Morgunblaðið - 16.03.2011, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.03.2011, Blaðsíða 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 2011 MEISTARADEILDIN Ólafur Már Þórisson omt@mbl.is Manchester United og Inter tryggðu sér í gær farseðilinn í 8 liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Manchester United vann Marseille á heimavelli en hetja United var án vafa Mexíkóinn Javier Hernández sem skoraði bæði mörk liðsins í gær. Hann var hreint út sagt frábær og alltaf rétt staðsettur. Þá var Wayne Rooney einnig góð- ur, sendingarnar og útsjónarsemin var einstök. „Við erum mjög ánægðir með að vera komnir áfram. Þetta var erfiður leikur því Marseille er með mjög lík- amlega sterkt lið,“ sagði Rooney sem hældi einnig markaskoraranum. „Jav- ier Hernández er með frábærar hreyfingar en hann spilar í svipaðri stöðu og ég þegar ég byrjaði sem at- vinnumaður. Núna er ég hinsvegar meira með boltann og kominn aftar á völlinn, það finnst mér virkilega ánægjulegt.“ Varnarleikur United var ágætur þrátt fyrir fjarveru margra lyk- ilmanna og sjálfsmark Wes Brown átta mínútum fyrir leikslok. Þetta er 5. árið í röð sem United kemst í 8 liða úrslit keppninnar. Draugur á heimavelli Bayern Bayern Münich er úr leik í öllum keppnum á þessu tímabili eftir tap fyrir Inter 3:2. Inter fór áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli en fyrri leikurinn endaði 1:0 fyrir Bayern á Ítalíu. Goran Pandev var bjargvættur Inter í gær en hann lagði upp fyrsta markið fyrir Samuel Eto’o og sá síð- arnefndi þakkaði svo fyrir sig með því að leggja upp mark fyrir Pandev tveimur mínútum fyrir leikslok. Það gengur hvorki né rekur hjá Bayern á þessu tímabili en þeir eru úr leik í öllum mótum. Heimavöllurinn hefur ekki verið þeim hagstæður en liðið féll úr leik í bikarkeppninni gegn Schalke á heimavelli sínum Allianz- Arena. Þá tapaði liðið gegn Dortmund í deildinni einnig á heimavelli en Dort- mund er í efsta sæti deildarinnar. Inter á hinsvegar enn möguleika á að verja Evróputitilinn sem liðið hampaði í fyrra, einmitt eftir sigur á Bayern í úrslitaleik. Hernández hetja United Reuters Ánægðir Julio Cesar markvörður og samherjar hans í Inter Mílanó fagna fræknum sigri gegn Bayern í München í gærkvöld.  United 5. árið í röð í undanúrslitum  Bayern náði ekki að hefna ófaranna frá því í fyrra  Úr leik í öllum keppnum  Möguleiki fyrir Inter að verja titilinn Meistaradeildin » Manchester United og Inter Mílanó eru komin í hóp sex liða sem hafa tryggt sér sæti í 8 liða úrslitunum. » Hin eru Schalke, Tottenham, Barcelona og Shakhtar Do- netsk. » Tvö síðustu sætin ráðast í kvöld. Chelsea tekur á móti FC Köbenhavn og er með 2:0 for- skot en Real Madrid og Lyon eru jöfn, 1:1, fyrir leikinn á Spáni. Íslenska 21 árs landsliðið í knatt- spyrnu verður án ellefu sterkra leik- manna þegar það mætir Úkraínu í vináttulandsleik í Kiev fimmtudag- inn 24. mars. Tíu þeirra eru í A- landsliðinu sem leikur á Kýpur tveimur dögum síðar og miðvörð- urinn Jón Guðni Fjóluson er fjarver- andi vegna meiðsla. Þrátt fyrir þetta er aðeins einn ný- liði í 18 manna hópnum en það er Ar- on Jóhannsson, leikmaður AGF í Danmörku. Fimm piltanna hafa leik- ið 10 leiki eða fleiri í þessum aldurs- flokki, þar á meðal Bjarni Þór Við- arsson fyrirliði sem á leikjametið og hefur spilað 22 leiki fyrir 21 árs landsliðið. Níu af þeim léku einn eða fleiri leiki í byrjunarliði 21 árs liðsins í undankeppni Evrópumótsins. Frá Úkraínu halda strákarnir til Englands þar sem þeir mæta heima- mönnum í Preston mánudagskvöldið 28. mars. Leikirnir eru liðir í und- irbúningnum fyrir lokakeppni EM í Danmörku í sumar. vs@mbl.is Ellefu sterka vantar Íslenska piltalandsliðið í íshokkíi vann auðveldan sigur á Ísraels- mönnum, 12:0, í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramóti 18 ára og yngri í Mexíkó í fyrrinótt. Eins og tölurnar gefa til kynna var íslenska liðið með leikinn í höndum sér allan tímann en loturnar fóru 4:0, 2:0 og 6:0. Sigurður Reynisson var valinn maður leiksins í liði Íslands en hann er í sinni fyrstu ferð með unglingalandsliði. Næsti leikur er gegn Írlandi í dag en Írar hafa leikið tvo leiki og tapað báðum stórt, 1:13 gegn Suður-Afríku og 0:12 gegn Mexíkó. Aðeins eitt lið fer upp um deild en íslenska liðið stefnir að því að vinna sér sæti í 2. deild. Hindranir í þeim vegi eru greinilega lið Mexíkó og Suður-Afríku. Mexíkóar unnu Ísraelsmenn, 7:3, í fyrstu umferðinni. Mörk/stoðsendingar Íslands: Jóhann Leifsson 3/3, Sigurður Reynisson 2/3, Kári Guð- laugsson 2/1, Falur Birkir Guðnason 2/1, Björn Róbert Sigurðarson 2/0, Ingólfur Elías- son 1/3, Brynjar Bergmann 0/1, Steindór Ingason 0/1, Andri Helgason 0/1. vs@mbl.is Byrjuðu á léttum sigri á Ísrael Jóhann Leifsson Hrafnhildur Lúthersdóttir úr SH og Sarah Bateman úr Ægi eru komnar í úrslitakeppni NCAA í bandaríska háskólasundinu. Þar munu þær hefja keppni síðar í vikunni en þær keppa fyrir Univers- ity of Florida en skólinn er ríkjandi meistari og talsverð endurnýjun hef- ur orðið í liðinu frá sigrinum í fyrra. Hrafnhildur er á fyrsta ári og mun keppa í bringusundi ásamt fjórsundi. Sarah mun keppa í skriðsundi og báðar eru þær í boðsundssveitum skólans. Þess má geta að ekki er notast við metrakerfið í sundinu í Bandaríkj- unum og því eru tímar og árangur stúlknanna erfiður í samanburði við það sem þær afreka hér heima. kris@mbl.is Hrafnhildur og Sarah í úrslit Hrafnhildur Lúthersdóttir Sarah Blake Bateman Meistaradeild Evrópu 16 liða úrslit, síðari leikir: Bayern München – Inter Mílanó............ 2:3 Mario Gomez 21., Thomas Müller 31. – Samuel Eto’o 4., Wesley Sneijder 63., Gor- an Pandev 88.  Inter áfram á útimörkum, 3:3 samanlagt. Manch.Utd – Marseille............................ 2:1 Javier Hernández 5., 75. – Wes Brown 82. (sjálfsm.)  Man. Utd áfram, 2:1 saman- lagt. England B-DEILD: Burnley – Coventry................................. 2:2  Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn með Coventry. Ipswich – Watford.................................... 0:3 Scunthorpe – Preston .............................. 0:3 Staðan: QPR 37 20 13 4 59:23 73 Norwich 37 18 12 7 61:46 66 Swansea 37 19 6 12 50:34 63 Cardiff 37 18 8 11 57:43 62 Leeds 37 16 13 8 69:58 61 Nottingham F. 37 15 15 7 46:32 60 Burnley 36 15 12 9 53:44 57 Watford 37 15 11 11 67:52 56 Hull 37 14 13 10 41:37 55 Leicester 37 16 7 14 56:55 55 Reading 36 13 15 8 59:42 54 Millwall 37 14 11 12 48:37 53 Portsmouth 37 14 9 14 49:48 51 Bristol City 37 13 8 16 48:54 47 Barnsley 37 12 11 14 44:54 47 Ipswich 37 13 7 17 46:49 46 Doncaster 37 11 11 15 49:66 44 Derby 37 12 7 18 46:51 43 Coventry 37 11 9 17 40:48 42 Middlesbro 36 11 8 17 44:53 41 Cr. Palace 37 10 8 19 35:57 38 Scunthorpe 37 10 4 23 33:66 34 Sheffield Utd 37 8 8 21 32:59 32 Preston 36 6 10 20 40:64 28 C-DEILD: Brentford – Huddersfield....................... 0:1  Jóhannes Karl Guðjónsson lék allan leik- inn með Huddersfield Carlisle – Plymouth................................. 1:1  Kári Árnason var í liði Plymouth en var skipt af velli á 72. mínútu. Hartlepool – Leyton Orient.................... 0:1  Ármann Smári Björnsson var varamað- ur hjá Hartlepool en kom ekki við sögu. Staðan: Brighton 34 21 8 5 64:26 71 Huddersfield 37 19 9 9 58:39 66 Peterborough 36 20 5 11 86:61 65 Southampton 34 18 7 9 62:30 61 Bournemouth 36 17 10 9 60:38 61 MK Dons 37 18 7 12 54:48 61 Orient 34 15 11 8 57:42 56 Hartlepool 37 14 8 15 38:49 50 Carlisle 36 13 10 13 49:47 49 Exeter 36 13 10 13 51:58 49 Rochdale 34 12 12 10 45:41 48 Charlton 34 13 9 12 50:50 48 Colchester 36 12 12 12 42:48 48 Oldham 36 11 13 12 46:52 46 Brentford 36 13 7 16 39:46 46 Sheffield Wed. 35 12 7 16 51:53 43 Notts County 33 12 6 15 37:39 42 Tranmere 35 10 9 16 40:49 39 Yeovil 35 10 8 17 33:51 38 Dagenham 33 9 9 15 37:47 36 Walsall 37 9 9 19 41:60 36 Plymouth 37 12 7 18 44:61 33 Swindon 36 7 12 17 43:60 33 Bristol Rovers 36 8 9 19 38:70 33 KNATTSPYRNA Þýskaland B-DEILD, suður: Korschenbroich – Aue ........................ 28:30  Arnar Jón Agnarsson skoraði 7 mörk fyrir Aue. HANDBOLTI Svíþjóð Sundsvall – LF Basket ........................ 89:99  Jakob Örn Sigurðarson skoraði 16 stig fyrir Sundsvall, Hlynur Bæringsson skor- aði 12 stig og tók 15 fráköst. Uppsala – Södertälje........................... 87:67  Helgi Már Magnússon skoraði 4 stig fyr- ir Uppsala og tók 8 fráköst. NBA-deildin LA Lakers – Orlando ........................... 97:84 Miami – San Antonio.......................... 110:80 New Jersey – Boston ........................... 88:79 Washington – Oklahoma.................... 89:116 New Orleans – Denver..................... 103:114 Memphis – LA Clippers..................... 105:82 Houston – Phoenix ............................... 95:93 Utah – Philadelphia.......................... 112:107 Sacramento – Golden State ............. 129:119 KÖRFUBOLTI ÍSHOKKÍ Úrslitakeppni kvenna, þriðji leikur: Akureyri: SA – Björninn .......................... 19  Staðan er 2:0 fyrir SA sem verður meist- ari ef liðið vinnur í kvöld. KNATTSPYRNA Deildabikar kvenna, Lengjubikarinn: Reyðarfj.: Fjarðab/Leiknir – Höttur ...... 19 Í KVÖLD! MARKVERÐIR: Haraldur Björnsson, Val Arnar Darri Pétursson, SönderjyskE VARNARMENN: Hólmar Örn Eyjólfsson, West Ham Hjörtur Logi Valgarðsson, Gautab. Skúli Jón Friðgeirsson, KR Jósef Kristinn Jósefsson, Burgas Elfar Freyr Helgason, Breiðabliki Guðmundur Reynir Gunnarsson, KR Finnur Orri Margeirsson, Breiðabliki MIÐJUMENN: Bjarni Þór Viðarsson, Mechelen Andrés Már Jóhannesson, Fylki Almarr Ormarsson, Fram Guðlaugur V. Pálsson, Hibernian Þórarinn Ingi Valdimarsson, ÍBV Björn Daníel Sverrisson, FH SÓKNARMENN: Kristinn Steindórsson, Breiðabliki Björn B. Sigurðarson, Lilleström Aron Jóhannsson, AGF Átján sem fara til Úkraínu 21 ÁRS LANDSLIÐIÐ Í KNATTSPYRNU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.