Organistablaðið - 01.10.1968, Side 27
T ónleikar
í Reykjavík
og nágrenni
Svissneskur kirkjukór, sem raunar var
úrval úr þrem kórum, heimsótti ís-
land í ágúst sl. og hélt tónleika í
Háteigskirkju þann 8. s.m. Siðan
hélt kórinn til Akureyrar og söng
í Akureyrarkirkju. Hópurinn nefndi
sig „Evangelische Singgemeinde", og
var stjórnandi kórsins próf. Martin
Flaming, þekktur kórstjóri. Efnisskrá
kórsins var mjög fjölhreytileg og með-
ferð öll mjög fáguð að mér er tjáð,
en ég gat því miður ekki verið við-
staddur þessa tónleika. Kirkjan mun
hafa verið þéttsetin áheyrenduin.
Haukur Guðlaugsson, sem nýlega
hélt tónleika í Þýzkalandi, og sagt er
frá í hlaðinu á öðrum stað, hélt tón-
leika í Skálholtskirkju sunnudaginn
15. sept. Ekki ætla ég að fjölyrða um
organleiks Hauks, eða meðferð lians
á einstökum verkum. Hins vegar hlaut
maður að finna til, á stundum, und-
an takmörkunum hljóðfærisins. Kirkj-
an er að mörgu leyti vel fallin til
tónleikahalds og ferðalagið austur og
að austan gæti verið „krydd“ ofan
á góða tónleika. En orgelið er ekki
„konsert-orgel“ fyrir þessa kirkju,
miklu nær er það að vera kór-orgel,
en það er sitt hvað. Að vísu er hljóð-
fauið afleitlega staðsett í kirkjjunni
upp á hljóm að gera, og get ég raun-
ar ekki séð að tónlistinni hafi verið
ætlaður sæmilegur staður í kirkjunni.
En það hreytir ekki því, að kirkjan
a*tti skilið orgel, sem fært væri um
að fylla hana hljómi, og þrátt fyrir
að Haukur nýtti hljóðfærið eins og
hægt var gat ekki farið hjá því, að
orgelið kiknaði undan verkefnunum
og sérstaklega þó undan C. Franek
og Reger.
Það er ekki venja að klappa í
kirkjum og þvi virðist það vera orð-
inn nokkur siður á Islandi að einhver
málhagur kirkjugestur standi upp eft-
ir kirkjutónleika og flytji mál nokk-
urt til heiðurs flytjanda tða flytjend-
um. Ekki efa ég að slíkt sé af ein-
lægni og góðum hug gert, en á tæp-
lega rétt á sér að Ioknum góðum tón-
leikum. Málið, sem góður tónlistarmað-
ur flytur (jafnvel þótt hljóðfærið sé
vanburða) er ofar öllum orðum og
tónleikagestir eiga rétt á því að hafa
það með sér ómengað út úr kirkjunni.
Kór lfallgrímskirkjunnar í Rvik
efndi til tónleika í Hallgrímskirkju á
uppstigningardag með fjölhreyttri efn-
isskrá. M. a. á efnisskránni var kan-
tata eftir A. Andersen og kantata
eftir E. Hovland fyrir sópran, bassa,
flautu, fiðlu, orgel og kór. Einleik-
arar voru Jósef Magnússon (flauta),
Jónas Dagbjjartsson (fiðla) og Páll
Kr. Pálsson (orgel). Einsöngvarar
voru Ruth Little Magnússon, Kristinn
Hallsson og Maríus Sölvason. Söng-
stjóri á tónleikum þessum var Páll
Halldórsson.
Sunnukórinn á Isafirði kom i söng-
ferð til suðurlands i júnímánuði og
hélt tónleika í Gamla Bíó. Tel ég
rétt að geta þess hér, þótt ekki hafi
verið um kirkjutónleika að ræða, en
Sunnukórinn er jafnhliða kirkjukór
Isafjarðarkirkju. Söngstjóri í ferð þess-
ari var Ragnar H. Ragnar skólastjóri
og organleikari á Isafirði.
R. B.
ORGANISTABLAÐIÐ 27