Organistablaðið - 01.12.1979, Side 33
Baldur Jónsson
organisti
Baldur Jónsson, bóndi á Grýtubakka í Höfðahverfi og organisti við Grenivíkur-
kirkju, fæddist að Mýri í Bárðardal 18. júlí 1916. Foreldrar hans voru hjónin
Aðalbjörg Jónsdóttir og Jón Karlsson, sem lengi bjuggu á Mýri og komu þar upp
stórum og mannvænlegum barnahópi.
Systkinahópurinn á Mýri var ákaflega söngvinn, eins og hann átti kyn og
uppeldi til og söngur og hljóðfæraleikur var iðkaður þar af list og gleði. Baldur
lærði því að leika ofurlítið á hljóðfæri þegar á barnsaldri hjá föður sínum, er var
organisti í Lundarbrekkukirkju í mörg ár.
Síðar lærði Baldur hljóðfæraleik og tónfræði hjá bróður sínum, Páli H.
Jónssyni, söngkennara og tónskáldi á Laugum, og lék þá einnig á píanó. En sú
kennsla varð þó aldrei eins mikil og löngun stóð til, því að aðrar lífsannir kölluðu
að.
Árið 1 947 kvongaðist Baldur Arnbjörgu Aradóttur á Grýtubakka í Höfðahverfi
og hóf þar búskap. Þá gerðist hann organisti við Grenivíkurkirkju og var það í rúm
þrjátíu ár eða til dauðadags. Hann varðbráðkvaddur viðguðsþjónustu íkirkjunni
12. apríl 1979.
Baldur var einnig um árabil organisti við Laufáskirkju.
Tónlistarmenntun Baldurs var fyrst og fremst mikið og sívökult sjálfsnám með
óþreytandi áhuga á sönglist, og þar byggði hann á þeirri litlu tilsögn, sem hann
hafði notið áður. Hann var afar söngelskur, hafði fallega rödd og næmt tóneyra.
Jafnframt kirkjusöngnum á Grenivík æfði Baldur margs konar sönglög með kór
sínum, sem sungin voru við ýmis tækifæri. Kirkjukórinn var í
Kirkjukórasambandi prófastsdæmis S.-Þing. og tók þátt í flestum eða öllum
söngmótum sambandsins, síðast í mjög fjölmennu söngmóti á Laugum 9. apríl
1978.
ORGANISTABLAÐIÐ 33