Sindri - 01.10.1920, Page 30

Sindri - 01.10.1920, Page 30
24 VERNDARBRJEF OQ EINKALEVFI SINDRI einkaleyfisveitingarnar ekki lengur á því, að þjóðinni yrði sem best not að, heldur að konungarnir fengju sem mest fje. Einkum er þess getið, að Elísabet drotning hafi notað sjer þær rækilega. Hún veitti mönnum einkaleyfi til námuvinslu, til þess að stunda almennar iðnir, og allskonar einkaleyfi sem urðu oft mjög óvinsæl vegna þess, að þau oft bönnuðu þeim sem áður höfðu stundað einhverja iðngrein, að halda áfram, eða þeir urðu að gjalda leyfishöfum stórfje til þess að fá að starfa í friði. Þó að dómstólarnir ónýttu oft leyfi þessi, þá magnaðist þessi einkaleyfis-ófögnuður þó svo, að þingið fór að veita því athygli, og byrjaði að leggja grundvöll undir rjett þann er konungarnir höfðu tekið sjer til einkaleyfisveitinga. Fyrstu einkaleyfislögin voru samþykt 1623, og öðluðust konungsstað- festingu |29. maí 1624. Lög þessi heimiluðu konungi að veita uppfundningamönnum einkaleyfi, með þeim skilyrðum, að upp- fundningarnar hvorki hækki vöruverð nje þvingi verslunina. Eftir að lög þessi öðluðust gildi, var með auglýsingu Karls I., frá 9. apríl 1639, sjerhverjum einkaleyfishafa gert að skyldu að koma uppfundningu sinni í framkvæmd innan þriggja ára frá dagsetningu einkaleyfisbrjefsins, ella yrði leyfið afturkallað, ef leyfishafi hefði ekki áður afsalað sjer rjettinum. Lög þessi voru í gildi á Englandi yfir tvær aldir. Eitt bættist þó við á þessu tímabili. Það var lýsing upp- fundningarinnar, sem fylgja skyldi hverri einkaleyfisumsókn. Lýsing þessi var tekin upp í hina opinberu einkaleyfisskrá, og var hún notuð þegar gagnrýna skyldi rjett einkaleyfis-um- sækjandans. Vegna framfara iðnaðarins var nauðsynlegt að leggja traustan grundvöll er byggja mætti á dóma um rjett- mæti einkaleyfisveitingarinnar; grundvöll þenna var að finna í »lýsingu uppfundningarinnar«, sem fylgja skyldi hverri einka- leyfis-umsókn, og sem brátt varð aðalgrundvöllurinn undir lögverndun sjerhverrar uppfundningar. Fyrstu frakknesku einkaleyfislögin gengu í gildi 7. janúar 1791. Þó voru mönnum áður veitt þar einkaleyfis eða vernd- arbrjef, til þess að stunda ákveðnar iðngreinar. Arið 1551 fjekk Theseus frá Bologna tíu ára einkaleyfi til þess að smíða

x

Sindri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sindri
https://timarit.is/publication/729

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.