SunnudagsMogginn - 05.12.2010, Page 16

SunnudagsMogginn - 05.12.2010, Page 16
16 5. desember 2010 hver fyrir öðrum. Virðing er mjög mikilvæg í mafíunni. Þetta er merkilegt samstarf og teygir anga sína víða eins og allar góðar mafíur,“ segir Bragi með áherslu á góðar. Samstarfið er sumsé gott enda hefur það gengið lengi. „Kiddi er svo mikill samstarfsmaður að hann gat ekki farið í drottningarviðtal nema draga okkur með,“ ítrek- ar Bragi. Talið berst að miklum afköstum Memfismafíunnar. „Við höfum gert mikið af allskonar hlutum, poppi, rokki, barna- og jólalögum. Við erum búnir að kópera hin ýmsu lög með Baggalúti,“ segir Siggi og er það ákveðinn skóli og hópurinn því góður í stílæfingum. „Ef okkur vantar ákveðið sánd kunnum við leiðina að því. Hver plata þarf því ekki að taka langan tíma.“ Bragi samsinnir: „Við rötum um tónlistarheiminn.“ Leitað var eftir þeirra sýn á íslenskunotkun mafíunn- ar. Textasmiðurinn Bragi svarar fyrst: „Til lengri tíma lit- ið, á meðan það er ennþá töluð íslenska hérna, hefur tónlist á íslensku lengri líftíma. Fólk tengir best við tungumál, sem það talar, skilur og hugsar á.“ Siggi minnir á að tungumálið er ekki staðnað fyr- irbæri. „Ég held að það sé líka mjög mikilvægt fyrir hverja kynslóð að bæta í. Það er ekkert gaman að vera sífellt að syngja texta eftir Jónas. Það er bara ákveðin heimild um tungumál á ákveðnum tíma. Málið breytist og þróast.“ Bragi Á samt Kidda skipa Bragi Valdimar Skúlason og Sigurður Guðmundsson þríeykið sem starfar hvað mest saman í Memfismafíunni og líkar þeim samvinnan vel. Sigurður, sem er jafnan kallaður Siggi, byrjar að út- skýra þessi tengsl: „Við erum allir á sitthvorum stað en svo þegar við komum saman er samhugur og það mynd- ast fljót. Það gerist allt hratt og við þurfum lítið að tala saman. Við vitum muninn á óþolandi og smekklegu gít- arstefi. Menn gera sér grein fyrir því hversu langt má ganga hverju sinni.“ Bragi tekur við: „Þetta er suðupottur og svo sér Kiddi um að velja hráefnið í súpuna hverju sinni. Menn koma úr ólíkum áttum og ég held að það sé kostur. Við náum að virkja styrkleika hvers og eins í skemmtilegheit- unum,“ segir hann og Siggi tekur við. „Það er einhvern veginn enginn alveg aðal. Enginn sem hefur alvald þannig, þó að Kiddi verði alltaf að fá að ráða á endanum,“ segir hann hlæjandi. „Það eru allir álíka réttháir og bera gríðarlega virðingu Siggi Rata um tónlistarheiminn ’ Þetta er suðupottur og svo sér Kiddi um að velja hráefnið í súpuna hverju sinni. Menn koma úr ólíkum áttum og ég held að það sé kostur. Við náum að virkja styrkleika hvers og eins í skemmti- legheitunum. Myndirnar eru fengnar að láni úr safni Memfismafíunnar. Til vinstri má sjá íbúa Diskóeyjunnar en til hægri er Baggalútur í sveitalagaham.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.