Morgunblaðið - 03.05.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.05.2010, Blaðsíða 1
MÁNUDAGUR 3. MAÍ 2010 íþróttir Valur jafnaði Valsmenn jöfnuðu metin í einvíginu við Hauka um Íslandsmeistaratitilinn í hand- knattleik karla með 22:20-sigri á Haukum. Arnór Þór Gunnarsson tryggði sigurinn. 4-5 Íþróttir mbl.is Eftir Skúla Unnar Sveinsson skuli@mbl.is Í ÁTTA liða úrslitunum var það Göppingen sem varð að játa sig sigr- að og nú er næst á dagskrá hjá Björg- vini Páli og félögum að fullkomna þrennuna því þeir mæta Vigni Svav- arssyni og félögum hans í Lemgo í úr- slitum. „Það væri ekki leiðinlegt að slá þá út líka og fullkomna þar með þýsku þrennuna,“ sagði Björgvin Páll. Hann átti stórleik í markinu á laug- ardaginn ef marka má erlenda miðla, en hann gerði ekki mikið úr því. „Þetta byrjaði rosalega rólega hjá mér og það var allt vörninni að kenna hvað ég varði lítið framan af leiknum. Vörnin var svo góð að það koma varla skot í gegn og ég komst því ekki í stuð,“ segir Björgvin Páll. Kadetten lenti fimm mörkum und- ir í seinni hálfleik en þá tók Björgvin Páll til sinna ráða og lokaði markinu síðustu mínúturnar og varði þá meðal annars tvö vítaköst. „Það var svo rosaleg stemning í húsinu, það var fullt, tekur 1.500 manns en það voru eitthvað yfir 2.000 áhorfendur og nokkur hundruð fyrir utan sem komust ekki inn. Það gekk vel á þessum lokakafla og ég varði þá tvö vítaköst meðal annars,“ sagði Björgvin Páll. „Ég gæti trúað að síð- asta korterið sé besti stundarfjórð- ungurinn sem ég hef átt á ævinni, í það minnsta sá skemmtilegasti.“ Alexander Petersson var marka- hæstur hjá Flensborg. „Hann var yf- irburðamaður hjá þeim í þessum leikjum. Hann vann fyrri leikinn fyrir þá og núna var hann líka mjög góður. Við vorum að vona að þjálfarinn léti hann vera á bekknum þar sem hann hefur meira og minna geymt hann síðustu mánuðina, en það var ekki,“ sagði landsliðsmarkvörðurinn. Hann sagði stemninguna hafa ver- ið gríðarlega enda ekki á hverjum degi sem svissnesk lið slá út þýsk stórlið. „Tilfinningarnar voru rosa- legar í lokin og báru mann nærri því ofurliði. Þetta var eiginlega of mikið af því góða. Maður er enn að jafna sig eftir þetta. Það eru allir í skýjunum hérna enda erum við litla liðið í þessu og erum komnir í úrslitin,“ sagði Björgvin Páll í samtali við Morg- unblaðið í gærkvöldi, en leikurinn var á laugardaginn. Á morgun verður dregið í Evr- ópukeppninni, bæði í meistaradeild- inni og eins hvort Vignir og Björgvin Páll mætast fyrst í Þýskalandi eða Sviss. Fullkomnum vonandi þýsku þrennuna  Björgvin Páll lokaði markinu í lokin „Það venst alveg ágætlega að slá Þjóðverja út úr keppninni,“ sagði kampakátur landsliðsmarkvörður Ís- lands, Björgvin Páll Gústavsson, eftir að hið svissneska lið hans, Kadetten, hafði slegið Flensburg út úr EHF- bikarnum í undanúrslitunum. Í HNOTSKURN »Björgvin Páll lokaði markiKadetten á laugardaginn þegar liðið vann Flensburg »Liðið lenti fimm mörkumundir í síðari hálfleik þeg- ar Björgvin Páll sagði lok, lok og læs. »Hann varði meðal annarstvö vítaköst á lokakafla leiksins. » Íslendingar mætast í úr-slitaleijunum, Björgvin hjá Kadetten, og Vignir hjá Lemgo. ERLA Steina Arnardóttir stóð í marki Kristianstad í fyrsta sinn á ævinni þegar liðið vann frækileg- an sigur á Umeå í gær eins og fram kemur á síðu 2. Að- almarkvörður liðsins á við höf- uðmeiðsli að stríða og hefur El- ísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Kristianstad, brugðið á það ráð að fá ítalska landsliðsmarkvörðinn Önnu Mariu Picarelli til félagsins. Picarelli, sem er 25 ára, lék með Ítölum á EM í Finnlandi á síðasta ári og stóð sig vel en er samningslaus sem stendur. Hún var síðast á mála hjá Los Angeles Legends í Bandaríkjunum. Hún mun verða hjá Kristianstad næstu þrjár vikurnar hið minnsta. sindr- is@mbl.is Elísabet fær ítalskan lands- liðsmarkvörð ALFREÐ Gíslason er kominn í undanúrslit Meistaradeildarinnar í handknattleik annað árið í röð. Alfreð stýrði Kiel til 31:30-sigurs á Rhein-Neckar Löwen um helgina og samtals 60:58. Önnur lið í undanúrslitum eru Ciudad Real, Medvedi og Barcelona. Ólafur Stef- ánsson gerði fjögur mörk fyrir Löwen og Snorri Steinn Guðjónsson tvö en Aron Pálm- arsson komst ekki á blað hjá Kiel. Það gekk mikið á í leik Medvedi og Mont- pellier því liðin stóðu jöfn þegar flautað var til leiksloka í seinni leiknum og því varð að fram- lengja en það dugði ekki til, enn var allt jafnt. Þá var gripið til vítakastskeppni og þar hafði Medvedi betur þegar markvörður liðsins varði eitt víti franska liðsins, en það var fjórtánda vítakastið. Sannarlega spennuþrunginn leikur. Róbert Gunnarsson, línumaðurinn snjalli, er fyrirliði Gummersbach og liðið hans lagði San Antonio í síðari leik liðanna í undanúrslitum Evrópukeppni bikarhafa um helgina, 31:28, en leikið var á Spáni. Róbert og félagar mættu gríðarlega einbeittir til leiks og höfðu und- irtökin allan tímann, voru 16:12 yfir í hálfleik. Róbert gerði tvö marka Gummersbach. Róbert og félagar mæta öðru spænsku liði í úrslitunum því Granollers vann Steaua Búk- arest samtals 60:55. Þess má geta að Róbert varð Evrópumeist- ari með Gummersbach í fyrra þegar liðið sigr- aði í EHF-bikarnum og alveg ljóst að Íslend- ingur mun handleika þann verðlaunagrip tvö ár í röð. skuli@mbl.is Alfreð aftur í undanúrslit og Róbert í úrslit Morgunblaðið/G.Rúnar Áfram Alfreð og Róbert eru komnir áfram. BIRKIR Bjarna- son var óvænt í leikmannahópi Viking í gær eft- ir að hafa verið rúman mánuð frá vegna meiðsla, og hann gerði sér lítið fyrir og skoraði eftir að hafa komið inn á sem varamaður í upphafi seinni hálf- leiks þegar liðið gerði 1:1-jafntefli við Kongsvinger á útivelli í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Birkir meiddist illa á olnboga í leik gegn Strömsgodset fyrr á leik- tíðinni en hrökk strax í gang eftir meiðslin og skoraði jöfnunarmark Viking með skoti af stuttu færi. Indriði Sigurðsson og Stefán Gísla- son léku saman vörn Viking. Björn einnig á skotskónum Annar Íslendingur, Björn Berg- mann Sigurðarson, var einnig á skotskónum í gær en hann gerði þá annað mark Lilleström í 4:0-sigri á Sandefjord. Markið skoraði Björn eftir klukkutíma leik með laglegum hætti eftir að hafa leikið í gegnum vörn Sandefjord. sindris@mbl.is Birkir hrökk strax í gang Birkir Bjarnason Ljósmynd/Tomasz Marian Kolodziejski Best Signý Hermannsdóttir, leikmaður Íslandsmeistaraliðs KR, og Hlynur Bæringsson, leikmaður bikar - og Íslandsmeistaraliðs Snæfells, voru valin bestu leikmenn úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik á lokahófi KKÍ. 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.