Embla - 01.01.1946, Side 60

Embla - 01.01.1946, Side 60
Svo kom maí. Maí er mánuður hennar, sem var kjörín drottning himins og jarðar. Á liverju kvöldi var lesin litanía og sungnir sálmar henni til heiðurs og þakkar. Á hyerju kvöldi hneigðum við höfuð okkar og báðum Guðsmóður að biðja fyrir okkur, syndugum mönnum, því að hvenær var meiri þörf fyrir bæn en þá? Síðustu dagar ófrið- arins voru lengri og erfiðari en öll árin, sem á undan voru gengin. Við héldum niðri í okkur andanum og biðum. Eitt kvöldið var eins og umheimurinn væri horfinn, eins og sólin stæði kyrr og máninn myndi skína alla nóttina yfir Ajalous- dal. Ómurinn af bæn flóttakonunnar barst að eyrum mér öðru Itver j u: Heilige Maria, Mutter Gottes, bitte fiir uns Siinder — Þegar við komum fram á ganginn, staðnæmdumst við báðar eins og eftir þegjandi samkomulagi. Eg veit ekki, hve lengi við stóðum þarna án þess að tala saman, en allt í einu var ganghurð- inni svipt upp, og ung stúlka stóð á þröskuldinum. Hún hafði auðsjáanlega hlaupið, því að hvíti höfuðklúturinn hennar hafði aflagazt, og hárið þyrlaðist til, augun ljómuðu, og hún gekk upp og niður af mæði. „Friðurinn var kominnl" í f’yrstu gátum við ekki komið upp einu einasta orði. Við stóðum þarna þrjár, sín af hverri þjóðinni. Ég var útlendingur, og þær voru óvinir, því að önnur var dönsk, en hin þýzk. En við mundum ekki eftir því. Fyrstu orð okkar allra, sinnar á hverju málinu, voru hin sömu: Guði sé lof! Unga hjúkrunarkonan hljóp niður stigann og út til þess að segja fleirum frá því, sem gerzt hafði. Við stóðum kyrrar í gang- inum og fórum að tala saman í fyrsta skipti. Hún var frá Lithauen. Hún hafði farið fótgangandi alla leið frá heimili sínu til Berlínar og síðan til Hamborgar, en þaðan var henni ekið ásamt fleirum til Kaupmannahafnar. Hún var af þýzkum ættum, en hafði alið allan sinn aldur í Lithauen, og ætt hennar hafði búið þar í marga liði. Hún vissi ekkert, livað orðið hafði af eiginmanni hennar og syni. Þeir höfðu verið teknir í herinn, og síðan hafði hún ekkert af þeim spurt. Hún 58 EMBLA
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122

x

Embla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Embla
https://timarit.is/publication/759

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.