Morgunblaðið - 18.05.2010, Blaðsíða 10
Útilegumaður Garðar kann best við sig úti í náttúrunni.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég er svo heppinn að hafafengið að alast upp í nánumtengslum við náttúruna,þar sem ég fékk að vera
frjáls, leika mér í fjörunni og príla í
fjöllunum,“ segir Garðar Hrafn Sig-
urjónsson og vísar með orðum sínum í
umhverfið við Flókalund í Vatnsfirði á
Vestfjörðum, en þar ráku foreldrar
hans hótel í ellefu sumur.
„Pabbi bauð upp á sjókajakferðir í
firðinum þarna fyrir utan, í samstarfi
við Ultima Thule, og ég byrjaði því að
róa á kajak þegar ég var 11 ára,“ segir
Garðar sem hefur alla tíð verið mikill
útivistargarpur. Hann byrjaði að æfa á
keppnisskíðum þegar hann var aðeins
átta ára og var í skíðadeild KR þar til
hann var sextán ára.
„Þá hætti ég í skíðakeppninni og
sneri mér að því að róa á straumkajak,
en ólíkt sjókajak þá siglir maður í ám
og flúðum á straumkajak. Þetta er
skemmtilegt og ögrandi og það fylgir
því mikil ánægja að hafa sigrast á fossi
eða flúð á straumkajak. Enda verða
margir nánast háðir þessu, geta ekki
hætt þegar þeir eru komnir á bragðið.“
Sigldi í Jökulsá í Skagafirði
Út frá kunnáttu á straumkajak fór
Garðar að vinna sem lausamaður við
flúðasiglingar hjá Arctic Rafting þegar
hann var aðeins 16 ára. „Þá voru þeir
með rafting-siglingar í Þjórsá en þegar
ég var 18 ára fékk ég fasta vinnu við
siglingar í Jökulsá í Skagafirði. Fljót-
leg eftir það keyptu nokkrir félaga
minna Arctic Rafting og breyttu því í
Arctic Adventures, og ég hef unnið
hjá þeim síðan. Við sem störfum þar
köllum okkur stundum Arctic-
fjölskylduna og höfum ólíkan bak-
grunn, sumir eru klifrarar, aðrir
brimbrettagaurar, kafarar eða skíða-
menn. Þetta kemur sér vel því fyrir
vikið getum við boðið upp á fjöl-
breyttar útivistarferðir. Við gerum
mikið út á dagsferðir og erum meðal
annars með hellaferðir, köfun í Silfru
á Þingvöllum, jöklagöngur á Sól-
heimajökul með ísklifri, tindgöngur á
Snæfellsjökul, fjórhjólaferðir, sjó-
kajakferðir og fleira,“ segir Garðar
sem sér alfarið um sjókajakferðirnar,
hannar þær og heldur utan um hóp-
inn hverju sinni.
Garðar segir að á vorin komi
margir skólahópar í ferðir til þeirra.
„Þetta eru krakkar sem eru að fagna
próflokum með ævintýraferð. Núna í
vor fáum við til dæmis um 1.500
krakka til okkar, bæði í river-rafting,
ratleiki og hellaferðir,“ segir
Garðar sem finnst að íþrótta-
kennsla í skólum ætti að vera fjöl-
breyttari. „Mér finnst að það ætti að
fara meira með nemendur út í náttúr-
una. Við getum nýtt landið okkar bet-
ur með því að kenna almenna útivist
og kynna þá fjölmörgu möguleika
sem þar eru í boði. Við hugsum alltaf
um að byggja rándýr skíðasvæði eða
handboltavelli, en gleymum kannski
að við eigum ár út um allt land sem
hægt er að nýta til útivistar, til dæmis
til að sigla á kajak. Það er ástæða til
Hlaupahópur Ármanns í samvinnu
við Daníel Smára Guðmundsson,
einn reynslumesta langhlaupara
landsins, býður nú upp á undirbún-
ingsnámskeið fyrir þá sem ætla að
hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu í
ágúst.
Arndís Björnsdóttir, formaður
klúbbsins, var á hraðanámkeiði hjá
Daníel í haust og hún segist hafa
aukið hraða sinn verulega. Hún vill
þó ekki gefa upp hlaupatíma op-
inberlega, að svo komnu máli. Arndís
var búin að hlaupa með hléum frá
2005 en kveðst hafa lært heilmikið
af námskeiðinu. „Æfingarnar urðu
markvissar, það er það sem vantaði.“
Námskeiðið er 3 mánuðir og felur í
sér tvær sameiginlegar æfingar á
viku, þriðjudag og fimmtudag. frá
Laugarbóli, Laugardal undir leiðsögn
Daníels. Að öðru
leyti fer hver og
einn eftir sinni
einstaklings-
áætlun.
Námskeiðið
hefst 1. júní nk.
Skráning fer fram
hjá Daníel Smára
í versluninni Af-
reksvörum í
Glæsibæ eða með
því að senda tölvupóst á danielsm-
ari61@gmail.com. Einnig er hægt að
skrá sig eða fá nánari upplýsingar
hjá formanni stjórnar Hlaupahóps
Ármanns, Arndísi Björnsdóttur, arn-
disbj@hotmail.com.
Hver mánuður kostar 5.000 krón-
ur. Ef borgað er í einu lagi fyrir 4.
júní er verðið 3.000 krónur.
Undirbúningsnámskeið fyrir Reykjavíkurmaraþonið
Hlaupið með reynslubolta
Daníel Smári
Guðmundsson
HREYFING OG ÚTIVIST
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2010
10 Daglegt líf
Vefurinn Wikiloc er einstakur í sinni
röð, að minnsta kosti hefur Leifur
Hákonarson fjallagarpur hvergi fund-
ið vef sem kemst í hálfkvisti við
hann.
Á Wikiloc má nálgast gps-ferla frá
flestum heimshornum sem sýna
gönguleiðir, reiðleiðir, leiðir upp fjöll,
siglingaleiðir fyrir kajaka og svo
mætti lengi telja. Ferlunum, sem eru
settir inn af notendum Wikiloc víða
um heim, er hægt að hlaða niður í
gps-tæki. Alls er nú búið að hlaða
upp 179.000 ferlum inn á vefinn.
Til að hlaða niður gps-ferlum (og
hlaða þeim upp) þarf að skrá sig en
skráningin er ókeypis. Vefurinn er
einfaldur í notkun og notendur setja
ferlana beint inn sjálfir – enginn
milliliður skiptir sér af. Gögnin sem
eru sett inn eru á ábyrgð notenda.
Geysilega þægilegt
Leifur byrjaði að nota Wikiloc fyrir
um þremur árum.
„Ég var að leita að gps-ferlum á
Netinu og fann þessa síðu. Þá voru
þarna aðallega reiðhjólaferðir á
Spáni en sá sem opnaði þetta upp-
haflega er spænskur,“ segir hann.
Mikill fengur sé að síðu sem þessari.
„Þegar maður er að fara á óþekktar
slóðir þá er geysilega þægilegt að
geta bara hirt GPS-slóð til að elta.“
Ferlarnir á Wikiloc sjást á kortavef
Google, Google Maps, og vefurinn
fellur einnig eins og flís við rass Go-
ogle Earth-forritið sem þýðir m.a. að
þegar fólk skoðar gervihnattamyndir
af tilteknu landsvæði getur það um
leið séð ferlana á Wikiloc.
Myndir tengjast leiðunum
Þetta eru allt saman frábærir eig-
inleikar og þó er einn sá besti ótal-
inn. Með hverjum gps-ferli er nefni-
lega hægt að hlaða upp ljósmyndum
og myndböndum sem hafa verið
teknar á viðkomandi leið. Nú má
finna á síðunni ríflega 240.000 ljós-
myndir sem tengjast leiðunum.
Wikiloc er margverðlaunuð. Vef-
urinn hefur m.a. fengið verðlaun frá
National Geographic og árið 2006 út-
nefndi Google-fyrirtækið Wikiloc
besta forritið sem tengdist kortavef
Google.
Stofnandi Wikiloc er Spánverjinn
Jordi Ramot. Það þarf ekki að koma á
óvart að áhugamál hans eru fjall-
göngur, fjallahjólreiðar og skíða-
mennska utan troðinna brauta.
Vefsíðan: www.wikiloc.com
Siglingafræði Sá sem kann að nota Wikiloc og gps-tæki þarf ekki að villast.
Gps-ferlar út um allan heim
Víðförull Leifur Hákonarson hefur
hlaðið 111 leiðum inn á Wikiloc.
Upp um fjöll
og firnindi
Útivistargarpinum Garðari Hrafni finnst að við eigum að nýta hina frá-
bæru íslensku náttúru meira í kennslu. Sjálfur vinnur hann við sjókajak-
ferðir og hellaferðir svo fátt eitt sé nefnt. Hann hefur skíðað í Kasmír, kaf-
að á Filippseyjum og siglt á kajak á Grænlandi.
Borgarstjórnarkosningar
29. maí 2010
Kjörfundur hefst laugardaginn 29. maí kl. 9.00 árdegis og lýkur kl. 22.00. Sérstök athygli er
vakin á að kjósandi, sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki, getur átt von á því að fá ekki
að greiða atkvæði.
Yfirkjörstjórn Reykjavíkur mun á kjördag hafa aðsetur í Ráðhúsi Reykjavíkur og þar verða atkvæði
talin. Símanúmer yfirkjörstjórnar verður á kjördag 411 4910.
Kjörskrá
Kjörskrá í Reykjavík vegna borgarstjórnarkosninganna mun liggja frammi í Ráðhúsi Reykjavíkur frá
19. maí nk. fram á kjördag. Frá sama tíma verður hægt að slá inn kennitölu á www.kosning.is og fá
upplýsingar um hvar á að kjósa.
Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Athugasemdum vegna
kjörskrár í Reykjavík skal beint til skrifstofu borgarstjórnar, Ráðhúsi Reykjavíkur, sími 411 4700,
netfang kosningar@reykjavik.is. Þar eru jafnframt veittar nánari upplýsingar. Borgarráð úrskurðar um
athugasemdir vegna skráningar í kjörskrá.
Borgarstjórinn í Reykjavík
Yfirkjörstjórn Reykjavíkur
Kjörstaðir
Kjörstaðir í Reykjavík við borgarstjórnarkosningarnar 29. maí nk. verða sem hér segir:
Ráðhús
Hagaskóli
Kjarvalsstaðir
Hlíðaskóli
Laugardalshöll
Breiðagerðisskóli
Borgaskóli
Íþróttamiðstöðin í Grafarvogi
Árbæjarskóli
Íþróttamiðstöðin Austurbergi
Ölduselsskóli
Ingunnarskóli
Klébergsskóli