Saga


Saga - 1967, Page 40

Saga - 1967, Page 40
332 HARALDUR SIGURÐSSON jörð að lokinni ferð. Bók þeirra félaga varð metsölubók í Bandaríkjunum næstu mánuði. Ekki vakti Vínlandskortið þó einróma fögnuð þar 1 landi. Ameríkufundur Islendinga er mörgum vestur þar viðkvæmnismál, sem höfðar fremur til tilfinninga en raka. Létu þær raddir nokkuð til sín heyra. Tvær eru þær röksemdir, sem aðallega eru hafðar uppi fyrir aldri kortsins og bóka þeirra, er því fylgja: Vatns- merki í pappír og rithandarlag. Telja þeir hvorttveggja benda til áranna kringum 1450. Hér á landi brestur öll gögn og alla þekkingu til andmæla og samkvæðis þessum röksemdum, sem hvorug er einhlít. Rannsóknir dr. Salo- mon Krafts í Lundi leiddu í ljós, að vatnsmerkinu er ekki að treysta, því að það kemur fyrir í miklu yngri skjölum og „er eitt algengasta vatnsmerki miðalda og sextándu aldar“ (Rig, 1966, bls. 109—112). Með því er annar aðal- burðarásinn fallinn undan tímasetningu þeirra félaga og rithöndin ein eftir. Rithandarlag, sem var í tízku á ár- unum 1430—1460, á sér ævinlega lengri sögu. Maður, sem lærir að skrifa nálægt 1460, getur haldið því áfram fram yfir 1500, án þess að skipta um rithönd. Þeir, sem fengizt hafa við forn handrit, vita, hve valt er að treysta á tímasetningu rithanda, ef ekki kemur annað til stuðn- ings. íslenzkir fræðimenn munu vita dæmi þess, að skeiki öld um árfærslu handrita, og er alkunna, hve menn grein- ir oft á í þeim efnum. Ekki höfðu þeir félagar þann hátt á, sem virðast mátti sjálfsagður, að leita til þeirra manna, sem líklegastir voru til sérþekkingar á rithöndum manna í Mið-Evrópu við lok miðalda, heldur studdust þeir við prentuð rithandarsýnishorn. Játa höfundarnir þó, að rit- hendur þessara ára séu minna kannaðar en skyldi. Sama máli gegnir raunar um rannsókn vatnsmerkisins. Þar virð- ist enginn sérfróður maður hafa komið nærri. Minna máli skiptir rúlla sú, sem notuð var til þess að blindþrykkja spjöldin á Söguskuggsjá Vincents. Slíkur hlutur er nálega óslítandi og getur gengið kaupum og söl-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142

x

Saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.