Morgunblaðið - 02.11.2009, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 02.11.2009, Blaðsíða 12
12 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2009 Hlíðasmára 14 sími 588 2122 www.eltak.is Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum mesta úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Hafðu samband líðas ára 14 Sí i 588 2122 .eltak.is NÝ ríkisstjórn Angelu Merkel, kanslara Þýska- lands, hefur kynnt hugmyndir að nýrri leið til að hjálpa prentmiðlum að laga sig að fjölmiðlun á netinu. Hugmyndirnar snúast um að breyta reglum um höfundarrétt til að jafna stöðu útgef- enda gagnvart netfyrirtækjum á borð við Google, sem afla ekki frétta en setja upp nokkurs konar efnisveitur þar sem er að finna fréttir og frétta- skýringar frá ýmsum fjölmiðlum. Þýskir útgef- endur halda því fram að Google og fleiri noti efni þeirra til að afla sér tekna án þess að deila hagn- aðinum. Þessar hugmyndir eru umdeildar í Þýskalandi. Á meðal stuðningsmanna þeirra eru tímaritaútgefandinn Hubert Burda Media og Axel Springer, sem meðal annars gefur út dagblöðin Bild og Die Welt. „Auðvitað vilja allir að- gang að ókeypis og ótakmörk- uðum upplýsingum, en ef allir hafa hann er engin leið að borga fyrir vinnslu þeirra,“ var haft eftir Stefan Söder, lög- manni Burda, í The New York Times í liðinni viku. Burkhard Schaffeld, ráðgjafi samtaka þýskra blaðaútgefenda, sagði að upplýsingafrelsi væri mikilvægt en bætti við: „Gæðablaðamennska kostar peninga. Það er enginn grundvallarréttur til ókeypis upplýsinga á netinu.“ Andstæðingar þessara hugmynda segja hins vegar að stjórnvöld hafi beygt sig fyrir þrýstingi stórra útgefenda, sem nú verji hagsmuni sína fyr- ir áhrifum nýrrar tækni. The New York Times hefur eftir Markus Beckedahl, bloggara í Berlín, að tillögurnar hafi ekkert gildi fyrir samfélagið, aðeins fyrir „útgefendur, sem sjái ógnun í lýð- ræðisvæðingu fjölmiðla“. Í sumar þegar útgefendur vöktu fyrst máls á þessum hugmyndum gáfu málsmetandi þýskir blaðamenn út yfirlýsingu þar sem þeir sögðu að ekki mætti „misnota höfundarrétt til að verja úr- eltar dreifingaraðferðir og festa ný viðskipta- og réttarlíkön í sessi“. Ekki er komin fram útfærsla á nýjum höfund- arréttarlögum, en nefnd hefur verið sú leið að öll notkun birts efnis á vefsíðum, sem reknar eru í ábataskyni, verði háð leyfi. Engin skilyrði yrðu hins vegar sett við einstaklingsbundinni notkun sem ekki væri í ábataskyni. kbl@mbl.is Vilja verja fjölmiðlun á netinu Þýsk stjórnvöld skoða hugmyndir um ný lög til verndar höfundarrétti Mun Google þurfa að borga fyrir efni? Fjölmiðlar um allan heim hafa á undanförnum árum dregið saman seglin. Blaðamönnum hefur verið sagt upp og stöður fréttaritara erlendis lagðar niður. Samdrátturinn veldur því að minna fé verður til að stunda rannsóknar- blaðamennsku. Svigrúmið fyr- ir blaðamann til að taka viku eða mánuð í að kafa ofan í hlutina minnkar jafnt og þétt. Vilji enginn borga fyrir fréttir verða gæðin eftir því. Hver á að borga? Eftir Karl Blöndal kbl@mbl.is ABDULLAH Abdullah varð í öðru sæti í fyrstu umferð kosninganna í Afganistan 20. ágúst. „Ég mun ekki taka þátt í kosningunum,“ sagði Abdul- lah á fundi með blaðamönnum í gær. Hann sagði að ekki hefði verið orðið við kröfum sínum um að tryggja að kosningarnar færu svikalaust fram: „Gagnsæjar kosningar eru útilokaðar.“ Abdullah kvaðst ekki hafa sagt stuðningsmönnum sínum að sniðganga kosningarnar. Abdullah hafði í nokkurn tíma velt því fyrir sér hvort hann ætti að draga sig í hlé. Hann fór meðal annars fram á það að embættismönnum, sem höfðu umsjón með fyrri umferð kosninganna, yrði vikið frá. Þessu hafnaði Karzai. Þrýst á um að aflýsa kosningunum Talsmaður Karzais, Wahid Omar, sagði í gær að það væri „mjög óheppilegt“ að Abdullah hefði dregið sig í hlé, en seinni umferðin myndi engu að síður fara fram eins og ráðgert hefði verið. Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, hafði áður sagt að það drægi ekki úr trú- verðugleika kosninganna þótt Abdullah drægi framboð sitt til baka. Andrew North, fréttaritari BBC, breska út- varpsins, í Afganistan kvaðst hins vegar hafa orð- ið þess áskynja að nú væri þrýst á um að aflýsa seinni umferðinni. Bak við tjöldin færu fram við- ræður um að mynda einhvers konar þjóðstjórn. Fulltrúum Sameinuðu þjóðanna, sem standa að skipulagningu kosninganna ásamt afgönskum yf- irvöldum, Bandaríkjamönnum og Bretum líst ekki á að halda þær, ekki síst ef aðeins einn maður er framboði. Óþarfi sé að setja fólk í hættu með þeim hætti. Talibanar hóta árásum Talibanar hafa hótað því að láta til skarar skríða á kjördag. Í fyrri umferðinni gerðu þeir fjölda árása og tilræða. Stjórn talibana var steypt þegar innrásin var gerð í Afganistan 2001. Kai Eide, yfirmaður Sameinuðu þjóðanna í Afg- anistan, harmaði í gær ákvörðun Abdullahs, en bætti því við að ekki hefði verið hægt að útiloka að kosningasvik ættu sér stað í seinni umferð kosn- inganna eins og í þeirri fyrri. Líklega hefði Abdullah tapað kosningunum á laugardag með miklum mun fyrir Karzai. Í fyrri umferðinni var tæplega tuttugu prósentustiga munur á fylgi þeirra. Staða Karzais var ekki sterk fyrir kosningarnar og kosningasvindlið í fyrri um- ferðinni gróf undan honum. Verði hann einn í framboði í annarri umferð kosninganna mun það enn veikja stöðu hans og verður ekki auðveldara að koma á stöðugleika í Afganistan fyrir vikið. Það myndi heldur ekki styrkja stöðu her- setuliðs Bandaríkjamanna, sem nú eru með um 67 þúsund manns undir vopnum í landinu, og banda- manna þeirra, sem eru með um 42 þúsund manns. Reuters Ekki með Abdullah Abdullah dró í gær framboð sitt til baka og sagði útilokað að kosningarnar á laugardag yrðu gagnsæjar. Dregur sig í hlé og segir gagnsætt kjör útilokað Reuters Forsetinn Afganskur drengur við kosninga- auglýsingu fyrir Hamid Karzai. Abdullah Abdullah, andstæðingur Hamids Karzais í seinni umferð forsetakosninganna í Afganistan, sem fram á að fara 7. nóvember, lýsti því yfir í gær að hann hefði ákveðið að draga sig í hlé. ÍTALSKA lög- reglan handsam- aði um helgina þrjá foringja glæpasamtak- anna Camorra. Bræðurnir Pas- quale og Carm- ine Russo voru handteknir í gær og þriðji bróð- irinn, Salvatore, í árás á hænsnabú á laugardag. Salvatore og Pasquale Russo hafa verið á flótta frá því að þeir voru dæmdir í ævilangt fangelsi 1995. Carmine Russo hefur farið huldu höfði frá 2007. Netið þrengist Salvatore Russo er foringi arms innan Camorra sem nefndur er fjöl- skyldunafni hans og hefur haldið um fjörutíu bæjum í nágrenni Nap- ólí í heljargreipum, að sögn ítalskra embættismanna. Roberto Maroni, innanríkis- ráðherra Ítalíu, sagði í gær að Camorra hefði verið greitt þungt högg og bætti við að netið væri að þrengjast um ofurglæpamenn á flótta undan réttvísinni. Gómuðu mafíu- foringja Sótt að samtökum Camorra í Napólí Salvatore Russo í höndum lögreglu. Víðtæk svik voru framin í forsetakosning- unum, sem haldnar voru í ágúst. Mörg hundr- uð þúsund atkvæði voru dæmd ógild og við það fór hlutfall atkvæða Hamids Karzais for- seta niður í 49,7%. Reglurnar kveða á um að frambjóðandi þurfi hreinan meirihluta til að sigra, annars verði að kjósa aftur milli tveggja efstu. Abdullah Abdullah fékk 31% atkvæða í fyrri umferðinni. Víðtæk kosningasvik

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.