Organistablaðið - 01.12.1979, Page 31

Organistablaðið - 01.12.1979, Page 31
Þórarinn Guðmundsson Fiðluleikari fæddur 27.marz 1896, dáinn 25. júlí 1979. Mér er í fersku minni er ég ungur að árum og á fyrsta ári kennarastarfsins við Miðbæjarskólann í Reykjavík var meöal þeirra er þétt sátu Nýjabíó og hlustuðu á Beethóvens-hljómleika. Öllum viðstöddum var þessi stund stór og eftirminnileg því þennan eftirmiðdag 6. marz 1927 var verið að minnast aldardánardags eins hins stórbrotnasta tónlistarsnillings veraldar fyrr og síðar LUDWIGS VAN BEETHOVENS en hann andaðist í Vienarborg 26. marz 1827. Hljóðfæraleikararnir, sem efndu til þessara Beethovens-hljómleika, kynntu sig með nafninu - Hljómsveit Reykjavíkur - undir stjórn Sigfúsar Einarssonar dómorganista. Að ég rifja þetta upp kemur til af því, að einn í flokki hljóðfæraleikaranna vakti á sér sérstaka eftirtekt hlustenda vegna frábærrar leikni á hljóðfærið sitt. Þessi aðdáunarverði fiðluleikari virtist skipa mikið ábyrgðarsæti meðal fiðluleikaranna og það leyndi sér ekki að stjórnandinn ætlaðist til nokkurs af honum umfram aðra hljóðfæraleikara í hljómsveitinni. Hin tæra himneska list beinlínis sindraði frá þessum unga manni öllum viðstöddum til ógleymanlegrar ununar, endafékk þessi ágæti listamaður engan frið fyrr en hann var búinn að meðtaka hið ágætasta lof frá hughrifnum hlustendum. í lok hljómleikanna gerði ég mér grein fyrir, hver þessi skæra stjarna var, sem öll hjörtun átti í áheyrendasætunum, þar var sá ágæti maður Þórarinn Guðmundsson - sem hér verður lítillega minnst í málgagni Organistafélags Islands. Persónulega kynntist ég ekki Þórarni Guðmundssyni fyrr en mörgum árum eftir þessa stóru stund f Nýabíói 1927, en ég sá honum oft bregða fyrir er ég var á ferð um Miðbæinn og í hvert sinn, sem það bar við taldi ég, að mér yrði til mikils ávinnings í mínu fjölþætta tónlistarstarfi ef það auðnaðist mér að verða honum málkunnugur. Og að því kom rétt um miðjan áratuginn 1940. Ég var kvaddur til samstarfs viðkomandi dagskrárliðum Ríkisútvarpsins sem ætlaöir voru yngstu kynslóðinni. Þar átti ég að sjá um söng og þegar slíkt var taliö æskilegt og ef vel átti að vanda í þeim efnum var Þórarni Guðmundssyni falið að ORGANISTABLAÐIÐ 31

x

Organistablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.