Organistablaðið - 01.12.1979, Blaðsíða 1
ORGANISTABLAÐIÐ
INNGANGUR
Organistablaðið hóf göngu sína í mai 1968.
í fyrsta blaðinu er grein eftir Pál ísólfsson. Þar setur
hann fram hugmyndir sínar um hlutverk b/aðsins og
getur þess m.a. að því sé ætlað að flytja lesendum
sínum fróðleik um orge/ið, þetta margs/ungna
hljóðfæri, sem stundum nálgist það að vera öll hljóðfæri
í senn, - um hlutverk þess í kirkju og menningarlífi og
um þróun þess. Lesendur ættu að fá að kynnast
nýjungum í orgelsmíði og verkum, sem samin eru og
hafa verið fyrir orgel, hljómsveitir og kóra.
Blaðið hefur nú komið út í rúman áratug og hefur vel til
tekist um útgáfu þess í heild. En því rifja ég upp
hugmyndir frumherja að þær eru enn í fullu gi/di og
minna okkur á einn af þeim stóru menningarlegu
þáttum, sem b/aðið er vettvangur fyrir. Efni hefur verið
fjölskrúðugt og margþætt, það tel ég ótvíræðan kost.
Orge/leikarar eru dreifðir um a/lt land og búa við mjög
mismunandi skilyrði, en þeim er samt nauðsynlegt að
halda hópinn, vinna saman, og kynnast störfum og
aðstöðu hvers annars. Þessvegna þurfa fréttir úr "bæ
og byggð" að berast blaðinu. Við sku/um minnast þess
að góðar fréttir eru stundum sniðgengnar í fjölmiðlum
nútímans en fréttir okkar b/aðs eiga að vera af
mennmgarlegum viðburðum víðs vegar um land, því má
ekki g/eymast að senda blaðnefndinni efnisskrár og ,
frásagnir af tónleikum.