Morgunblaðið - 27.09.2010, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.09.2010, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2010 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Ekkert er fjallað um byggingu samgöngumiðstöðvar í yfirstand- andi viðræðum samgönguyfirvalda og lífeyrissjóða um fjármögnun stórra verkefna í samgöngumálum. Byggingin var á meðal verkefna sem hrinda átti í framkvæmd við gerð stöðugleikasáttmálans sumarið 2009. Heimildarmenn sem komu að þeim undirbúningi eru orðnir vantrúaðir á að ráðist verði í þessa byggingu í Vatnsmýri. Boltinn sé hjá Reykjavíkurborg sem virðist lít- ið hafa aðhafst í málinu að und- anförnu. „Það voru mér mjög mikil von- brigði að fyrrverandi meirihluti [í borgarstjórn] skyldi ekki standa við það loforð sem þau gáfu í vetur að auglýsa deiliskipulagið í tæka tíð og fyrir kosningar. Það var ekki gert. Síðan er komin gjörbreytt borg- arstjórn og ég veit ekki hvar málið er statt í borgarkerfinu,“ segir Kristján L. Möller, fyrrv. sam- gönguráðherra, sem stýrir viðræð- unum við lífeyrissjóði fyrir hönd samgönguráðherra. ,,Við vorum búin að teygja okkur eins og við gátum í vetur og gera allar þær breytingar sem óskað var eftir af hálfu borgaryfirvalda gagn- vart hugmyndinni um staðsetningu norðan við Loftleiðahótelið. Við höfðum gengið til móts við það allt saman og það var ekkert eftir nema að ljúka þessu í borgarkerfinu. Það voru mér því mikil vonbrigði að fyrrverandi meirihluti, með Hönnu Birnu Kristjánsdóttur í broddi fylk- ingar, skyldi ekki klára það dæmi eins og loforð höfðu verið gefin um,“ segir Kristján. Farið yfir málin Páll Hjaltason, formaður skipu- lagsráðs Reykjavíkurborgar, segir í svari við fyrirspurn blaðsins að þetta verkefni sé í skoðun hjá skipulagsráði. „[…] við fengum kynningu frá hagsmunaaðilum núna í vikunni. Ekki var tekin ákvörðun um afgreiðslu málsins á þeim fundi og er verið að fara yfir málin.“ Enn óvissa um miðstöðina  Kristján L. Möller segir það mikil vonbrigði að síðasti borgarmeirihluti hafi ekki staðið við gefin loforð  Verkefnið er til skoðunar að sögn formanns skipulagsráðs ,,Við vorum búin að teygja okkur eins og við gátum í vetur.“ Kristján Möller Sighvatur Björg- vinsson lætur af störfum sem framkvæmda- stjóri Þróunar- samvinnustofn- unar Íslands um áramótin. Frá þessu segir í frétt á vefsetri stofn- unarinnar. Fram kemur að starf- inu hafi Sighvatur sagt lausu frá og með 1. október með þriggja mánaða uppsagnarfresti. Nýr yfirmaður, sem utanríkisráðherra skipar, tekur því við starfinu um áramót. Haft er eftir Sighvati, sem verður sjötugur snemma á næsta ári, að hann hafi íhugað að láta af störfum fyrir tveimur árum. Vegna efna- hagshrunsins hafi hann hins vegar ákveðið að doka við og sjá hver framvindan yrði. Nú sé staðan vel ásættanleg og miðað við fjárlög næsta árs sé gefinn kostur á að fara af stað með ný verkefni. Í dag vinna Íslendingar að þróunarverkefnum í fimm löndum, það er Malaví, Nami- bíu, Mósambík, Níkaragva og Úg- anda. Sighvatur Björgvinsson tók við starfi framkvæmdastjóra Þróun- arsamvinnustofnunar Íslands árið 2001. Þar á undan var hann lengi þingmaður Alþýðuflokksins og ráð- herra, ritstjóri Alþýðublaðsins auk þess að sinna ýmsum fleiri störfum. sbs@mbl.is Sighvatur hættir hjá ÞSSÍ Sighvatur Björgvinsson Á förum um áramót eftir um tíu ára starf SVIÐSLJÓS Ingibjörg Rósa Björnsdóttir ingibjorgrosa@mbl.is Um 120-130 manns hafa verið teppt- ir inni í Þórsmörk frá í gærdag en ófært er yfir Steinsholtsá vegna mikilla vatnavaxta í kjölfar úrhellis á svæðinu. Að auki eru árfarvegir kringum Eyjafjallajökul flestir grunnir fyrir vegna eðju eftir eld- gosið í jöklinum í vor. Þannig flæddi yfir þjóðveg 1 á tveimur stöðum undir Eyjafjöllum í gærkvöldi, við Svaðbælisá og Holtsá. Rigningu var spáð fram yfir miðnætti á svæðinu kringum Eyjafjallajökul en í dag spáir Veðurstofan suðaustanátt og lítilli eða engri úrkomu fyrr en með kvöldinu. Best að halda kyrru fyrir Þrír hópar eru fastir í Básum, Húsadal og Langadal í Þórsmörk, alls milli 120-130 manns. „Hér er u.þ.b. 50 manna nýliðahópur frá Hjálparsveit skáta í Kópavogi, allir í góðu yfirlæti,“ sagði Arnar Ásgríms- son, skálavörður í Langadal, í sam- tali við Morgunblaðið í gærkvöldi en þá voru strandaglóparnir að und- irbúa kvöldvöku. Fólkið er á aldr- inum 17-30 ára og var í nýliðaferð á vegum hjálparsveitarinnar en þau gengu frá Emstrum niður í Þórs- mörk á laugardag. „Þau voru nú svo heppin að þeim var sagt að koma með nesti fyrir laugardagskvöldið en fengu svo óvænta hamborgaraveislu og áttu því aukanesti fyrir kvöldið í kvöld. Annars hefði nú matur verið af skornum skammti.“ Arnar kann- aði aðstæður á svæðinu í gær í sam- ráði við aðra skálaverði og var tekin ákvörðun um að halda mann- skapnum inni í Mörk. „Steinsholtsá er kolófær og hinar mjög vatns- miklar, ekki kannski djúpar en Hvanná t.d. er mjög skorin og leið- inleg. Það væri kannski hægt að komast þetta ef lífið lægi við en með- an allt er í góðu er best að halda kyrru fyrir og leyfa þessu að ganga yfir.“ Arnar sagði stöðugt hafa rignt frá því í gærmorgun en ef veðurspá gengi eftir myndi stytta upp fljót- lega eftir miðnætti. „Þá tekur það ána svona sjö klukkutíma að jafna sig svo það verður í fyrsta lagi um hádegi sem fólk getur farið að hugsa sér til hreyfings hér.“ Litlar skemmdir á veginum Undir Eyjafjöllum hækkaði hratt og stöðugt í ám eftir því sem rigndi í gær og var stöðugt mokað upp úr farvegum Holtsár og Svað- bælisár. Að sögn Bjarna Jóns Finns- sonar, yfirverkstjóra Vegagerð- arinnar á svæðinu, var það gert til að koma í veg fyrir að vatn flæddi yfir brýrnar en þá hefði vatnið grafið sundur veginn við enda brúnna og þjóðvegur 1 rofnað. Þótt árnar hafi flætt yfir veginn í gærkvöldi urðu sáralitlar skemmdir á honum og í samtali við Morgunblaðið um klukk- an tíu í gærkvöldi var Bjarni Jón bjartsýnn á að þær yrðu óverulegar ef spár um uppstyttu í nótt rættust. „Okkur sýnist að úrkoman sé að minnka þannig að við erum frekar bjartsýnir á að þetta sleppi.“ Flóð og ófærð á Suðurlandi  Flæddi yfir þjóðveg 1 undir Eyjafjöllum  Vinnuvélar mokuðu stöðugt upp úr árfarvegum  Rúmlega eitt hundrað ferðalangar enn tepptir í Þórsmörk Hellidemba » Úrkoma á Vatnsskarðs- hólum í Mýrdal mældist um 70 mm frá því á laugardags- morgun til sunnudagskvölds. » Mikil eðja í ám í kring- um Eyjafjallajökul veldur því að farvegir þola illa vatna- vexti í kjölfar haustrigningar. » 120-130 manns í þremur hópum inni í Þórsmörk bíða þess að vatnið sjatni. » Rigning og rok var á svæðinu í gærdag, hviðurnar í Þórsmörk fóru upp í 25m/s. » Ár flæddu yfir Suður- landsveg undir Eyjafjöllum en ollu ekki miklum skemmdum » Veðurspá gerir ráð fyrir meiri úrkomu í kvöld. Ljósmynd/Árni Bjarnason Flóð Við Holtsá undir Eyjafjöllum rann vatn í stríðum straumum yfir veginn á um 150 metra kafla. Litlar skemmdir urðu þó á veginum. Á Alþingi í dag eru þrjú mál á dag- skrá en þingfundur hefst klukkan 10.30. Verður haldið áfram að fjalla um skýrslu þingmannanefndarinnar sem fjallaði um skýrslu rannsókn- arnefndar Alþingis. Að henni lokinni hefst síðari um- ræða um þingsályktunartillögu Atla Gíslasonar, Lilju R. Magnúsdóttur, Sigurðar I. Jóhannssonar, Eyglóar Harðardóttur og Birgittu Jóns- dóttur um málshöfðun gegn fjórum fyrrverandi ráðherrum. Þriðja mál á dagskrá er svo síðari umræða um þingsályktunartillögu Magnúsar Orra Schram og Oddnýjar Harðar- dóttur um málshöfðun gegn þremur fyrrverandi ráðherrum. Greiða þarf atkvæði um tillögurnar í síðasta lagi á fimmtudag þegar haustþingi lýkur. Þá hefur Samfylkingin í Kópavogi boðað fund í kvöld þar sem fjallað verður um skýrslu þingmannanefnd- arinnar og munu þeir tveir þing- menn Samfylkingarinnar sem áttu sæti í nefndinni, þau Magnús Orri Schram og Oddný Harðardóttir, tala á fundinum, gera grein fyrir skýrsl- unni og svara fyrirspurnum. Magnús Orri Schram Oddný Harðardóttir Skýrslan áfram til umræðu Samfylking fundar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.