Morgunblaðið - 20.01.2009, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 20.01.2009, Blaðsíða 32
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is „ÞAÐ verður hugsanlega meira um nei,“ segir Júlíus Freyr Guðmunds- son, sonur Rúnars Júlíussonar, þegar hann er spurður út í áfram- haldandi rekstur útgáfunnar Geim- steins sem faðir hans stofnsetti ár- ið 1975. Júlíus, Baldur bróðir hans og sonur Baldurs, Björgvin Ívar, sjá nú um reksturinn og Júlíus segir enda enga ástæðu til annars, á margan hátt hafi þetta verið best rekna útgáfa landsins, hún sé skuldlaus og búin að vera á sömu kennitölu frá stofnun. „En það er ekki að ég vilji hljóma neikvæður með þessari upp- hafssetningu,“ heldur Júlíus áfram. „En þannig var að pabbi var mjög jákvæður í garð sveita sem voru að stíga sín fyrstu spor og gaf þær út, án þess að horfa í sölumöguleika. Hann spilaði bara því meira til að bæta upp fyrir tapið.“ Minningarsjóður Rúnars Júlíus- sonar hafi þess vegna verið stofn- aður m.a. með þetta að markmiði, að létta undir með ungu og efni- legu tónlistarfólki. Björgvin Ívar sagði blaðamanni á dögunum að nú væri verið að nútímavæða fyrir- tækið, reikningar hefðu t.a.m. verið skrifaðir á ritvél fram á síðasta dag. „Satt er það, það voru ýmsar hefðir sem ekki mátti hrófla við,“ segir Júlíus og kímir. „En þetta er erki-fjölskyldufyrirtæki. Við þrír erum búnir að vera inni í þessu alla tíð og Björgvin hefur verið mjög virkur síðustu þrjú árin. Það má segja að nú sé aðlögunartími í gangi, við erum að stilla okkur af og móta þennan góða rekstur til framtíðar.“ Geimsteinn lifir Fjölskyldufyrirtæki Rúnar heitinn Júlíusson ásamt þeim Baldri og Júlíusi. Synir og barnabarn Rúnars Júlíussonar halda rekstri útgáfufyrirtækisins Geimsteins áfram 32 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2009 Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÞETTA er risastór og epísk mynd,“ segir Ingvar Þórðarson, en hann og Júlíus Kemp verða með- framleiðendur að næstu mynd finnsk/bandaríska kvikmyndagerð- armannsins Renny Harlin. Myndin heitir Mannerheim og segir sögu einhverrar mestu þjóðhetju Finna, Carl Gustaf Emil Mannerheim, sem var m.a. yfirhershöfðingi í finnska hernum í síðari heims- styrjöldinni og síðar forseti Finn- lands. Dýrt spaug „Heildarkostnaður er um 11 milljónir evra, sem nemur rúmlega 1,8 milljörðum íslenskra króna. Það gerir þetta að langdýrustu mynd sem framleidd hefur verið í Finnlandi,“ segir Ingvar og bætir því við að tekjur af öllum myndum sem Renny Harlin hefur gert nemi rúmum milljarði Bandaríkjadala frá upphafi, sem gerir um 127 milljarða íslenskra króna. En hvernig kom það til að þeir félagar voru fengnir til verksins? „Þetta eru gömul tengsl, því ég er búinn að þekkja Renny í ein- hver 15 ár. Við höfum unnið með honum og framleiðandanum Mark- usi Selin alveg frá því að við gerð- um 101 Reykjavík, og Selin var líka með okkur í Astrópíu, Strák- unum okkar og Reykjavík Whale Watching Massacre. Þeir eru aðal- framleiðendur Mannerheim og bestu vinir. Í gegnum þessi tengsl komum við líka að Lordi-myndinni Dark Floors.“ Aðspurður segir Ingvar að að- koma þeirra félaga verði með þeim hætti að þeir sendi íslenskt starfs- fólk á tökustað og borgi því laun. Þegar hefur verið ákveðið að Helgi Björnsson fari með hlutverk í myndinni, auk þess sem Ásta Haf- þórsdóttir verður önnur af aðal- sminkum hennar. „Við munum svo eiga allan rétt á Íslandi, auk þess sem við munum fá ákveðnar prósentur af hagnaði af myndinni um allan heim,“ segir Ingvar. Eins og Jón Sigurðsson Mannerheim er fyrsta myndin sem Harlin gerir í heimalandinu í hátt í þrjátíu ár, en að sögn Ingv- ars er það mikill heiður fyrir hann að fá að gera mynd um Mann- erheim. „Hann er mikil þjóðhetja í Finnlandi. Það má jafnvel segja að Finnar væru ekki frjálsir ef hann hefði ekki komið til, og hann bjargaði þeim eiginlega tvisvar, fyrst í finnsku borgarastyrjöldinni árið 1918 og svo aftur í síðari heimsstyrjöldinni,“ segir Ingvar. „Þannig að það má eiginlega segja að fyrir þeim sé hann eins og Jón Sigurðsson er fyrir okkur.“ Tökur á Mannerheim hefjast 9. mars, og verður hún tekin í Finn- landi, Litháen og Rússlandi. Gert er ráð fyrir að hún verði svo frum- sýnd árið 2010. Framleiða milljarðamynd  Ingvar Þórðarson og Júlíus Kemp framleiða næstu mynd Renny Harlin  Helgi Björnsson á meðal leikara  Kostar tæpa tvo milljarða í framleiðslu Mannerheim „Það má jafnvel segja að Finnar væru ekki frjálsir ef hann hefði ekki komið til, og hann bjargaði þeim eiginlega tvisvar,“ segir Ingvar. Renny Harlin er án efa þekktasti kvikmyndagerðarmaður Finn- lands ásamt Aki Kaurismäki. Á meðal mynda sem hann hefur gert eru A Nightmare on Elm Street 4: The Dream Master, The Adventures of Ford Fair- lane, Die Hard 2, Cliffhanger, The Long Kiss Goodnight og Deep Blue Sea. Þá muna eflaust margir eftir sambandi hans og leikkonunnar Geenu Davis sem stóð frá 1993 til 1998. Leikstýrði Die Hard Fólk Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÞETTA er ömurlegt, en ástæðan er bara staða gengisins, við þorum ekki að taka einhverja fjár- hagslega áhættu núna,“ segir Hallur Kristján Jónsson, meðlimur hljómsveitarinnar Bloodgro- up, sem hefur þurft að hafna boðum á þrjár stór- ar tónlistarhátíðir. „Þetta voru CMJ í New York, Midem í Frakklandi og svo South By Southwest í Texas sem buðu okkur,“ segir Hallur, en með- limir sveitarinnar myndu sjálfir þurfa að leggja út fyrir kostnaði. „Sérstaklega eins og á Midem, þar þurfa útgefendur að borga 1.700 evrur fyrir hljómsveitirnar, sem er algjörlega óyfirstíg- anlegt eins og staðan er í dag,“ segir Hallur en meðlimir Bloodgroup gefa sitt efni út sjálfir og myndu því þurfa að borga. „Í Texas borga þeir hverri hljómsveit 250 dollara, en við þurfum að fljúga frá Íslandi, skipta tvisvar til þrisvar um vél, svo það segir sig sjálft að það er ekki ferð til fjár.“ Hallur segir það alls ekki sjálfsagt að hljóm- sveitir græði eitthvað á því að koma fram á há- tíðum sem þessum. „Við erum búin að spyrja alla sem við þekkjum í bransanum. Þetta er vissulega gott fyrir ferilskrána, að hafa komið fram á þessum hátíðum, en það er ólíklegra að það geri eitthvað fyrir hljómsveitir með beinum hætti.“ Annars er það að frétta af Bloodgroup að plata er væntanleg frá sveitinni strax í vor. „Við höfum verið að koma okkur fyrir í hljóðveri á Granda og höfum eytt pening í það í staðinn, að byggja okkur gott hljóðver,“ segir Hallur, en sveitin deilir hljóðverinu með Hjaltalín og Singa- pore Sling. Bloodgroup hafnaði boðum á þrjár stórar hátíðir Morgunblaðið/Golli Fjör Bloodgroup í góðri sveiflu.  Íslenska sjónvarps- og kvik- myndaakademían leitar nú að nýj- um ritstjóra málgagnsins Lands og sona (logs.is) eftir að Ásmundur Sverrison sem gegnt hafði starfinu undanfarin ár sagði upp um ára- mótin. Starf ritstjóra felst í að sjá um vefi félagsins www.logs.is og www.eddan.is og í því felst einnig ritstjórn og öflun frétta úr kvik- mynda- og sjónvarpsgeiranum, frá- gangur efnis á vefina og öflun aug- lýsinga auk ritstjórnar á blaði félagsins, Landi & sonum, sem kem- ur út einu sinni á ári. Í auglýsingu segir að starfið sé hlutastarf sem hægt sé að vinna samhliða öðrum störfum. Reynsla af blaðamennsku og þekking á vef- umhverfi er nauðsynleg. Miðað við ástandið á vinnumark- aðnum má búast við því að þegar hafi fjölmargir sótt um starfið en skarðið sem Ásmundur skilur eftir sig er þó stórt og því varla auðvelt að finna verðugan eftirmann. Auglýst eftir ritstjóra Lands og sona  Annað undankvöld Söngva- keppni Sjónvarpsins fór fram á laugardaginn og líkt og í fyrsta þættinum komust þær Eva María og Ragnhildur Steinunn vel frá sínu hlutverki – voru hæfilega súr- ar og fyndnar í senn og sáu til þess að eðlilegt flæði væri á þættinum. Á hinn bóginn virðist sem Söngvakeppnin í ár sé að einu leyti meingölluð. Gæði laganna sem keppa eru fyrir neðan allar hellur og það er helst að mann gruni að dómnefndinni sé á einhvern hátt uppsigað við þjóðina. Einna verst er metnaðarleysið sem einkennir lagasmíðarnar og flytjendunum hefur fæstum tekist að breiða yfir þann galla í sjónvarpssal. Getur verið að við Íslendingar séum búnir að missa tónlistarhæfileikana í kreppunni? Eða voru þeir kannski aldrei á okkar valdi? Ekki frekar en geta okkar til að byggja upp lítið og einfalt samfélag örfárra eyj- arskeggja í Norður-Atlantshafi? Þegar þáttastjórn- endur stela senunni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.