Sindri - 01.10.1920, Síða 21

Sindri - 01.10.1920, Síða 21
SINDRI IÐNAÐAR-HUGLEIÐINGAR 15 notkunar. Við hitann og vatnsrýrnunina dauðhreinsast1 mjólkin, sykurmegn hennar eykst, en það hefir þau áhrif, að mjólkin geymist betur, því sykur ver skemdum engu síður en salt; þess vegna er oft látið dálítið af sykri í niðursoðna mjólk, þótt það sje í raun og veru óþarft, sje meðferð mjólkurinnar í sæmilega góðu lagi. Síðari árin er nýmjólkin feitijöfnuð2 áður en byrjað er að eima hana, en það er gert til þess að hún setjist síður til. Á líkan hátt er farið með rjóma, áður en hann er dauðhreinsaður. Hvað umbúðaefni mjólkurinnar snertir, þá má segja, að vörutollslögin sjeu dálítið óhagstæð, því eftir orðalagi þeirra að dæma, telst pjátur og tin til 6. flokksins, en sem betur fer mun samt vera goldið af pjátri eins og öðru smíðajárni 75 aurar af hverjum 50 kg. Annars er ilt til þess að vita, að mý- margur efniviður og hráefni, seni notuð eru til iðnaðar, teljast til 6. flokks núgildandi vörutollslaga og nauðsynlegt er að al- þingi ráði bót á því fyrirkomulagi svo fljótt sem unt er. Aðal annmarki á mjólkurniðursuðu í Olfusinu virðist vera flutningskostnaðurinn, enda verður hans víðast hvar vart hjá oss, þegar um framleiðslu til sveita er að ræða. Með þeim samgöngutækjum, sem nú er völ á, verður flutningskostnaður á niðursoðinni mjólk úr Olfusi til Reykjavíkur að minsta kosti 100 krónur fyrir ársnyt úr meðal mjólkurkú. Þetta er að vísu drjúgur gjaldaliður og líka eykur það kostnað, að ekki er unt að koma mjólkinni á markaðinn nema að sumrinu til sökum vetrarríkis. Það yrði því ekki hjá því komist að reisa all- kostnaðarsamt forðabúr eystra og leggja auk þess mikið 'fje í umbúðir og mjólkurforða, því æskilegast væri, að niðursuðan yrði starfrækt alt árið. Þótt aðstaðan sje erfið að þessu leyti virðist mjólkurniðursuða vera mjög arðvænleg atvinnugrein, einkum þar sem nota má hverahita og vatnsafl eins og á sjer stað í Olfusinu. Aðalatriðið er að stofna til framleiðslunnar á skynsamlegan hátt og vanda vel varninginn, því að öðrum kosti verða erlendir keppinautar örðugir viðfangs. Framh. 1 Dauðhreinn steril, dauðhreinsa - sterilesera o. s. frv. 2 Feitijöfnuð homogeniseruð, þ. e .a. s. feitihúlurnar maröar í sundur, svo að þær leiti ehhi til yfirborðsins.

x

Sindri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sindri
https://timarit.is/publication/729

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.