Organistablaðið - 01.11.1983, Side 2

Organistablaðið - 01.11.1983, Side 2
Jindrich Keller. hljóðfe *ri meö breytanlegri og óbreytanlegri stillingu. Reynslan og fræðilegar ályktanir leiddu i Ijós, að langheppilegsti tónninn er a í einstrikaðri áttund. Enn í dag heyrum við óbóleikara leika hann á undan öllum sinfóníutónleikum, því að óbó eru langtraustust að stillingu. Tónlistarmenn vöndust því að kalla þennan tón „kammer-a“ eða litla a-ið. Þetta táknaði, að fyrir tóninn a1 er ákveðinn fjöldi tvöfaldra hljómsveiflna, en seinna var farið að kalla þær Herz (eftir þýskum eðlisfræðingi og skammstafað Hz). Þetta kammer-a var mikil framför. Nú á dögum er auðvitað miklu meira vitað um hljómburð og þess vegna breyttu fræðimennirnir sérfræðiheitakerfinu. í stað lykilheitisins „kammer-a“ nota þeir skýringarhugtakið tíðnigrundvöllur. Með einföldum útreikningum er unnt að ákveða sveiflufjölda fyrir a1 og leiða af því viðurkenndan sveiflufjölda fyrir hvern tón til viðbótar. Fyrstu alvarlegu tilraunirnar til samræmingar á stillingu hljóðfæra voru gerðar í Frakklandi. Samkvæmt samkomulagi í París árið 1778 var hæðin ákveðin 409 Hz. Eins og sjá má hefur tilteknum fjölda hljómsveiflna fjölgað stöðugt eða fastákveðin stillingarhæð aukist. T.d. hefur verið skráður sveiflufjöldinn eins og hann var í Stóru óperunni í París. 1819 a1= 434 Hz 1856 a1 = 445,8 Hz 1858 a1 = 448 Hz Á þessum tímum gátu hljóðfærasmiðirnir enn ráðið algerlega hvaða stillingu þeir notuðu. Meira að segja gilti mismunandi samkomulag um stillingu hinna ýmsu hljóðfæra. Hinum miklu slaghörþufyrirtækjum var það beinlínis metnaðarmál að miöa stillingu sína við besta og árangursríkasta kammer-a-ið. i RC iAN I S'I'AHIvAf-) IT)

x

Organistablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.