Organistablaðið - 01.12.1979, Qupperneq 43
Kór Langholtskirkju hélt jólatónleika í
Landakotskirkju 1 5. des. Stj. Jón
Stefánsson. Einsöngvari Ólöf Kolbrún
Harðardóttir.
Passíukórinn á Akureyri og hljómsveit
tónlistarskólans þar héldu tónleika í
Víkurröst á Dalvík 1 5., og í Akureyrarkirkju
17. des. Stjórnendur voru Michael Clarke
og Roar Kvam. Á efnisskrá var Branden-
burgarkonsert nr. 5 eftir J.S.Bach og Gloria
í D-dúr eftir Antonio Vivaldi. (A.V. var
fæddur 1678, og var þetta þvítilaö minnast
þriggja alda afmælis).
Aðventukvöld í Hvammstangakirkju 17.
des. Hljóðfæraleik önnuðust nemendur úr
Tónlistarskóla Vestur-Húnavatnssýslu.
Kirkjukórinn söng undir stjórn Helga S.
Ólafssonar.
Kirkjukór Akraness hélt Aðventutónleika í
Landakotskirkju 1 7. des.
Árnesingakórinn í Rvík., undir stjórn Jóns
Kristins Cortes hélt ferna tónleika 16. og
17. des., Guðni Þ. Guðmundsson aðstoðaði
með orgelleik. Tónleikarnir fóru fram í
Hveragerðiskirkju, Stokkseyrarkirkju,
Fríkirkjunni í Rvík. og Kópavogskirkju. Á
efnisskrá voru eingöngu lög helguð
jólunum, bæði þekkt og sjaldheyrð.
Jólasöngvar í Dómkirkjunni 21. des. Hinn
nýstofnaði dómkór söng. Elín Sigurvins-
dóttir söng einsöng og Marteinn Hunger
Friðriksson lék einleik á orgelið.
Aðventukvöld. Hótel Loftleiöir auglýstu 3.
des.: ''Við kveikjum á fyrsta kerti
Aðventukransins sunnudagínn 3. des".
Síðan er getið skemmtiatriða og loks er
matseöill:
Rækjusalat í grape aldin
Fylltur lambahryggur f rjómasósu
Sherry rjómarönd
Tónleikar í Reykjavík
Ragnar Björnsson hélt orgeltónleika f
Flladelflukirkjunni 5.jan. Hann lék verkeftir
J.S.Bach. Árni Arinbjarnarson kynnti
tónverkin.
Mary Jeane Rasmussen hélt tónleika í
Fíladelfíukirkjunni 28. febr. Hún starfar nú
sem aðalorganleikari við Heiligen kreuz-
kirkju í Austurríki.
Kór Langholtskirkju stj. Jón Stefánsson
söng messu í c-moll eftir Mozart á tvennum
vortónleikum sínum í Háteigskirkju 13. og
14. apríl. Einsöngvarar voru Ólöf Kolbrún
Harðardóttir, Elfsabet Erlingsdóttir, Garðar
Cortes og Halldór Vilhelmsson. Tuttugu
manna hljómsveit skipuð hljóðfæraleikur-
um úr Sinfóníuhljómsveit islands
aðstoöaði.
Háteigskirkja. Dr. Orthulf Prunner hélt
Bach- tónleika í Háteigskirkju 28. júní.
David Pizarro organleikari frá New Vork
hélt tónleika I Landakotskirkju 16. okt.
Hann lék verk eftir þýska, franska,
tékkneska og bandaríska höfunda.
Úr bæ og byggð
Árleg kirkjuvika f Lágafellskirkju byrjaði á
90. afmælisdegi Lágafellskirkju 24. febr. og
fór fram með sama sniði og undanfarin ár.
Kirkjuvikan á Akureyri hófst 21. mars.
Árlegt kirkjukvöld Bræðrafélags
Dómkirkjunnar var 1 2. apríl I umsjá félaga
úr Frímúrarareglunni.
Kór Fteykjahlíðarkirkju 70 ára. Kórinn
minntist afmælisins með samsöng (
kirkjunni. Söngstjóri er Jón Árni
Sigfússon. Undirleik annaðist sr. Örn
Friðriksson.
Hinn 10. des. 1978 voru liðin 70 ár frá
vfgslu Hólskirkju f Bolungarvfk. Var þess
minnst með hátíöarguðsþjónustu og að
kvöldi afmælisdagsins var samkoma í
kirkjunni. Kirkjukórinn söng undir stjórn
Sigríðar J. Norðkvist, sr. Gunnar Björnsson
flutti erindi, sem hann nefndi "Horft um öxl
á Hóli". Hann lékeinnig á selló. Ennfremur
var einsöngur og tvísöngur.
ORGANISTABLAÐIÐ 43