Morgunblaðið - 24.02.2010, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 24.02.2010, Blaðsíða 13
Fréttir 13VIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2010 Í HNOTSKURN »Skilanefnd samþykkirkröfur fyrrverandi starfs- manna um áunnið orlof. »Kröfum framkvæmda-stjórnar er öllum hafnað. Hæsta einstaka krafa fram- kvæmdastjóra hljóðaði upp á 490 milljónir. »Hæsta, samþykkta launa-krafan er 3,9 milljónir. Eftir Þórð Gunnarsson thg@mbl.is SKILANEFND Landsbankans hef- ur tekið afstöðu til langflestra launa- krafna sem lýst var í þrotabú bank- ans. Alls hafa tæplega 500 launakröfur verið samþykktar, en í engu tilfelli var gegnið að ýtrustu kröfum fyrrverandi starfsmanna. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er langstærstur hluti þeirra launakrafna sem samþykktar voru tilkominn vegna uppsafnaðs orlofs fyrrverandi starfsmanna. Þetta kemur fram í skrá sem birt var á lok- uðu vefsvæði kröfuhafa í gær, en skilanefnd mun kynna kröfuhöfum afstöðuna á fundi sem verður hald- inn á Hilton Nordica í dag. Framkvæmdastjórum hafnað Í skránni kemur fram að öllum kröfum fyrrverandi starfsmanna sem gegndu starfi framkvæmda- stjóra var hafnað. Hæstu kröfuna meðal framkvæmdastjóra átti Stein- þór Gunnarsson, en hann lýsti tveim- ur kröfum upp á samtals 490 millj- ónir króna í þrotabúið. Kröfum Yngva Arnar Kristinssonar upp á samtals tæpar 230 milljónir var einn- ig hafnað. Yngvi hefur lýst því yfir að hann hyggist gefa allt það fé sem honum hlotnast úr þrotabúi Lands- bankans til góðgerðarmála. Eins og áður sagði fær enginn þeirra fyrrverandi starfsmanna sem lýsa kröfu í búið kröfu sína sam- þykkta að fullu, en svo virðist vera sem flestir fái á bilinu 70-80% kraf- innar upphæðar samþykkta. Sá starfsmaður sem fær hæstu kröfuna samþykkta er Steinþór Baldursson, sem gegnir í dag starfi fram- kvæmdastjóra Vestia, eignaum- sýslufélags NBI. Steinþór lýsir kröfu upp á tæplega 6,6 miljónir króna í þrotabú Landsbankans, en fær tæplega 3,9 milljónir samþykkt- ar af skilanefndinni. Lægsta krafan sem samþykkt var hljóðaði upp á 3.605 krónur. Skilanefnd sam- þykkir launakröfur  Framkvæmdastjórum hafnað  Áunnið orlof samþykkt Morgunblaðið/Golli Landsbankinn Skilanefnd bankans hefur tekið afstöðu til langflestra launa- krafna og samþykkir í meginatriðum aðeins kröfur vegna áunnins orlofs. UPPI er ágrein- ingur milli lífeyr- issjóðsins Stafa og slitastjórnar Landsbankans vegna milli- færslu upp á 5,5 milljónir dollara sem átti að fara fram þann 6. október 2008, sama dag og Landsbankinn féll. Stafir lýsa kröfu upp á ríflega 800 milljónir króna í þrotabú bankans vegna málsins. Í fundargerð slita- stjórnar og Stafa vegna fundar sem haldinn var fyrir um mánuði kemur fram að Stafir hafi undir höndum kvittun vegna millifærslunnar, en fjárhæðin átti að renna inn á reikn- ing Stafa hjá Kaupþingi. Stafir segja greiðsluna aldrei hafa skilað sér til Kaupþings, og lögmenn líf- eyrissjóðsins lögðu fram formlegt skjal frá Kaupþingi þess efnis að peningarnir hefðu aldrei borist. Slitastjórn hefur hafnað kröfunni að svo stöddu. Ólafur Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Stafa, segir að milli- færslan sem lífeyrissjóðurinn ætl- aði sér að framkvæma hafi verið fullkomlega eðlileg. Millifærslan var ætluð til uppgjörs á fram- virkum samningum við Kaupþing, sem voru gerðir voru við bankann um það bil viku áður. thg@mbl.is Segja millifærslu eðlilega Vildu færa fé til 6. október 2008 Krónur og dollarar Eftir Örn Arnarson ornarnar@mbl.is ÞAÐ GETUR verið misvísandi að bera saman kjör á gjaldeyrislánum Norðurlanda annars vegar og þeim breytilegu vöxtum sem bresk og hollensk stjórnvöld buðu Íslendingum á dögunum vegna lánsins í tengslum við lausn Icesave-deilunnar hins vegar. Vaxtaálagið er í báðum tilfellum 275 punktar ofan á grunnvexti en sá eðlismunur er á lánunum að eign kemur strax á móti Norðurlandalánunum en því er ekki að skipta vegna Icesave-lánsins. Lánin frá Norðurlöndum nema ríflega 300 millj- örðum króna og eru veitt í tengslum við efnahags- áætlun íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins. Grunnvextir lánanna miðast við þriggja mánaða EURIBOR-vexti sem eru nú um 0,6%, þannig að vextirnir á lánunum eru nú um 3,4%. Líkt og láninu frá AGS er Norðurlandalánunum ætlað að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans og þar af leiðandi myndar lánsupphæðin vaxtaberandi eign á meðan hún er ekki nýtt til þess að styðja við gengi krónunnar. Þar sem gjaldeyrisforðalánin þurfa að vera bundin í auðseljanlegum eignum bera þau ekki háa vexti en að sama skapi ættu þau alla jafna að minnsta kosti að bera sambærilega vexti og grunnvextirnir sem álagið er reiknað ofan á. Ólík lánafyrirgreiðsla Eðli Icesave-lánafyrirgreiðslunnar er hins vegar gjörólíkt. Það er að segja að því leyti að nú þegar er búið að ráðstafa láninu af hálfu breskra og hol- lenskra stjórnvalda og þar af leiðandi er engin eign í sjálfu sér sem kemur á móti vaxtabyrðinni önnur en eign í Landsbankanum að hámarki 650 millj- arðar. LIBOR-vextir á láni í sterlingspundum til þriggja mánaða standa einnig í 0,6% um þessar mundir. Reynist væntingar á fjármálamarkaði rétt- ar og vaxtakostnaður hækki umtalsvert á komandi árum myndi það hafa gjörólík áhrif á greiðslubyrð- ina af gjaldeyrislánunum frá Norðurlöndum annars vegar og Icesave-láninu hins vegar þó svo að þau beri sama vaxtaálag. Greiðslubyrðin af fyrrnefnda láninu yrði bærilegri þar sem vextir af þeirri eign sem kemur á móti láninu myndu einnig hækka þannig að áhrif á vaxtabyrðina yrðu hverfandi. Því yrði ekki að skipta í tilfelli Icesave-lánsins nema að litlu leyti þar sem vaxtaþróun hefur ekki nema tak- mörkuð áhrif á mögulegar endurheimtur lána- safnsins, sem umtalsverð óvissa ríkir um, og eins og fyrr segir takmarkast heimturnar handa íslenska ríkinu við 650 milljarða. Álagið skiljanlegt beri íslensk stjórnvöld alla ábyrgð Í sjálfu sér er hægt að færa rök fyrir því að 300 punkta vaxtaálag sé ásættanleg kjör fyrir ís- lenska ríkið um þessar mundir. Það er til að mynda sambærilegt því álagi sem er á grískum ríkisskuldabréfum til tíu ára um þessar mundir samanborið við ávöxtunarkröfu á þýsk rík- isskuldabréf. Hins vegar er hægt að færa fyrir því rök að slíkt álag á Icesave-láninu fái aðeins staðist gangi menn út frá því að íslensk stjórnvöld beri ein og sér alla ábyrgð á því hvernig fór með þá reikninga. Fallist menn ekki á það hlýtur þá sú af- staða að fela í sér kröfu um að vaxtaálagið verði umtalsvert lægra en til að mynda á gjaldeyrisl- ánunum frá Norðurlöndum auk þess sem áhættu- dreifing vegna eignasafns Landsbankans og gjaldeyrisáhættu verði útfærð með öðrum hætti en rætt hefur verið um. Eign á móti lánum skiptir sköpum  Eign myndast strax á móti gjaldeyrislánum Norðurlanda  Þessu er ólíkt farið með Icesave-lánið og það hlýtur að ráða miklu um hvaða vaxtaálag telst ásættanlegt Morgunblaðið/Golli Sumar ferðir eru til fjár Stuðningsmenn hollenska landsliðsins í fótbolta í blíðviðri á Austurvelli. Eign kemur strax á móti gjaldeyrislánum frá Norðurlöndum en málið er flóknara þegar kemur að lánveitingum Breta og Hollendinga vegna Icesave. ● ÚTGJÖLD hins opinbera nærri tvö- földuðust, jukust um 91%, á föstu verðlagi frá árinu 1980 til ársins 2008, að því er fram kemur hjá Hagstofunni. Miðað við verðvísitölu samneyslunnar hafa útgjöld hins opinbera vaxið úr 1.087 þúsund krónum á mann árið 1980 í 2.071 þúsund árið 2008. Á sama tíma jukust útgjöld ríkissjóðs úr 875 þúsund krónum á mann í 1.492 þúsund krónur og er vöxturinn rúmlega 70%. Útgjöld sveitarfélaga á mann hafa aukist mun meira, eða nánast þrefald- ast (185% vöxtur) á tímabilinu á þenn- an mælikvarða. Útgjöldin námu 226 þúsund krónum á mann 1980 en voru 646 þúsund krónur árið 2008. Útgjöld almannatrygginga hafa vaxið úr 217 þúsund krónum á mann 1980 í 341 þús- und krónur árið 2008 og er raunvöxt- urinn því 57% á umræddu tímabili. Tvöföld opinber útgjöld ● TM, Trygginga- miðstöðin, vill árétta að at- hugasemd Fjár- málaeftirlitsins (FME) við viðskipti félagsins varðar lágverðs- vörumerkið El- ísabetu, sem er skrásett vörumerki í eigu TM. Á vef FME kemur fram að gerðar hafi verið at- hugasemdir við viðskipti tveggja trygg- ingafélaga. Athugasemd FME laut að framsetn- ingu auglýsinga og því að ekki hefði komi fram með nógu skýrum hætti að vörumerkið Elísabet væri í eigu TM. TM segir að brugðist hafi verið við at- hugasemdunum innan tilskilinna tíma- marka. FME gerir athugasemd ● VÍSITALA Gamma yfir skuldabréf, Gamma: GBI, hækkaði um 0,2% í gær í 6,2 milljarða króna viðskiptum. Verð- tryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,3% í 2,7 milljarða viðskiptum, en óverðtryggð skuldabréf lækkuðu lít- illega í 3,6 milljarða króna veltu. Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,25% og nam velta með hlutabréf 24 millj- ónum króna. Hækkuðu bréf í Færeyja- banka um 1,73% í verði, en bréf Öss- urar lækkuðu í verði um 0,3%. Lítil læti í Kauphöll Stuttar fréttir… ● FJARÐARKAUP hlutu hæstu ein- kunn allra fyr- irtækja og hæstu einkunn sem mælst hefur í Ís- lensku ánægju- voginni frá upp- hafi, en niðurstöður voru kynntar í gær. Hlaut fyrirtækið 91,3 af 100 mögulegum. Í öðru sæti í flokki smásöluverslunar varð ÁTVR, með 73,1 stig. Þetta er ellefta árið sem ánægja við- skiptavina íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti. Í fyrsta sæti í flokki banka og sparisjóða var Sparisjóð- urinn með einkunnina 78,6, í öðru sæti varð Byr sparisjóður með 69,9 og í því þriðja varð Íslandsbanki með 54,5. Í flokki tryggingafélaga var Vörður í fyrsta sæti með 68,4, í öðru sæti varð TM með 68 stig og því þriðja VÍS með einkunnina 63,7. HS orka var í fyrsta sæti raforkusala með 69,8, Fallorka í öðru sæti með 68,8 og Orkuveita Reykjavíkur í því þriðja með 67 stig. Nova var í fyrsta sæti í flokki farsímafyrirtækja með ein- kunnina 79,4, en þar á eftir komu Voda- fone með 66, Tal með 65,6 og Síminn 63 stig. Að þessu sinni voru 25 fyrirtæki í fimm atvinnugreinum mæld. Nið- urstöður byggjast á svörum rúmlega 6.000 manns, eða um 250 við- skiptavina hvers fyrirtækis. ivarpall@mbl.is Fjarðarkaup efst

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.