Morgunblaðið - 13.06.2009, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.06.2009, Blaðsíða 14
Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is MÖGULEGT er að draga úr út- streymi gróðurhúsalofttegunda á Ís- landi um 52% til ársins 2020 ef allar mögulegar mótvægisaðgerðir eru nýttar. Um 64% af þessum sam- drætti er vegna bindingar kolefnis í jarðveg. Þetta er að því gefnu að ál- verið í Straumsvík stækki ekki og að hvorki rísi álver í Helguvík né á Bakka. Þetta eru helstu niðurstöður sérfræðinganefndar á vegum um- hverfisráðuneytisins, en nefndin birti ítarlega skýrslu í gær. Í skýrslunni er ekki lagt mat á hver heildarkostnaður gæti orðið við slíkar aðgerðir en á hinn bóginn er lagt mat á hagkvæmni hverrar að- gerðar fyrir sig. Verði álverið í Straumsvík stækkað og álver reist í Helguvík, en í báðum tilvikum liggur starfsleyfi fyrir, yrði útstreymi gróðurhúsalofttegunda 3% hærra árið 2020 en árið 1990, viðmiðunarár Kyoto-bókunarinnar, þrátt fyrir að gripið yrði til allra möguleika til að draga úr útstreymi. Ætla að draga saman um 50-75% Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórn- arinnar kemur fram að minnka skuli losun gróðurhúsalofttegunda um 50- 75% til ársins 2050 með tímasettum og tölulegum markmiðum. Svandís Svavarsdóttir umhverf- isráðherra telur að skýrslan marki tímamót. Þar væri í fyrsta sinn dreg- in fram heildstæð mynd af þeim möguleikum sem Íslendingar hafi til þess að draga úr nettóútstreymi gróðurhúsalofttegunda, með ít- arlegri greiningu á tæknilegum og hagrænum þáttum. Með slíka þekk- ingu í farteskinu hafi íslensk stjórn- völd loks öflugan grundvöll til að ákveða raunhæfar aðgerðir til að draga úr útstreymi gróðurhúsa- lofttegunda á Íslandi. Þær mótvægisaðgerðir sem nefndin telur að sé tæknilega mögu- legt að ráðast í fyrir árið 2020 skiptast misjafnlega milli geira. Mestir möguleikar virðist vera fyrir hendi í sjávarútvegi, ef ekki er tekið tillit til kostnaðar, bæði með því að draga algjörlega úr útblæstri við fiskimjölsframleiðslu með því að raf- væða framleiðsluna að fullu og draga um 75% úr útblæstri við fiskveiðar með aukinni notkun lífeldsneytis og orkusparnaði. „Þetta er auðvitað ekki ókeypis, sumar aðgerðirnar valda kostnaði en aðrar skila hrein- um ábata,“ sagði dr. Brynhildur Davíðsdóttir, umhverfis- og auð- lindafræðingur, sem var formaður nefndarinnar. Í fiskveiðum sé m.a. rætt um aðgerðir til orkusparnaðar sem megi líkja við vistakstur en einnig muni léttari veiðarfæri skila orkusparnaði. Tæknilega er talið unnt að draga úr losun við orku- framleiðslu um 50%, einkum frá jarðvarmavirkjunum og um 12,4% frá landbúnaði. Binding skili 32% Þá segir í skýrslunni að marg- víslegar mótvægisaðgerðir séu mögulegar í samgöngum, svo sem með því að hvetja til aukinnar göngu og hjólreiða, bæta almennings- samgöngur og auka notkun lífelds- neytis og rafmagns. Ekki var talið líklegt að mótvægisaðgerðir í iðnaði hefðu veruleg áhrif fyrr en eftir árið 2020. Með aðgerðum í landgræðslu, skógrækt og endurheimt votlendis umfram það sem þegar væri áætlað, mætti draga verulega úr nettóút- streymi árið 2020, eða um 32%, mið- að við að ekki verði stækkað í Straumsvík eða álver byggt í Helgu- vík. „Þessar aðgerðir byggjast á því sem er tæknilega mögulegt eins og tæknin lítur út í dag. En munur get- ur að sjálfsögðu verið á því sem er tæknilega mögulegt og því sem á endanum er framkvæmt,“ sagði Brynhildur. Niðurstaðan byggðist á mörgu öðru, s.s. hagvexti, ákvörð- unum stjórnvalda og síðast en ekki síst framlagi einstaklinga. Samdráttur um 52% mögulegur  Tæknilega mögulegt að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda um helming til ársins 2020  Enginn samdráttur mögulegur ef álverið í Straumsvík verður stækkað og nýtt álver reist í Helguvík %& $& ' (&  !) * + & , & -  & # * * ( &. & / . &0 & $ &  1 2&* *$& 3 1  -  & 4'& - 0 & 1( & &  .  $ 56 7 * -1'&'-$&. & 8 -6$& '. . 4'& - 0 $& & 1& $  -& 4'& - 0  -$& $& &* *$& 56 .1&. -1'&'-$&. & 9 $&(     : -  & ; *&6. + *&6  9  -  0 -  & * 6                    ; 1     $0 6  5&, 1 .&$ -1'& ; 1     $0 -  & 9 $& 7 * 1   4$&   * " &  $0   ; 1   . *   $0   :  . *   $0   <- *    . *   $0   :  -  +  &1 0  $&-6$& < -   *  -  & =  '   9 -  & > 1 * -  & ;? &1 = -  &                         %& $& ' (&  !) * 14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2009 Traustur valkostur í húsnæðismálum Sérfræðinganefndin var skipuð af Jónínu Bjartmarz umhverfisráð- herra vorið 2007. Dr. Brynhildur Davíðsdóttir, umhverfis- og auð- lindafræðingur, var formaður en auk hennar voru eftirtaldir í nefnd- inni: Ágústa Loftsdóttir eðlisfræð- ingur, Birna Hallsdóttir verkfræð- ingur, Bryndís Skúladóttir verk- fræðingur, dr. Daði Már Kristófers- son hagfræðingur, Guðbergur Rúnarsson verkfræðingur, dr. Hreinn Haraldsson jarðfræðingur, dr. Pétur Reimarsson efnaverk- fræðingur og dr. Þorsteinn Ingi Sigfússon eðlisfræðingur. Með nefndinni starfaði dr. Stefán Ein- arsson, sérfræðingur í umhverf- isráðuneytinu. Nefndin starfað frá vorinu 2007 ÞAÐ JAFNAST ekkert á við að skemmta sér með félögunum í leikskól- anum. Og þá skiptir engu máli þótt félagarnir séu hundar og leikskólinn heiti Voffaborg. Húgó á það til að stökkva eins og gormur og tíkin Týra fylgist af aðdáun með vini sínum og skólabróður. HOPPANDI HAMINGJA Eftir Andra Karl andri@mbl.is DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ á enn eftir að taka ákvörðun í máli sex hælisleitenda sem sótt hafa um hæli hér á landi eftir að hafa dvalist fyrst í Grikklandi. Mál þeirra eru til með- ferðar og verða skoðuð hvert fyr- ir sig. Ekki ligg- ur fyrir hvenær niðurstaða fæst. Í frétt Morg- unblaðsins í gær er greint frá því að Rauði kross- inn harmi þá nið- urstöðu dóms- málaráðuneytis- ins að senda hælisleitendurna aftur til Grikklands. Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra, segir hins vegar ekkert liggja fyrir um það og verða aðstæður viðkomandi einstaklinga metnar áður en ákvörðun verður tekin. Í því felst að kanna þær upp- lýsingar sem liggja fyrir um ein- staklingsbundnar aðstæður viðkom- andi hælisleitenda og meta með hliðsjón af fyrirliggjandi upplýsing- um um aðstæður hælisleitenda í Grikklandi hvort þess megi vænta að viðkomandi muni njóta réttinda sinna sem hælisleitandi þar í landi. Dómsmálaráðuneytið lét nýverið gera mat á því hvort unnt sé að end- ursenda hælisleitendur til Grikk- lands. Í skýrslu um matið kemur fram að aflað hafi verið fjölda gagna sem varða ástand hælismála, með- ferð hælisumsókna og aðstæður hælisleitenda í Grikklandi, þar á meðal upplýsinga frá stofnunum Sameinuðu þjóðanna, Evrópuráðs- ins og frá öðrum norrænum ríkjum. Í skýrslunni segir m.a. að ljóst sé að hælisleitendum hafi fjölgað mikið í Grikklandi á umliðnum árum og það leitt til þess að yfirvöldum hafi ekki að öllu leyti tekist að fullnægja þeim sameiginlegu reglum sem ríkj- um innan Evrópusambandsins ber að fylgja á sviði hælismála. Hins vegar þykir ljóst að ýmsar breyt- ingar hafi orðið á aðstæðum í Grikk- landi á liðnu ári og kemur það m.a. skýrt fram í bréfi Flóttamanna- stofnunar Sameinuðu þjóðanna sem sent var til íslenskra yfirvalda í mars. Meginreglan verður því áfram sú að hælisleitendur verði endursendir til Grikklands á grundvelli Dyflinn- arreglugerðarinnar, svo sem gert er ráð fyrir í Dyflinnarsamstarfinu. Hins vegar verður hvert tilvik fyrir sig skoðað og aðstæður viðkomandi einstaklings metnar áður en ákvörð- un er tekin. Enn er beðið niðurstöðu í máli hælisleitenda Meginreglan að endursenda til Grikklands Ragna Árnadóttir » 4.469 umsóknir um hæli í Grikklandi 2004 en 25.113 árið 2007 Neytendastofa hyggst hafa samband við skipuleggjendur Airwaves- tónlistarhátíð- arinnar vegna fyrirætlunar þeirra um að til- greina miðaverð á hátíðina í evrum, skv. upplýs- ingum frá stofnuninni. Ástæðan er sú að samkvæmt reglugerð um verðmerkingar og aðrar verð- upplýsingar, er skylt að verð- merkja vöru og þjónustu með endanlegu söluverði í íslenskum krónum. Fram kom í Morgunblaðinu í gær að miðinn kostar 85 evrur, þ.e. 15.300 krónur. Fyrstu tvær vikurnar eftir að miðasala hefst kostar miðinn reyndar 8.900 krónur. Evruverðmerking ætti líklega ekki að skapa erfiðleika í fjar- sölu, s.s. á netinu, þar sem verð í krónum getur væntanlega sveifl- ast með gengi krónunnar. Öðru máli gegnir um miða með hefð- bundnum verðmerkingum. runarp@mbl.is Á að kosta krónur VALTÝR Sigurðsson, ríkissaksókn- ari, sendi umboðsmanni Alþingis í gær skýringar á því hvers vegna kæra vegna ákvörðunar stjórnar Kaupþings um að fella niður tug- milljarða ábyrgðir nokkurra stjórn- enda bankans tafðist hjá embættinu í þrjá mánuði. Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV í gær. Fyrrverandi hluthafi í gamla Kaupþingi kærði ákvörðunina í nóvember en hún barst embætti sérstaks saksóknara ekki frá rík- issaksóknara fyrr en þremur mán- uðum síðar. Í bókunum embættisins segir að töfin hafi komið til vegna mistaka. skulias@mbl.is Valtýr útskýrir þriggja mánaða töf kærumáls

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.