SunnudagsMogginn - 25.04.2010, Page 18

SunnudagsMogginn - 25.04.2010, Page 18
18 25. apríl 2010 L jóst er að mikil vinna við end- urreisn trausts og hug- myndafræði er framundan á vegum stjórnmálaflokkanna, nú í kjölfar þess að skýrsla rannsókn- arnefndar Alþingis hefur verið gerð op- inber. Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins ákvað á fundi sínum á þriðjudag að efna til landsfundar seinnipartinn í júnímánuði, sem verður styttri en hefðbundnir lands- fundir, einn eða tveir dagar. Á landsfund- inum verður ný forysta flokksins kjörin og samkvæmt samtölum við fjölda sjálfstæð- ismanna, bæði úr flokksfélögum, flokks- ráði, þingflokki og miðstjórn, er talið nánast öruggt að Bjarni Benediktsson verði endurkjörinn formaður flokksins og líklegt að Kristján Þór Júlíusson verði kjörinn varaformaður. Ákveðinn hópur sjálfstæðisfólks er þó þeirrar skoðunar að Hanna Birna Krist- jánsdóttir borgarstjóri geti orðið varafor- maður, en hvort hún ljær máls á slíku mun ekki skýrast fyrr en að loknum sveit- arstjórnarkosningum. Sjálfstæðisflokkurinn efndi til flokks- ráðsfundar í Stapa í Reykjanesbæ á laug- ardaginn fyrir viku, þar sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði af sér varafor- mennsku í flokknum og vék tímabundið til hliðar frá þingmennskunni. Degi áður hafði Illugi Gunnarsson, for- maður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, gert hið sama, er hann með yfirlýsingu til- kynnti að hann tæki sér leyfi frá þing- störfum á meðan sérstakur saksóknari hefði til skoðunar störf stjórnarmanna í Peningamarkaðssjóði 9 hjá Glitni, en rannsóknarnefnd Alþingis hafði beint slíkri skoðun til sérstaks saksóknara. Einlæg og hreinskiptin Af samtölum við flokksráðsmenn, sem sátu fundinn í Stapa fyrir viku, má ráða að þeim hafi þótt ræður þeirra Bjarna Bene- diktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, fráfarandi varaformanns flokksins, góðar, þótt á mismunandi forsendum sé. Þorgerður Katrín er sögð hafa verið afar einlæg og hreinskiptin í sinni ræðu, þegar hún lýsti því hvers vegna hún hefði Ætlum að vera í flokki sem gerir hlutina rétt Fréttaskýring Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Bjarni Benediktsson talinn hafa sterka stöðu eftir flokksráðs- og miðstjórnarfundi Sjálfstæðisflokksins Líklegt talið að Kristján Þór Júlíusson verði kjörinn varaformaður á landsfundi flokksins í sumar Hanna Birna Kristjánsdóttir einnig talin koma til greina sækist hún á annað borð eftir kjöri

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.