Monitor - 02.06.2011, Qupperneq 18
18 Monitor FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2011
Alt muligt
Körfuboltastjörnunni Shaquille O‘Neal
er fleira til lista lagt en að troða yfir
andstæðinga sína inni á körfuboltavelli.
Sh q
maðurinn
Í nýliðavali NBA-deildarinnar árið 1992, fyrir bráðum 20
árum, var risavaxinn strákur valinn í lið Orlando Magic
og hefur íþróttasenan vestanhafs ekki verið söm síðan.
Flestir þekkja tröllvöxnu körfuboltastjörnuna Shaquille
O‘Neal, 216 cm á hæð og
147 kg, en körfuboltamað-
urinn hefur einnig látið að
sér kveða á öðrum sviðum
með áhugaverðum árangri.
Stóri-Aristóteles
Shaq hefur um áraraðir
verið uppáhald íþrótta-
blaðamanna í Bandaríkj-
unum en fyndin uppátæki
hans á blaðamannafund-
um eru endalaus. Má þar
nefna tilfelli þar sem hann
hefur gert óspart grín að
blaðamönnum en einnig
sjálfum sér. Oftast talar
hann þó vel um sjálfan sig
og hefur hann til dæmis kallað sjálfan sig Stóra-Aristó-
teles, enda virðist hann eiga nóg af viskumolum uppi í
erminni. Á netinu má einmitt finna heilu síðurnar með
tilvitnunum í Shaq, svo sem: „Leikurinn minn er eins og
regla Pýþagórasar. Það er engin lausn við honum.“
Þótt tilvitnunin gefi ekki til kynna að maðurinn hafi
lært mikla stærðfræði hefur hann þó lokið við masters-
gráðu í háskóla og fyrir rúmu ári hóf hann eins konar
fjarnám frá háskóla í Miami í mannauðsstjórn.
Shaq hefur einnig lokið við þjálfun sem lögreglumaður
og gegndi um tíma stöðum innan lögreglunnar í Los
Angeles.
GÆLUNÖFNIN
Shaquille O‘Neal er þekkt-
astur undir gælunafninu
Shaq. Hér má sjá önnur
gælunöfn mannsins:
• The Diesel
• Shaq Fu
• The Big Daddy
• The Big Cactus
• The Big Shaqtus
• The Big Galactus
• The Real Deal
• Dr. Shaq
• Shaqovic
• The Big Conductor
GEIR JÓN VÆRI TALINN LÍTILL
VIÐ HLIÐ ÞESSARAR LÖGGU
ÁSTIN SPYR EKKI UM HÆÐARMISMUN
Kobe, hvernig smakkast rassgatið?
Það var strax árið 1993 sem Shaq gaf út sína fyrstu
rappplötu, Shaq Diesel. Þótt platan, og reyndar tónsmíð-
ar Shaq eins og þær leggja sig, hafi aldrei beint hlotið lof
gagnrýnenda, náði þessi frumraun hans platínumsölu.
Síðan þá hefur þúsundþjalasmiðurinn Shaq gefið út
fimm plötur til viðbótar, þar af eina safnplötu.
Sama hvað sagt er um rapptónlist körfuboltamanns-
ins, þá er næsta víst að hann getur verið stoltur af ýmsu
sem hann hefur áorkað en árið 1995 átti hann rappkafla
í lagi poppkonungsins Michael Jackson á plötunni
HIStory. Geri aðrir betur.
Annar athyglisverður atburður á rappferli Shaq var í
júní 2008 þegar hann steig á stokk á klúbbi í New York
og flutti „free-style“ rapp sem fjallaði fyrst og fremst
um hve miklu betri hann væri heldur en Kobe Bryant.
Þá rappaði Shaq beint til Bryant og bað hann að segja
sér hvernig rassgatið á honum smakkaðist við fögnuð
viðstaddra. Eins og gefur að skilja fór upptaka af þessari
upptroðslu eins og eldur um sinu á netinu.
ÞAÐ MÆTTI KALLA SHAQ HINN
BANDARÍSKA SESAR A
Shaq Attack í X-Men 2
Eins og sönn stórstjarna hefur Shaq að sjálfsögðu
reynt fyrir sér í sjónvarpi og á hvíta tjaldinu. Leikarafer-
illinn fór af stað með myndinni Blue Chips árið 1994 þar
sem hann lék ungan körfuboltamann. Tveimur árum
seinna kom hann fram í hlutverki töfraanda sem birtist
út úr steríógræjum til að veita ungum stráki þrjár óskir
í myndinni Kazaam. Báðar myndirnar fengu algjöra
falleinkunn þótt sjálfur hafi Shaq grínast með að hann
hafi fengið Óskarinn fyrir þá fyrri. Ásamt því hefur hann
leikið sjálfan sig í ýmsum þáttum, lánað ímynd sína
í fjölda tölvuleikja og birst sem teiknimyndafígúra í
Johnny Bravo. Áður en ráðist var í tökur á myndinni X2,
annarri myndinni um X-Men, lýsti hann yfir áhuga á að
hreppa hlutverk í myndinni en því miður fyrir heims-
byggðina rættist óskin ekki.
Shaq O‘Neal hefur einnig stýrt sínum eigin sjónvarps-
þáttum. Þeir eftirminnilegustu eru sennilega Shaq‘s Big
Challenge, þar sem hann hvatti bandaríska æsku til að
hreyfa sig meira og Shaq Vs., þar sem hann var fenginn
til að skora á aðra íþróttamenn í þeirra íþróttagreinum.
Ásamt því að vera atvinnumaður í NBA hefur hann
stundað blandaðar bardagaíþróttir í áratug og skorað
nokkra fræga bardagakappa á hólm. Forvitnilegt væri að
vita hvort hann þyrði í okkar mann, Gunnar Nelson.
Hvað eru 92 kíló
milli vina?
Eftir fimm ár í hjónabandi
með Shaunie Nelson skildu
þau að borði og sæng. Saman
eignuðust þau fjögur börn en
frumburð sinn eignaðist Shaq
í fyrra sambandi. Börnin heita
meðal annars Shareef, Amirah
og Me‘arah en O‘Neal hefur
sagt opinberlega að hann sé
múslimi.
Árið 2010 komust fréttamenn
á snoðir um samband Shaq
og Nikki „Hoopz“ Alexander.
Hoopz er þekkt andlit úr
raunveruleikaþætti vestanhafs
en þess má til gamans geta að
hún er um 160 cm á hæð og 55
kg. Með öðrum orðum skilja
þau að um 56 cm og 92 kíló.
Sennilegt er að Hoopz geti farið
í bað í skóm kærasta síns en
hann er sagður nota skóstærð í
kringum 60.
SHAQ MÆTTI TIL 35 ÁRA AFMÆLIS
SÍNS MEÐ SNÆTÍGRISDÝRGEORGE OG GUTTI PÓSA MEÐ SKÓ SHAQ
SHAQ HEFUR NÚ ÁKVEÐIÐ
AÐ LEGGJA SKÓNA Á HILLUNA