Sindri - 01.10.1920, Síða 33

Sindri - 01.10.1920, Síða 33
SINDRI VERNDARBR]EF OQ EINKALEYFI 27 framförum í iðnaði, og bar margt til þess. Uppfundningamenn þeir, sem vildu fá einkaleyfi fyrir Stóra-Bretland, urðu að sækja um sjerstakt leyfi fyrir hvert land, England, Skotland og Irland, en til þess urðu þeir að skifta við átta embættis- menn, og gjalda hverjum þeirra sjerstaklega. Til þess að lög- gilda einkaleyfið var& að innsigla einkaleyfisskjalið með hinu stóra innsigli Englands, en innsiglarinn innsiglaði einungis einu sinni í viku og var auk þess oft í ferðalögum. Þar við bættist að einkaleyfin kostuðu mikið yfir 5000 krónur, auk þess gjalds er gjalda varð einkaleyfisumboðsmönnum. Eitt má telja enn, er jók óbeit manna á einkaleyfisveiting- um, það var hið svonefnda »Caveat«. Atti það í fyrstu að stuðla að því, að menn þeir er störfuðu að uppfundningum, gætu það í næði og óhræddir um að aðrir yrðu fyrri til að fá einkaleyfi á þeim. Hverjum uppfundningamanni var heimilt að sækja um »Caveat« þó að uppfundningu hans væri ekki lokið, og skyldi hann lýsa henni lauslega. Sækti svo einhver annar um einkaleyfi á uppfundningu er stefndi í líka átt og sú, er eigandi »Caveatsins« hafði lýst, þá háfði »Caveats«- eigandinn forgangsrjett til einkaleyfisveitingar. En þessi »Ca- veat« gerðu ilt verra vegna þess, að óhlutvandir menn sóttu oft um »Caveat« fyrir sig á uppfundningum sem þeir höfðu komist á snoðir um að aðrir hefðu með höndum, og hefðu þeir lýst uppfundningunum nokkurnveginn rjett, þá var hinum rjettu uppfundningarmönnum oft ekki önnur leið opin til þess að fá einhverja vernd en sú, að semja við »Caveats«-eig- endurna. A fyrri hluta 19. aldar var farið að endurbæta einkaleyfis- lögin; og 31. ágúst 1848 gengu í gildi lög sem kváðu svo á, að almenningi væri heimilt að taka afrit af lýsingum upp- fundninganna. Heimssýningin 1851 varð til þess að endur- bæta einkaleyfislöggjöfina rækilega, og til þess að veita upp- fundningamönnum þeim, er sýna kynnu á sýningunni, einhverja vernd, voru samin bráðabirgðalög er giltu meðan sýningin stóð yfir. 1. júlí gengu í gildi ný lög. Voru þau hin fyrstu er skipa fyrir að leggja skuli opinberlega fram teikningar og lýsingar af uppfundningum, til þess að alþýða geti fengið að kynnast

x

Sindri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sindri
https://timarit.is/publication/729

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.