Eyjablaðið - 16.05.1985, Page 4
4
EYJABLAÐIÐ
Viðtalid
Uinsjón: Ragnar Óskarsson
Oldungadeild næsta haust?
Um þessar mundir er skólastarf vídast hvar að Ijúka. Nemendur hafa undanfarið
þreytt vorprófin og niðurstöður eru væntanlegar innan skamms. Laugardaginn 18.
maí verða skólaslit yngri skólans hér í Eyjum en sá skóli er Framhaldsskólinn í
Vestmannaeyjum. í tilefni af því ræddi Eyjablaðið við Ólaf Hrein Sigurjónsson
skólameistara skólans.
-Hve margir nemendur
stunduðu nám við skólann nú á
vorönninni og hvernig skiptust
þeir eftir brautum?
-A þeirri vorönn sem nú er
að ljúka voru 200 nemendur á 9
brautum. Brautirnar eru mis-
fjölmennar og er viðskipta-
brautin sú fjölmennasta með
alls 57 nemendur. Annars eru
nemendur á bóknámsbraut-
unum um 130 og á verknáms-
brautunum um 70.
-Hve margir nemendur út-
skrifast frá skólanum nú við
skólaslit?
-Nú útskrifast að öllum lík-
indum milli 40 og 50 nemend-
ur. Stúdentsefnin eru að þessu
sinni 14 en auk þeirra útskrifast
milli 20 og 30 iðnaðarmenn og
nokkrir munu ljúka verslunar-
prófi.
-Hvernig hefur skólastarfið
gengið í vetur?
-Eg held að ég megi segja að
það hafi í heild sinni gengið
þokkalega vel. Það var að vísu
bagalegt stopp á haustönninni
vegna vinnudeilna, stopp sem
setti strik í reikninginn ef svo
má segja. Nú, við búum við afar
þröngan húsakost og það gerir
skólastarfið mun erfiðara á
margan hátt.
-Eru væntanlegar einhveijar
breytingar í húsnæðismálum
skólans?
-Já, næsta haust flyst skólinn
í húsnæði Gagnfræðaskólans og
þar fáum við mun meira pláss
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum
SKÓLASLIT
Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum verður
slitið n.k. laugardag 18. maí kl. 13:30 í Félags-
heimilinu við Heiðarveg.
Stúdentar og aðrir lokaprófsnemar verða braut-
skráðir, en einkunnaafhending til annarra nem-
enda verður að skólaslitum loknum.
Foreldrar nemenda, eldri nemendur og aðrir
velunnarar skólans eru velkomnir.
Skólameistari
í nafni frelsis
Innan Sjálfstæðisflokks-
ins er orðið frelsi nú mjög í
tísku. í tíma og ótíma er
tönnlast á þessu orði og því
komið að um leið að Sjálf-
stæðisflokkurinn gegni í
raun því göfuga hlutverki að
vera boðberi frelsisins.
En skyldi það frelsi sem
Sjálfstæðisflokkurinn boðar
vera það frelsi sem almenn-
ingur vill eða er það kannski
frelsi fyrir einhverja aðra?
Lítum á nokkur dæmi:
—í nafni frelsisins afnam
Sjálfstæðisflokkurinn samn-
ingsrétt verkalýðshreyfing-
arinnar.
—í nafni frelsisins réðst
Sjálfstæðisflokkurinn á kjör
launafólks og afnam alla
vísitölubindingu launa.
—í nafni frelsisins kom
Sjálfstæðisflokkurinn á
ill-
sjúklingaskattinum
ræmda.
En Sjálfstæðisflokkurinn
hefur einnig gert ýmislegt
annað í nafni frelsisins. Við
skulum enn líta á nokkur
dæmi:
—í nafni frelsisins lækk-
aði Sjálfstæðisflokkurinn
skatta á hlutafé.
—í nafni frelsisins lækk-
aði Sjálfstæðisflokkurinn
eignaskatt á stóreignamenn.
—I nafni frelsisins hefur
Sjálfstæðisflokkurinn séð til
þess að þeir ríku fái aukin
tækifæri til þess að svíkja
háar fúlgur undan skatti.
Það er augljóst hver
stefna Sjálfstæðisflokksins
er. Hún miðar fyrst og
fremst að því að tryggja
þeim sem betur mega sín
frelsi til að kúga þá sem
minna mega sín.
en við höfum nú. Þetta þýðirað
skólinn getur boðið nemendum
og kennurum upp á betri að-
stöðu sem er mjög mikilvæg.
-Þú sagðir áðan að verkfallið
í haust hefði sett strik í
reikninginn. Olli það töfum í
námi nemendanna?
-Verkfallið hafði auðvitað
sín áhrif á námið en með sam-
stilltu átaki nemenda og
kennara tókst að vinna upp
tafir að verulegu leyti. Þetta var
m.a. gert með því að kenna á
laugardögum. Prófum seinkaði
að vísu á haustönninni og voru
þau ekki tekin fyrr en eftir
áramót en við venjulegar að-
stæður lýkur þeim fyrir jóla-
leyfi. Það má einnig geta þess
að innan við tíu nemendur
hættu námi vegna verkfallsins
og er það mun lægra hlutfall en
annars staðar í sambærilegum
skólum.
-Nú er nokkuð um það að
fólk sem hætti námi fyrir
nokkuð löngu hefur sest í Fram-
haldsskólann. Hvernig vegnar
því þar og hvernig ganga sam-
skipti þess við hina „yngri”?
-Já það er rétt að nokkuð
margir eldri nemendur hafa
sest í skólann í upphafi hvers
skólaárs og fer þeim fjölgandi.
Stór hluti þessara nemenda
hefur byrjað í Námsflokkunum
en heldur síðan áfram í Fram-
haldsskólanum. Þessu fólki
Úr Framhaldsskólalífi. Myndin er tekin á hálfopinni viku í mars s.l.
vegnar yfirleitt ágætlega og ég
veit ekki annað en að samskipti
við þá yngri séu góð. Hins vegar
getur verið erfitt fyrir marga af
þeim eldri að stunda skólann
vegna þess að yfirleitt stunda
þeir aðra vinnu með.
-Hvað með öldungadeild?
-Já, það er nú einmitt það
sem mikið hefur verið rætt um
að undanförnu. Hér er fúllur
áhugi hjá skólayfirvöldum á að
koma á fót öldungadeild eins
og tíðkast víða annars staðar. í
því sambandi hefur verið sótt
um heimild til menntamála-
ráðuneytisins til þess að koma
öldungadeild á fót næsta haust.
Ef heimild fæst hjá ráðuneytinu
er mjög sennilegt að byrjað
verði með tvær brautir, líklega
viðskiptabraut og náttúru-
fræði- eða uppeldisbraut. Ég er
alveg sannfærður um að öld-
ungadeild hér á fullan rétt á sér
og hef orðið var við áhuga hjá
fólki í því sambandi.
-Oft er talað um að stór
hópur nemenda sæki fram-
haldsnám upp á fastalandið. Fr
þetta svo?
-S.l. haust komu um 80%
þeirra nemenda sem luku
grunnskólaprófi í Framhalds-
skólann, fáeinir fóru annað. Á
undanförnum árum hefurþeim
nemendum sem stunda fram-
haldsnám hér heima farið hlut-
fallslega fjölgandi og sífellt
færri farið upp á land í nám.
-Nú hefur oft verið rætt um
það að viðhorf til skóla í Vest-
mannaeyjum séu frekar nei-
kvæð. Er þetta eitthvað að
breytast?
-Já, mér finnst viðhorfin vera
að breytast. Maður finnurþetta
best þegar maður þarf að hafa
einhver samskipti við aðila
utan skólans. Það er mun auð-
veldara en oft áður.
-Hvaða mál eru brýnust fyrir
Framhaldsskólann nú á næst-
unni?
-Það sem nú er brýnast er
auðvitað að flytja skólann í
Gagnfræðaskólahúsið. Þegar
þangað er komið þarf strax að
fara að undirbúa stækkun þess
húsnæðis og þá fyrst og fremst
að því er varðar verknáms-
aðstöðu. Þá tel ég það mjög
brýnt að bæjarbúar sýni
stuðning við skólann en slíkur
stuðningur er ein helsta for-
senda þess að hann geti starfað
og sinnt því hlutverki sem
honum ber.
—Viðtal R.Ó.
IBV-Njarðvík 4-0
Síðasti liður í undirbúningi
ÍBV fyrir átökin í sumar var
æfingaleikur gegn 2. deildarliði
•Njarðvíkur sl. laugardag. Ekki
voru Eyjamenn í miklum
vandræðum með að sigra slaka
Njarðvíkinga, en talið er að
Njarðvík muni eiga erfitt upp-
dráttar í 2. deild í sumar.
IBV hóf leikinn af miklum
krafti og ekki leið á löngu að
þeir náðu forystu í leiknum.
Var þar að verki Ómar Jó-
hannsson eftir skemmtilega
leikfléttu við Tómas Pálsson.
Annað mark hjá ÍBV fylgdi
fljótt í kjölfarið. Énn varTómas
Pálsson potturinn og pannan í
undirbúningnum. Lagði hann
upp mark, að þessu sinni fyrir
Hyn Stefánsson.
Fátt markvert skeði svo það
sem eftir lifði hálfleiksins.
Seinni hálfleikur var keim-
líkur þeim fyrri. ÍBV sótti lát-
laust að marki Njarðvíkinga, en
uppskeran vað aðeins tvö
mörk. í bæði skiptin var þar að
verki Sigbjörn Óskarsson, eftir
undirbúning frá, að sjálfsögðu,
Tómasi Pálssyni og svo
Bergi Ágústssyni. Lokatölur
því 4-0.
Tómas Pálsson átti einna
bestan leik ÍBV. Sýndi hann og
sannaði að hann á mörg góð ár
enn eftir í þessum bransa.
Annars kom kannski Þorsteinn
Viktorsson einna mest á óvart í
þessum leik. Lék hann stöðu
vinstri bakvarðar sem er ný-
mæli fyrir hann, en var ekki
annað að sjá í leiknum en hann
væri borinn og barnfæddur í
þessa stöðu.
Njarðvíkingar virkuðu ekki
sannfærandi í þessum leik. Eru
þeir ekki svipur hjá sjón frá því í
fyrra. Að vísu vantaði tvc fasta-
menn í lið þeirra, en samt er
talið að komandi keppnistíma-
bil muni reynast þeim þungt í
skauti.
Lið ÍBV í leiknum: Hörður/
Þorsteinn G., Bergur, Þor-
steinn V.,Viðar, Elías, Ómar,
Jóhann, Héðinn, Hlynur, Sig-
björn og Tómas.
2. deild að hefjast
íslandsmótið í 2. deild hefst á
morgun, fimmtudag. Leikur
ÍBV í 1. umferð gegn Siglfiið-
ingum á Siglufirði. Siglfirðingar
hafa aldrei verið með sterkara
lið en í ár og setja þeir markið
hátt. Hafa þeir fengið í sínar
herbúðir marga snjalla knatt-
spyrnumenn, t.d. Hafþór Kol-
beinsson og landsliðsmanninn
Mark Duffield. Verður því
róðurinn þungur fyrir Eyja-
menn á morgun.
Á sunnudag verður svo fyrsti
heimaleikur ÍBV í 2. deild.
Kemur þá Breiðablik hingað í
heimsókn. Blikarnir hafa misst
nokkurn mannskap frá því í
fyrra, en samt er talið að þeir
séu með eitt sterkasta liðið í 2.
deild í ár.
Úrslitin í æfingaleikjum ÍBV
hafa lofað góðu þannig að
þarna gæti verið um mjög
skemmtilegan leik að ræða.
Eftir leikinn gegn Breiða-
bliki verður hlé þangað til 1.
júní, en þá leika Eyjamenn
gegn Skallagrími í Borgarnesi.
5. júní er svo bikarkeppnin á
dagskrá. Leikur ÍBV þá hér
heima gegn ÍBÍ eða Fylki.
Kemur svo langt frí eða til 15.
júní en þá fær IBV Leiftur frá
Ólafsfirði í heimsókn. Restin af
júnímánuði er svo þétt skipuð,
eða samtals 4 leikir.
—ÞoGu.