Monitor - 02.06.2011, Blaðsíða 21
21FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2011 Monitor
FLUGAKADEMÍAN
UMsóKNArFrEstUr Er tiL 6. júNÍ Nánari upplýsingar er að finna á www.keilir.net
Leiðandi í flugkennslu
PiPa
r\TBW
a
•
Sía
•
111141
Í Flugakademíu Keilis er lögð áhersla á nútímalega
kennsluhætti og kennsluumhverfi. Flugfloti Keilis er
bæði nýstárlegur og hátæknilegur.
EINKAFLUG
Námið veitir réttindi til að fljúga einshreyfils flugvél í flestum
Evrópulöndum. Námið hentar bæði áhugamönnum og þeim
sem hyggja á nám í atvinnuflugi.
FLUGUMFERÐARSTJÓRN
Námið undirbýr nemendur undir ábyrgðarmikið starf flug
umferðarstjóra. Flugumferðarstjórar starfa í flugturnum og
flugstjórnarmiðstöðvum og starfið felur meðal annars í sér að
sjá um samskipti við flugmenn og tryggja öryggi flugvéla.
ATVINNUFLUG
Námið undirbýr nemendur undir að stjórna farþegaflugvélum
víðs vegar um heiminn og tekur mið af námsskrá sem er gefin
út af JAA/EASA samkvæmt samevrópskri útgáfu flugskírteina.
NÝTT: Staðnám hefst haustið 2011.
FLUGÞJÓNUSTA
Námið veitir vottun á grunnþjálfun flugfreyja og flugþjóna
í samræmi við kröfur EASA (EUOPS1.1005) og er viðurkennt
af Flugmálastjórn Íslands. Fyrir þá sem vilja auka atvinnu
möguleika sína í ferðageiranum enn frekar bætist við þjálfun í
ýmsum greinum ferðaþjónustu, þ.á m. innritun og afgreiðslu.
The Hangover, sem kom út árið 2009, sló eftir-
minnilega í gegn. Sú mynd var frábær og ég skil það
fullkomlega að hún hafi malað gull. Nú er komin
The Hangover Part II. Þessi mynd gefur hinni ekkert
eftir í húmor. Í myndinni eru mörg stórskemmtileg
atriði og eru Phil, Stu og Alan frábærir saman. Nýja
myndin er mun grófari en sú fyrri og í henni eru
nokkur atriði sem verða alveg örugglega ekki spiluð
á barnaskemmtuninni á Menningarnótt. Þegar
leið á myndina fór maður að kannast fullmikið
við ýmislegt. Það gerði það að verkum að þetta var
ekki eins skemmtilegt og síðast. Vandamál þessarar
myndar er að öll þessi hugmynd er ekki eins fyndin
í annað skiptið. Maður hlær ekki jafn mikið að
brandara sem maður hefur heyrt áður. Þó svo að
brandarinn sé góður.
Kemur þriðja myndin?
Í gegnum kvikmyndasöguna hafa framhalds-
myndir klikkað. Fyrsta myndin slær í gegn en svo
kemur eitthvað drasl framhald. Það er ekki hægt að
segja að þessi mynd hafi klikkað. Hún er skemmti-
leg og heldur manni vel við efnið. Þessi mynd er
engu að síður ófrumlegasta framhaldsmynd sem
ég hef séð. Hún fær því fína einkunn fyrir skemmt-
anagildi en núll fyrir frumlegheit. Framleiðendur
myndarinnar tóku nákvæmlega enga áhættu þegar
þeir gerðu þessa mynd. En ég meina til hvers að
flækja málið? Af hverju ekki að gera eitthvað sem
virkar?
Ég ætla því hér með að spá því að The Hangover
Part III muni líta dagsins ljós. Aldrei að vita nema
að Alan fari að gifta sig í Amsterdam og strák-
arnir fái sér nokkrar hasskökur. Þeir vakna
svo skelþunnir í Moskvu og upphefst þá
sprenghlægileg atburðarrás sem inniheldur
meðal annars ísbjörn, rússnesku mafíuna og
samkynhneigðan róna. Þetta getur ekki klikkað.
Tómas Leifsson
Engin flugeldasýning
Rafmagnað kvikindi
Format: PlayStation 3
PEGI: 16+
Gerð: Hasarleikur
INFAMOUS 2
TÖ LV U L E I K U R
Ef leikirnir Grand Theft Auto og Assassins Creed myndu hafa mök og
upp úr því myndi spretta afkvæmi myndi það án efa nefnast inFamous
2. Leikurinn kemur út í næstu viku á PlayStation 3.
Hér fara leikmenn í hlutverk Cole McGrath sem í kjölfar sprengingar
öðlaðist rafmagnaða ofurkrafta, en fyrir þann tíma var Cole ósköp
venjulegur hjólreiðasendill sem hentist með pakka um Empire City.
inFamous 2 leikurinn hefst með svakalegu atriði þar sem kvikindið
„The Beast“ hefur gengið frá borginni og þrátt fyrir öfluga baráttu Cole
og félaga sjá þau sér þann kost vænstan að flýja til borgarinnar New
Marais og safna þar kröftum fyrir lokabardagann við dýrið.
Góðir og illir kraftar
inFamous 2 leikurinn er algjörlega opinn og frjáls í spilun og fá
leikmenn hér tækifæri til að vafra um borgina New Marais, sem sækir
innblástur sinn í New Orleans, og taka þar á málum á sinn hátt.
Grunnur leiksins er fjöldi verkefna sem fleyta söguþræðinum áfram, en
auk þeirra eru endalaus aukaverkefni sem halda spilurum uppteknum
í fleiri tugi klukkutíma. Ofurkrafta Cole er hægt að þróa í tvær áttir og
ákvarðast það af svokölluðu Karmakerfi. Ef menn eru góðir við borgar-
ana fá þeir „góða krafta“ og virðingu, en ef þeir eru vondir, þá skilar það
sér í „illum kröftum“ og hræðslu. Þetta karmakerfi skiptir miklu máli í
spilun leiksins og skilar sér í ólíkum endalokum. Leikurinn tekur um
það bil 20 tíma í spilun og svo er hægt að tvöfalda það ef menn vilja
spila hann bæði sem góðir og vondir.
Stórkostleg grafík
Hellingur af nýjum kröftum lítur dagsins ljós í þessu
framhaldi og er mjög fín þróun í þeim málum. Einnig getur
Cole núna sameinað krafta sína við aðrar persónur leiksins
sem gerir heilmikið fyrir spilunina. Grafík inFamous 2 er
stórkostleg og með því betra sem sést hefur á PlayStation
3 og í leiknum eru atriði sem gefa leikjum á borð við
God of War 3 ekkert eftir þegar kemur að epík. Talsetn-
ing og tónlist leiksins er í hæstu gæðum og klárt að
mikið hefur verið lagt í þann hluta.
Ef menn eru með (eða vilja fá) hár á bringuna þá eru
þrír leikir sem hafa komið út á þessu ári sem ég mæli
með; L.A.Noire, Crysis 2 og nú inFamous 2.
Ólafur Þór Jóelsson
The Hangover
Part II
Leikstjóri: Todd Phillips
Aðalhlutverk: Bradley
Cooper, Zach Galifianakis
og Ed Helms
K V I K M Y N D