Organistablaðið - 01.10.1968, Side 15
Friðrik Þorsteinsson
Friðrik Þorsteinsson, organisti Kefla-
nk, lézt liinn 31. ágúst sl., daginn
fyrir 68 ára afmæli sitt. Hann nam
organleik aðallega hjá dr. Páli lsólfs-
syni og var organisti viS Keflavíkur-
kirkju í 46 ár, frá 1918—1964, er
liann sagði starfinu lausu.
Um svipað leyti og hann gerðist
kirkjuorganleikari stofnaði hann karla-
kór og starfrækti um nokkurn tíma.
Friðrik lagði mikla alúð í starf sitt
og þótti vel fær organleikari, enda
gáfaður og smekkvís vel.
Hann gekk í F.Í.O. árið 1953, en
starfaði lítið í félaginu og kom ]>ar
helzt tvennt til: hlédrægni hans og
miklar annir við alls konar störf, en
hann var framkva-mdastjóri fyrir-
ta-kja og endurskoðandi bæjarsjóðs
og Sparisjóðs Keflavíkur um árahil,
svo að eitthvað sé nefnt. Eftirlifandi
konu hans er Sigurveig Sigurðardótt-
ir, Keflvíkingur að ætt eins og hann.
Jón Leifs
Jón Leifs, tónskáld, lézt I Reykja-
vík 30. júlí sl. 69 ára að aldri. lfann
stundaði tónlistarnám í Leipzig 1916
til 1922, og var búsettur í Þýzkalandi
um 30 ára skeið. Jón Leifs vann ís-
lenzkum tónlistarmönnum mikið gagn
með því að stofna Tónskáldafélag Is-
lands og Stef. í tónverkum sínum
kunni liann þvi betur að fara sínar
eigin leiðir en að þræða troðnar slóð-
ir. Hafa sum þeirra orðið mjög vin-
sæl en önnur eru minna kunn. Eftir
hann liggja mörg og margvísleg tón-
verk, )). á. m. orgelkonsert og nokkur
fleiri kirkjuleg tónverk
Þau áttu 7 börn, sem öll eru á lífi
utan eitt er dó í bernsku. — Með
Friðrik er genginn fágaður, hlédræg-
ur og listfengur maður, sem setti svip
sinn á menningarlíf Keflavíkurbæjar
í unr það bil hálfa öld. P. K. P.
ORGANISTABLAÐIÐ 15