það hvað kvikindið er heil- næmt, eða hitt þó heldur). Og eftir þess- ar trakteringar sér háfurinn sitt óvænna og flýr af miðunum. Og fari hann vel. Enda er þetta ekki fiskur. í þessari trossu var einnig dálítið af 28 ÚTVARPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/728

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.