Organistablaðið - 01.10.1968, Side 5
Að lokum þakka ég þér, Páll, yndislegar samverustundir og óska
j>ess aff ævikvöld þitt verði ljúft og litríkt, eins og líf ]>itt allt.
Þinn einlægur
Frá Tónlistarskólanum
Meff Páli ísólfssyni bárust hingað norður, Jregar á árunum eftir
1915, rismiklar öldur tíma tónmenningar. lonleikar Páls á þess-
um árum fluttu ]>jóÖ’inni suffræna biriu og hámenningu. Vísir að
Tónlistarskóla komst hér fljótlega á fót að boði Páls, er hann var
sestur að lieima, og hljómleikahald var stóraukið og erlendir snill-
ingar ráðnir hingaff að kynna heimslistina. Nýr boðskapur var flutt-
ur landsmönnurn, þar sem Páll var aðaldriffjöðrin. Og nýtt líf færð-
ist í íslenzkan tónskáldskap.
Koma Páls heiiri til Íslands markaði augljós þáttaskil, og má vel
kalla þau tímamót upphaf æðri tónlistar hérlendis.
Þegar íslenzk tónlistarsaga verður skrifuð, mun rnargt gera kröfu
til að kontast þar með á blað. En ef það er borið saman við tón-
smíðar Páls lsólfssonar, er J>að yfirleitt veikburða. Kunnátta Páls
levfði honum miklu fjölbreytilegri tök á verkefiumum en áður
þekktist. ' ! ■ .j
Páll ísólfsson var aðsópsmikill leiðtogi og Jiarður brautryðjandi.
Hann lilífði hvorki sjálfum sér né öffrum. Hann krafðist nýrra vinnu-
bragða á öllum sviðum Jirátt fyrir frumstæð vinnuskilyrði. Að horfa
á hann stjórna æfingum var óþekkt ævintýri og ógleymanlegt öll-
um Hann var hér alger brautryðjandi í listrænum flutningi, og
sem tónskáld braut hann líka nýjar leiðir i krafti sinnar miklu
þekkingar. Páll var kerra. plógur og hestur í íslenzku tónlistarlífi
í áiatugi. Tónleikar hans um allt land skiptu hundruðum, og er
maður leiðir liugann að öllum lians störfum, sem leiðtogi, kennari,
organisti, skólastjóri, stjórnandi og ráðunautur, er þaff næstum því
ORGANISTABLAÐIÐ 5