Morgunblaðið - 19.03.2009, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 19.03.2009, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2009 SAMTALS námu umsóknir í orkurannsóknasjóð Landsvirkj- unar ríflega þrisvar sinnum hærri upphæð en stofnfé sjóðsins, en það er 100 milljónir króna. Umsóknir um styrki til dokt- orsnáms voru fimm og 19 til meistaranáms. Ákvað stjórn sjóðsins að veita þrjá styrki til doktorsnema, að upphæð ein milljón króna hver, og átta styrki til meistaranema, 500 þúsund krónur hver. Auk þess fela tíu verkefnastyrkir í sér laun til doktorsnema og meistaranema. Þær þrjár sem fengu hæsta styrkinn eru Kristín Eiríksdóttir hagfræðingur, Lára Jóhanns- dóttir rekstrarfræðingur og Þór- unn Pétursdóttir landgræðsluvist- fræðingur. Nánari upplýsingar á www.lv.is. Margar umsóknir um styrki hjá LV SAMTÖKIN Blátt áfram hafa sett sér það markmið að fræða 5% þeirra sem vinna með börnum í hverju bæjarfélagi um forvarnir gagnvart kynferðislegu ofbeldi á börnum. Fyrst til að ná markmiðinu voru sveitarfélög á Vestfjörðum, en þar hefur verkefnið náð til 250 starfs- manna sem vinna með börnum. Gegn ofbeldi á börnum REYKJAVÍKURBORG hefur mótað drög að stefnu í loftslagsmálum. Borgin óskar eftir umsögnum, hug- myndum og áliti á drögunum frá borgarbúum. Hægt er að gera at- hugasemdir við drögin til 31. mars nk. Að sögn framkvæmdastjóra Staðardagskrár 21 verður unnið úr þeim ábendingum sem berast og heildarmarkmið sett um losun gróðurhúsalofttegunda. Stefna um mengun Morgunblaðið/Golli GEORG Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, fundaði í lið- inni viku með Dale Gable, aðmírál hjá bandarísku strandgæslunni. Einkum var rætt um nánara sam- starf milli Landhelgisgæslunnar og bandarísku strandgæslunnar, svo sem á sviði mengunareftirlits, leitar og björgunar, stjórnar á siglingum og almennrar öryggisgæslu á haf- inu. Þá er einnig gert ráð fyrir sam- eiginlegri þjálfun og menntun starfs- manna eftir því sem nauðsynlegt er til að treysta samstarfið sem best. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Þyrla Gæslan eykur samstarf við þjóðir sem eiga land að Atlantshafi. Nánara samstarf við strandgæsluna LÖGRÉTTA, félag laganema við Háskólann í Reykjavík (HR) ætlar að veita öllum almenningi endurgjalds- lausa ráðgjöf við gerð skattframtals fyrir árið 2009. Ráðgjöfin verður veitt á laugardag nk. kl. 9.00-21.00 í húsnæði HR í Reykjavík, Ofanleiti 2. Ókeypis ráðgjöf FRÉTTIR Frjálsi 3Frjálsi 2Frjálsi 1Trygginga- deild Frjálsi 3Frjálsi 2Frjálsi 1Frjálsi Áhætta – 4,9% 12,3% 10,1% 8,5% 23,6% 12,3% Trygginga- deild 8,5% – 7,6%– 7,4% FRJÁLSI LÍFEYRISSJÓÐURINN Meginniðurstöður ársreiknings 2008 í milljónum króna Efnahagsreikningur 31.12.2008 Eignir Verðbréf með breytilegum tekjum 31.864 Verðbréf með föstum tekjum 31.336 Veðlán 835 Verðtryggður innlánsreikningur 1.358 Húseignir og lóðir 15 Fjárfestingar alls 65.407 Kröfur 281 Aðrar eignir 3.549 Eignir samtals 69.237 Skuldir (1.185) Hrein eign til greiðslu lífeyris 68.052 Yfirlit um breytingar á hreinni eign til greiðslu lífeyris fyrir árið 2008 Iðgjöld 5.520 Lífeyrir (1.249) Fjárfestingartekjur (1.920) Fjárfestingargjöld (229) Rekstrarkostnaður (99) Hækkun á hreinni eign á árinu 2.024 Hrein eign frá fyrra ári 66.028 Hrein eign til greiðslu lífeyris 68.052 Lífeyrisskuldbindingar skv. niðurstöðu tryggingafræðings 31.12.2008 Eignir umfram áfallnar skuldbindingar -3.966 Í hlutfalli af áföllnum skuldbindingum (%) -22,5% Eignir umfram heildarskuldbindingar -2.385 Í hlutfalli af heildarskuldbindingum (%) -4,8% Kennitölur Eignir í ísl. kr (%) 72,9% Eignir í erl. mynt (%) 27,1% 1) Fjöldi virkra sjóðfélaga 10.605 Fjöldi sjóðfélaga í árslok 41.856 2) Fjöldi lífeyrisþega 1.175 1) Meðalfjöldi sjóðfélaga sem greiddu iðgjald á árinu. 2) Meðalfjöldi lífeyrisþega sem fengu greiddan lífeyri á árinu. Ávöxtun 2008 Meðalávöxtun síðustu 5 ára Góð ávöxtun miðað við erfiðar aðstæður á fjármálamörkuðum Frjálsi lífeyrissjóðurinn fór ekki varhluta af erfiðleikum á fjármála- mörkuðum árið 2008. Aðgerðir í Eignastýringu Kaupþings, sem er rekstraraðili sjóðsins, höfðu þó miðað að því að minnka markvisst áhættu t.a.m. með því að auka vægi ríkisskuldabréfa og selja hluta- bréf. Þannig tókst að draga verulega úr neikvæðum áhrifum á eigna- safn Frjálsa lífeyrissjóðsins sem endurspeglast í ávöxtun sjóðsins árið 2008. Samkvæmt tryggingafræðilegri athugun sjóðsins þarf ekki að skerða réttindi eða lífeyri sjóðfélaga í tryggingadeild sjóðsins. Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn 28. apríl nk. kl. 17.15 í höfuðstöðvum Kaupþings, Borgartúni 19. Dagskrá verður auglýst síðar. Áhrif yfirtöku Straums á Frjálsa lífeyrissjóðinn Vegna yfirtöku Fjármálaeftirlitsins á Straumi 9. mars sl. hafa hluta- bréf félagsins verið afskrifuð í eignasafni sjóðsins. Óvissa er um hve stór hluti skuldabréfanna mun greiðast upp. Eins og sjá má í með- fylgjandi töflu var eignarhlutur sjóðsins í Straumi lítill og hefur því óveruleg áhrif á Frjálsa lífeyrissjóðinn. ÍS LE N SK A SI A .I S K AU 45 45 8 03 /0 9 Verðbréf Straums sem hlutfall af heildareignum Frjálsa lífeyrissjóðsins 6. mars 2009. Hlutabréf Skuldabréf Frjálsi 1 0,3% 0,6% Frjálsi 2 0,2% 1,0% Frjálsi 3 0% 0% Frjálsi Áhætta 0,2% 0% Tryggingadeild 0,5% 0,1%

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.