Morgunblaðið - 20.01.2009, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 20.01.2009, Blaðsíða 17
Daglegt líf 17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2009 FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKA TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR. KET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PAR FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKA TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR. KET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PAR FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKA ÚTS LA Þúsundir fermetra af flísum með 20 -70% afslætti Plastparket frá 1.790 kr/m2 Heimilisgólfdúkar 20% afsláttur vi lb or ga @ ce nt ru m .is GE kæliskáparnir eru öflugir, endingargóðir og glæsilega innréttaðir Amerískir GE kæliskápar GCE21LGWFS Stærð: h 176 x b 90,9 x d 60,7 sm Með ryðfríum stálhurðum 381 ltr. kælir og 173 ltr. frystir Orkunotkun: A GE kæliskápur verð frá kr.: 319.900 Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Baldursnes 6, Akureyri | Sími 588 0200 Meðal merkustu viðburða í listalífi Vestmannaeyja var þegar sönghópurinn Mandal flutti lög við kvæði og sálma sr. Jóns Þorsteinssonar píslarvotts í Tyrkjaráninu er þjónaði Kirkjubæ í Vestmannaeyjum í bland við ensk jólalög frá áþekkum tíma og síðar. Sönghópinn skipa tvenn hjón; Bára Grímsdóttir og Chris Foster annars vegar og Helga Jónsdóttir og Arnór Hermannsson hins vegar. Um tónleikana segir Kári Bjarnason, for- stöðumaður Safnahúss í Vestmannaeyjum: – Eitthvað gerðist á þessum tónleikum sem ég fann að snerti alla þá er þar voru viðstaddir. Það var ekki bara að kvartettinn væri vel mannaður; ekki einasta að Bára er eitt besta tónskáld þjóðarinnar af yngri kynslóðinni og því frum- flutningur laga hennar stór viðburður í sjálfu sér; ekki einvörðungu að Helga náði með undraverðum hætti að gæða texta sr. Jóns nýju lífi og ekki einungis sú stað- reynd að með því að spila á hin gömlu hljóðfæri náðist sérstök og hrífandi stemning. Ég hef spurt sjálfan mig eftir tónleikana: hvað var það sem gerði þessa tónleika eftirminnilegri en aðra tónleika sem ég hef sótt?    Á fyrstu dögum ársins fór fram árleg afhending Frétta- pýramídans sem vikublaðið Fréttir veitir þeim sem þykja hafa skarað fram úr í Vestmannaeyjum á nýliðinu ári. Viðurkenningarnar voru fjórar að þessu sinni þar sem Bjarni Sighvatsson, fyrrum útgerðarmaður, var út- nefndur Eyjamaður ársins, Vélaverkstæðið Þór var til- nefnt fyrirtæki ársins, Tónlistarskólinn fékk viðurkenn- ingu fyrir framlag til menningarmála og Ólöf Aðalheiður Elíasdóttir fyrir framlag til íþróttamála í Vest- mannaeyjum. Bjarni fór í fararbroddi þeirra sem söfn- uðu fé til tækjakaupa fyrir Heilbrigðisstofnunina í Vest- mannaeyjum auk þess sem fjölskylda hans kom mjög myndarlega að söfnuninni. Samtals hefur þetta skilað tækjum fyrir um 60 milljónir sem er til heilla fyrir stofn- unina, starfsfólk hennar og Vestmannaeyinga alla.    Sjaldan hefur verið meira um að vera í byggingariðnaði í Vestmannaeyjum enda tvö stórhýsi í byggingu í mið- bænum. Stefán Lúðvíksson og Þórarinn Sigurðsson standa fyrir nýbyggingunni við Hilmisgötu sem verður tvær hæðir, verslunin Geisli verður á fyrstu hæð og sex íbúðir á annarri hæð.    Það hefur verið í nógu að snúast hjá byggingafyrirtæk- inu Steina og Olla ehf. undanfarna mánuði. Stærsta verkefnið er stórt verslunar- og íbúðahús í miðbæ Vest- mannaeyja. Auk þess hefur verkefnastaða fyrirtækisins verið góð og hafa sjaldan verið jafn margir í vinnu yfir vetrarmánuðina og nú. Þá tók Vestmannaeyjabær tilboði Steina og Olla í fjöl- nota íþróttahús sem rísa mun við Týs-heimilið á næstu mánuðum.    Á fyrstu dögum ársins voru opnuð tilboð í jarðvinnu og steypuvinnu vegna framkvæmda við útisvæði sundlaug- ar og eiga framkvæmdir að hefjast strax við undirritun samnings og skal þeim lokið eigi síðar en 10. apríl.    Í haust hófst undirbúningur að gerð Landeyjahafnar sem samkvæmt áætlun á að vera tilbúin um mitt næsta ár, sumarið 2010. Byrjað er að keyra grjóti ofan af Selja- landsheiði og er framkvæmd á áætlun. Ekki hefur verið farið fram á frestun framkvæmda og Vestmannaeyjabær hefur augastað á notaðri ferju sem gæti hentað til sigl- inga í Landeyjahöfn og yrði klár sumarið 2010. VESTMANNAEYJAR Ómar Garðarsson fréttaritari Verðlaun Í síðustu viku var Andri Ólafsson knatt- spyrnumaður valinn íþróttamaður Vestmannaeyja. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson. Jón Daníelsson segist hafa alistupp innan um framsóknarmenn í Húnaþingi. Sumir hinna eldri hafi þá enn verið örlítið flámæltir og vill minnast þess er Framsókn velur sér nýjan formann: Fimlega telja á fingrum sér framsóknarmenn hinna grænu rósa. Fer þó í verra ef fingurner eru færri en þeir sem vilja kjósa. Hann hallast að því að Hauki hafi misfarist með fingur beggja handa í talningunni, enda fyrir löngu orð- inn óvanur svo mörgum atkvæðum. Friðrik Steingrímsson í Mývatns- sveit orti af sama tilefni: Gerast í pólitík glappaskot enn á gæðin er hæpið að stóla, og fyrir nú liggur að framsóknarmenn fari í talningaskóla. Jón Ingvar Jónsson velti upp nýj- um fleti á talningunni: Endurtalning öllum vafa eyða mun úr hverri sál. Þá sjá allir að þeir hafa yfir flokkinn kosið Pál. Þá Pétur Stefánsson: Í Framsókn er bæði fjör og drama, – fremstur var Höski í sigurliði og stóð í ljósi frægðar og frama í fimm mínútur uppi á sviði. Hjálmar Freysteinsson veltir fyr- ir sér þýðingu þessa viðburðar fyrir flokkinn: Drottinn gefi Framsókn frið formann náði’ hún að velja. En vilji hún okkur veita lið verður hún að kunna að telja. Þá Ólafur Stefánsson: Þegar Valgerður var að kyssa, vinningshafann seinni, sýndist konan svolítið hissa, – en svona er lífið í beinni. VÍSNAHORN Af talningu og Framsókn ÚR BÆJARLÍFINU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.