Morgunblaðið - 23.02.2011, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2011
Stafir lífeyrissjóður efnir til málþings í anda þjóðfundarins í Laugardalshöll um stefnu og
starfsemi lífeyrissjóðsins á Grand hóteli í Reykjavík laugardaginn 26. febrúar 2011.
Málþingið hefst með morgunkaffi kl. 9:30 og gert er ráð fyrir að því ljúki kl.15:00.
Allir sjóðfélagar Stafa eru hjartanlega velkomnir til að ræða málin í minni hópum og síðan
sameiginlega.
S t ó r h ö f ð a 3 1 | 1 1 0 R e y k j a v í k | S í m i 5 6 9 3 0 0 0 | Fa x 5 6 9 3 0 0 1 | s t a f i r @ s t a f i r. i s | s t a f i r. i s
Öllum steinum velt við – skilaboð til Stafa
Við viljum stuðla að hreinskiptum og opinskáum umræðum með umræðu-
stjóra og ritara í hverjum hópi og málþingsstjóra. Þannig verði tryggt að
skilaboð og andi samkomunnar skili sér með skipulögðum hætti til stjórnar og
stjórnenda Stafa lífeyrissjóðs með ósk um að umbótatillögum verði hrint
í framkvæmd með mögulegum breytingum á samþykktum sjóðsins.
Dæmi um umræðuefni
Möguleg umræðuefni eru lýðræði í lífeyrissjóðum, jöfnun lífeyrisréttinda,
sameining lífeyrissjóða, lífeyrisréttindi, markmið ávöxtunar, fjárfestingar-
stefna og fjárfestingarhegðun, rekstur sjóðsins og auðvitað sitthvað fleira
sem gestir kynnu að vilja fjalla um.
Við bjóðum þér
til stefnumóts við Stafi!
Skráning
Afar mikilvægt er að væntanlegir
þátttakendur skrái sig með tölvupósti
á stafir@stafir.is eða í síma 569 3000
í síðasta lagi miðvikudaginn 23. febrúar.
Sjáumst á stefnumótinu
við Stafi 26. febrúar!
Stjórn og starfsmenn Stafa lífeyrissjóðs.
Kreppan birtist í mörgum myndum
og ein þeirra er magnið af stein-
efnum sem Björgun ehf. dælir á
land á hverju ári, segir á vef Faxa-
flóahafna.
Á árinu 2006 landaði Björgun
ehf. hjá Faxaflóahöfnum samtals
1,4 milljónum tonna af steinefnum,
möl og sandi, sem skip félagsins
dældu upp af hafsbotni í Faxaflóa.
Árið 2007 var magnið 1,3 milljónir
tonna en á árinu 2008 fór magnið
niður í 950 þúsund tonn. 2009 var
magnið af dældum steinefnum 360
þúsund tonn og á nýliðnu ári var
talan komin niður í 200 þúsund
tonn og því var freistandi að álykta
að botninum væri náð. „Ekki alveg“
er haft eftir Gunnlaugi Kristjáns-
syni hjá Björgun ehf., því magnið í
janúar í ár var minna en á sama
tíma í fyrra.
Dæld steinefni eru notuð í
steypu, uppfyllingar og einnig not-
að með malbiki og ýmsar vörur svo
sem hellur og þess háttar fyrir
garða . sisi@mbl.is
Kreppan
birtist í
dælingu
Gífurlegur sam-
dráttur hjá Björgun
Morgunblaðið/ÞÖK
Dæling Skip Björgunar dæla mun
minna af hafsbotni en fyrri ár.
Umhverfis- og samgönguráð
Reykjavíkurborgar hefur sam-
þykkt einróma tillögu þar sem lagt
er til að gangandi vegfarendum
verði gefinn rýmri tími til að kom-
ast yfir umferðargötu á „grænum
karli.“
Það voru fulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins í umhverfis- og sam-
gönguráði sem lögðu fram tillög-
una og var hún svohljóðandi:
„Staðfest er að gangandi vegfar-
andi á góðum gönguhraða (4,3 km/
klst) kemst aðeins 60% leiðar sinnar
yfir götu, áður en „græni karlinn“
fer að blikka eða „rauður karl“
birtist. Börn, eldra fólk og fólk sem
á erfitt með gang kemst enn styttra
og er í sumum tilvikum ekki komið
yfir, þegar bílaumferðin hefur
fengið grænt ljós. Það er ein-
kennilegt borgarskipulag sem ger-
ir ekki ráð fyrir því að allir fót-
gangandi komist örugglega leiðar
sinnar um borgina. Óskað er eftir
því að samgönguskrifstofa útfæri
tillöguna nánar og leggi fyrir um-
hverfis- og samgönguráð sem
fyrst.“
Fyrir ráðið var lagt fram svar
Umhverfis- og samgöngusviðs
dagssett 19. janúar við fyrirspurn
um gönguljós í borginni. Í fram-
haldi af því svari var umrædd til-
laga lögð fram og hún samþykkt.
sisi@mbl.is
„Græni karlinn“ logi lengur
Morgunblaðið/Ernir
Sá rauði Fólk þarf að hraða sér yfir göturnar meðan „græni karlinn“ logar.
Gangandi vegfarandi á góðum gönguhraða kemst aðeins
60% leiðar sinnar yfir götu áður en sá „græni“ fer að blikka
Í skoðanakönnun sem Félags-
vísindastofnun HÍ gerði fyrir ASÍ
kemur fram að 90% þeirra sem
taka afstöðu finnst mikilvægt að
ASÍ leggi áherslu á að jafna lífeyr-
isréttindi launafólks á almennum
og opinberum markaði. 60% töldu
það mjög mikilvægt og 30% frekar
mikilvægt. 6% töldu það ekki mik-
ilvægt og 3% alls ekki mikilvægt.
Jöfnun lífeyrisréttinda allra
landsmanna er ein meginkrafan
sem samninganefnd ASÍ hefur sett
fram í yfirstandandi kjara-
viðræðum.
ASÍ segir að opinberir starfs-
menn búi við umtalsvert betri líf-
eyrisréttindi en gengur og gerist á
almennum vinnumarkaði. Þá séu
lífeyrisréttindi opinberra starfs-
manna tryggð úr sameiginlegum
sjóðum landsmanna óháð ávöxtun
lífeyrissjóðsins á hverjum tíma en
almennt launafólk hefur enga slíka
baktryggingu og þarf sjálft að bera
áhættuna í sínum lífeyrissjóðum.
Vilja jafna líf-
eyrisréttindi