SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Blaðsíða 2

SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Blaðsíða 2
2 9. október 2011 Við mælum með 12.-16. október. Tónlistarhátíðin Iceland Airwa- ves fer fram í Reykjavík. Meðal þeirra sem koma fram eru Jó- hann Jóhannsson, Hjaltalín, Lay Low, HAM, Reykjavík!, Árstíðir, Jónas Sig og Ritvélar framtíð- arinnar, Lára, Saktmóðigur, Angist, Carpe Noctum, Náttfari og Gímaldin og félagar og skoska nýrokksveitin The Twi- light Sad. Morgunblaðið/Eggert Iceland Airwaves 16 Með blik í auga Karen Ingvarsson fæddist á Íslandi fyrir 88 árum. Hún gekk í dönsku andspyrnuhreyfinguna í stríðinu og var heiðruð á Ólympíuleikum. 24 Dagbók frá veröld sem var Bandaríski herljósmyndarinn Emil Edgren var iðinn við kolann á Íslandi á stríðsárunum. Myndir hans eru komnar á bók. 30 Komin skrefinu lengra Söngkonan Lay Low sendir frá sér plötu með lögum við ljóð íslenskra skáldkvenna. Hún ræðir einnig um erfið veikindi. 33 Ferðalög og fjör Magnús Kjartansson tónlistarmaður opnar myndaalbúmið. 34 Grjótkrabbi og aðrar krásir Matarhátíðin Krásir í Kjósinni verður haldin í fyrsta skipti í kvöld, laug- ardagskvöld. Þar verða á borðum krásir frá býlum á svæðinu. Lesbók 42 Viðamikil og glæsileg listasaga Umsögn Einars Fals Ingólfssonar um nýútkomna Íslenska listasögu. Hann segir verkið í raun skyldueign á hverju heimili. 44 Enginn sér í rauninni ána Í bókinni Hvernig ég kynntist fiskunum rekur tékkneski rithöfundurinn Ota Pavel æskuminningar sínar sem tengjast fiskveiðum í ám. Efnisyfirlit Forsíðumyndin er af Björk Guðmundsdóttur Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson,Börkur Gunnarsson, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristín Heiða Kristinsdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Silja Björk Huldudóttir, Skapti Hallgrímsson. 13 38 Augnablikið Þ að voru skrímsli innan um gesti á opnun sýningar Errós í Schirn-listasafn- inu í Frankfurt á mið- vikudag, sem sett var upp í tengslum við þátttöku Íslands í bókastefnunni í Frankfurt. En það átti sér eðlilega skýringu, því skrímslin var að finna í verkum listamannsins, en þetta er í fyrsta skipti sem skrímslasería Errós er sýnd eins og hún leggur sig. Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra Íslands í Þýskalandi, opnaði sýninguna að viðstöddu fjölmenni. Á sýningunni eru einnig víð- áttuverk og nokkrar bíómyndir, auk þess sem gefin er út vegleg sýn- ingarskrá. Sýning Gabríelu Frið- riksdóttur hafði áður verið opnuð í listasafninu, en þar eru handrit frá Árnastofnun í öndvegi. „Það var troðfullt á blaðamanna- fundi um morguninn og gaman að átta sig á því hversu stór og mikill viðburður þetta er í menningarlíf- inu ytra,“ sagði Soffía Karlsdóttir, deildarstjóri markaðs- og kynning- armála hjá Listasafni Íslands. pebl@mbl.is Harald Falckenberg og eiginkona hans Dr. Larissa Hilbig með Erró og Max Hollein. Harald á og rekur stórt gallerí í Hamborg og á tugi verka eftir Erró. Skrímsli á listsýningu Arthúr Björgvin Bollason með ræðismanni Íslands í Frankfurt, Helmut K. Holz og eiginkonu hans. Erró og listamaðurinn og rithöfundurinn Jean-Jacques Lebel. 12. október. Biophiliu- tónleikar Bjarkar í Hörpu. Á tón- leikunum mun Björk flytja lög af væntanlegri plötu sinni, auk laga sem fest hafa hana í sessi sem listamann í gegnum árin. Hópur af frábæru tónlistarfólki, þ.á m. Graduale Nobili, tekur þátt í flutningnum. 13. október. Sinfón- íuhljómsveitin tekur í fyrsta sinn þátt í Ice- land Airwaves. Á þrennum tón- leikum hljóma verk eftir ung ís- lensk tónskáld, auk þess sem einn fremsti nútímatónlist- arhópur Bandaríkjanna flytur eitt af verkum Steves Reichs. Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is Elica háfar

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.