SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Blaðsíða 27

SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Blaðsíða 27
9. október 2011 27 ríkjum að tryggja lýðræðið í sessi. Grikkir fá grænt ljós árið 2000. Fram- kvæmdastjórn Evrópusambandsins og seðla- banki Evrópu komast þá að þeirri niðurstöðu að Grikkir hafi bætt sig verulega. Reyndar eru skuldir þeirra rúmlega 100% yfir þjóð- arframleiðslu og langt yfir viðmiðinu um að þær eigi ekki að fara yfir 60% og þá þegar leikur grunur á að opinberu tölurnar frá Grikklandi séu ekki áreiðanlegar. Í Þýskalandi var meirihluti í öllum flokk- um fyrir því að Grikkir tækju líka upp evru, en þýskur almenningur var ósáttur og vildi halda í þýska markið. Der Spiegel rifjar upp að 1992 skrifuðu 62 prófessorar undir yfirlýs- ingu þar sem þeir sögðust óttast að mynt- bandalagið myndi eins og það væri uppbyggt leiða til mikilla hagsveiflna í Vestur-Evrópu. Án sameiginlegrar viðskipta- og efnahags- stefnu fengi sameiginleg mynt ekki staðist. 60% Þjóðverja voru á móti evrunni. Meg- inástæðan var ótti við að þeir myndu sitja uppi með að þurfa að borga skuldir annarra ríkja. 1998 samþykktu þýskir stjórnmálamenn engu að síður að láta skeika sköpuðu. Gagn- rýnendur voru ekki vel séðir. Hans Reckers, einn af stjórnarmönnum þýska seðlabank- ans, leyfði sér að segja að Grikkir væru ekki tilbúnir fyrir myntbandalagið og fresta bæri inngöngu þeirra um minnst eitt ár. Hann hafði varla sleppt orðinu þegar allt byrjaði að nötra á gríska verðbréfamarkaðnum. Eichel fjármálaráðherra lét koma þeim boðum til Reckers að hann skyldi ekki tjá sig frekar um málið. Reckers segir hins vegar að allir 15 bankamennirnir í stjórn bankans hafi verið þeirrar hyggju að það væru mistök að leyfa Grikkjum að vera með. Efasemdir bak við tjöldin Efasemdirnar þýskra bankamanna og sér- fræðinga um evruna heyrðust yfirleitt aðeins bak við tjöldin, en bandarískum hagfræð- ingum leist ekki á blikuna. Einn þeirra var Kenneth Rogoff, prófessor við Harvard, sem á þeim tíma var yfirhagfræðingur Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins. Rogoff sagði augljóst að myntbandalag án pólitísks bandalags og miðstýringar útilokaði að hægt væri að bregðast hratt við vandamálum á myntsvæð- inu. Hann segir að milli evrópskra og banda- rískra hagfræðinga hafi myndast gjá. Evr- ópumennirnir hafi haldið fram að starfssystkin þeirra hinum megin við Atl- antshafið skildu ekki hið sögulega samhengi og hvílíkt framfaraspor evran væri, en Bandaríkjamennirnir töldu félaga sína blinda á veruleikann. Rogoff taldi reyndar að margt gott væri í regluverkinu um evruna, til dæmis að skuld- ir mættu ekki fara yfir 60% af þjóðarfram- leiðslu. Gallinn var bara sá að ekki var farið eftir reglunum. Rogoff bendir á að til þess að Ítalir virtust tilbúnir hafi verið fallist á að þeir tækju svarta markaðinn með í mælingu þjóð- arframleiðslu „og það er auðvitað brandari“. Hann segir að Grikkir hafi verið 50 til 100 ár- um á eftir þróuðu iðnríkjunum og langt frá því að uppfylla Maastricht-skilyrðin. Það hafi verið út í hött að gefa sér að evran myndi Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og Georgios Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, heilsast með bros á vör. Samtöl þeirra bjóða þó sennilega ekki upp á mikil gamanmál þessa dagana. Mótmælandi með gasgrímu gengur fram hjá alelda sendiferðabíl í Aþenu. Í sumar kom ítrekað til átaka í mótmælum í Grikklandi. Efnahagsástandið í Grikklandi hefur dregið fram brestina í evrusam- starfinu og gæti ekki bara orðið afdrifaríkt fyrir efnahagsástandið í Evrópu heldur um allan heim. ’ Helstu evruloforðin fjögur, sem sett eru fram í Maastricht- sáttmálanum, voru öll brotin: böndum var ekki komið á ríkisskuldirnar heldur tvö- földuðust þær, aðeins fimm ríki af 15 eru undir 60% mörkunum, þak var ekki sett á fjárlagahallann, aðeins fjögur ríki eru undir mörk- unum, og bannið við björgun einstakra ríkja var brotið því að evrópski seðlabankinn er ekki lengur sjálfstæður held- ur ruslbanki fyrir aðþrengd ríkisskuldabréf.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.