Organistablaðið - 01.12.1979, Qupperneq 19
Frá fyrstu hendi
í þessum þætti verður sagt frá uppruna nokkurra vinsælla.lslenskra sönglaga -
hvar, hvenær og hvernig þau hafa orðið til. Með þessum upplýsingum fylgja
sýnishorn af rithönd tónskáldanna. Lögin eru "Sólskríkjan" eftir Jón Laxdal,
"Þótt þú langförull legðir", eftir Sigvalda S. Kaldalóns, "Mamma" eftir Sigurð
Þórðarsson, "I dag skein sól" og ”Ég kveiki á kertum mínum" eftir Pál (sólfsson,-
Heimilda er getið í þættinum.
Sólskríkjan
"Hann sagðist vera búinn að semja lag og hann mætti til með að lofa
einhverjum að heyra það."
Jón Laxdal var verslunarstjóri Leonh.Tangs verslunar á Isafirði 1 895-1908. Á
Isafirði stjórnaði hann söngkórum. Hann samdi þar mörg af sínum vinsælustu
Ibúðarhúsið i
Hæstakaupstaðnum.
lögum, m.a. lag við Aldamótaljóðin eftir Hannes Hafstein og var þaðfyrst sungið
við aldamóta-hátíðahald Isfirðinga 1. janúar 1901.
Frásögn sú, sem fer hér á eftir er úr ævisögu Guðlaugs Kristjánssonar, sem
Indriði Indriðason rithöfundur hefur skrifað. - Guðlaugur og Jón Laxdal voru
góðir kunningjar
"Guðlaugur heyrir Sólskríkjuna.
Það var fagurt og blítt vorkvöld og orðið nokkuð áliðið. Guðlaugur var að
koma neðan frá sjó, hafði hann verið að dútla við bát sinn. Honum varð
gengið framhjá húsi Laxdals. Glugginn var opinn á setustofunni, og sá
Laxdal til ferða hans. Hann kallaði til Guðlaugs og bað hann að koma inn
sem snöggvast. Guðlaugur þóttist ekki þannig klæddur, en hinn veifaði
öllum slíkum afsökunum til hliðar og kvað það engu máli skipta.
Þegar Guðlaugur kom inn, sat Jón viðorgelið. Hann var á skyrtunni með
vindil í munninum og vínglas við hlið sér. Hann bauð Guðlaugi sæti, glas
og vindil og settist svo við hljóðfærið aftur. Hann sagðist hafa verið að
semja lag og hann mætti til með að lofa einhverjum að heyra það. Hann
ORGANISTABLAÐIÐ 19