Síldin - 06.03.1939, Blaðsíða 4

Síldin - 06.03.1939, Blaðsíða 4
4 S f L D I N byrjar þar, og gefið þeirn þannig kost á að kynnast vinnubrögðum og tækni á bestu stöðvunum. — Þær krónur, sem til þessa fara, munu sækja hendi heim. M. V. Síídarlunnurnar. Undanfarin ár hefir allskonar óreiða ríkt um síldarumbúðir. Það haía verið fluttar inn tunnur af mörgum stærðum og mjög mis- jöfnum gæðum og smíði innlendra tunna hefir ekki verið vandað sem skyldi. Þettn mál var talsvert rætt á síðasta aðalfundi L. S. og tillaga var þar samþykkt, frá Magnúsi Guðmundssyni síldarmatsmanni, á þá leið, að stjórn L. S. skrifaði Síldarútvegsnefnd um málið, með áskorun um aö koma til leiðar um- bótum á ástandinu. Síðastliðið sumar var það sann- prófað, að stærð síldartunna, sem almennt er álitið að eigi að vera 120 Iítra, var þetta 112—117 lítra, og gæði sumra tegunda voru svo léleg, að ekki var hægt að vonast eftir fyrsta flokks vöru úr þeim. Hvort sem stjórn L. S. hefir komið samþykkt félagsins tíl SÚN eða ekki, þá mun nefndin hafa einhverjar ráðstafanir í undírbún- ingi um tunnulöggjöf, hliðstæða og tíðkast í öllum löndum, þar sem síld er söltuð til manneldis. Væntanlega getur »SÍLDIN« skýrt lesendum sínum frá því í næsta blaði, hvernig þessu nauð- synjamáli reiðir af, MOLAR. f\ 'Igíð „vikunum"! 'Sl. ndsvika, skíðavika, sæluvika og allskonar ágætisvikur eru til. Hvað segið þið um síldarviku á Siglufirði, t. d. rétt áður en sölt- un byrjar? Þátttakendur: Einkum allir þeir, sem vinna að síldverkunu og síld- veiðum. Dagskrá: Samkomur, fræðsla, skemmtanir. Árangur: Samkomulag, sam- vinna, betri vfnna. Eruö þið með? Skrifið »Sildinni« tillögur ykkar um tilhögun vikunn- ar. Hver veit nema hægt verði að »setja í gang«. M. V. L. S. deildir. Lög L. S. gjöra ráð fyrir að fé- lagsmenn myndi deildir í hinum ýmsu byggðarlögum. Slíkt myndl létta, en jafnframt efla starf sam- bandsins. Ef þið, L.S. félagar, eruð ekki þegar búnir að mynda deild- ir, þá gerið það sem allra fyrst. »Gömiu réttindin«. Nokkrir saltendur halda fast í gömlu réttíndin. Síðastliðið sumar var stranglega gengið eftir því, að umbúðir matjessíldar væru hrein- ar við útskipun, en valdssvið mats- mannanna náði ekki yfir aðrar síldartegundir. Þetta kostaði stund- um hörð átök hér á Siglufirði, cg það leyndi sér ekki, að sumum þótti þetta þvingun og notuðu óspart »frelsið«, þegar um aðrar tegundir sildar var að ræða. Hvað sem annars má um frelsið segja, verður ekki sagt að þau »frelsis- merki« væru fögur, sem sáust ut- an á tunnunum. Varlega! Gamall, góður og varfærinn síldarmaður sagði nýlega í faglegu viðtali við yngri mann: »Þið eruð að þessu asskotans brölti með síldina, alltaf að heimta meiri og meiri vöndun. Haldið þið að það kosti ekki neitt? og svo er þetta til þess að æsa útlendingana upp til að gera þetta Iíka.« Það er lygi að strúturinn stingi hausnúm ofan í sandinn, svo hér vantar samlíkingu! Merkiplötur, Merkistafi, Merkiblek, Merkibursfa, Sildarklippur, Netanálar, kaupa menn ekki annarsstaðar en hjá AÐALBIRNI PÉTURSSYNI, gullsmið Sigluíirði. VALASH. VALASH er hollur og hressandi drykkur, framleiddur úr hreinum ávaxtasafa. Drekkið eingöngu VALASH. Stjórn L. S. skipa: Gunnlaugur Guðjónsson, form. Haraldur Gunnlaugsson, ritari. Bergur Guðmundsson, gjaldk. Meðstjórnendur: Balduin Þ. Kristjánsson og Leó Jónsson. Varaform. er: Rögnvaldur Sueinsson. Kauþsýslu- menn ! Athugið að »SÍLDIN« er útbreidd um allt land og verður lesin af öllum þorra þeirra, er: veiða kaupa verka salta selja Þurfið þér ekki að verzla við þetta fólk? Sé svo, þá sendið »SÍLDINNI« auglýsingar í næsta blað, sem kem- ur út í maí-byrjun. — Efnagerd Siglufjardar. Verslunin Geislinn selur: Matvörur, Glervörur, Vefnaðarvörur, Tóbaks- og Sælgtisvörur með lægsta peningaverði. Vilhjálmur Hjartarson. Útgerðarmenn! Sildarsaltendur! Látið okkur »proviantera« skip yðar, það borgar sig. Verðið er hvergi lægra, það getið þér reitt yður á, og vörurnar sam- keppnisfærar hvað gæði snertir. Kynnið yður fyrst viðskipti vor áður en þérgerið kaup annars- staðar. Kaupfélag Siglfirðinga.

x

Síldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Síldin
https://timarit.is/publication/774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.