Morgunblaðið - 16.03.2011, Page 4

Morgunblaðið - 16.03.2011, Page 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 2011 Real Madrid vonast til að brjóta ís- inn í kvöld og komast í átta liða úr- slit Meistaradeildar Evrópu í knatt- spyrnu í fyrsta sinn í sjö ár. Nífaldir Evrópumeistarar Real Madrid mæta frönsku meisturunum í Lyon í síðari viðureign liðanna í 16-liða úrslitunum en liðin skildu jöfn, 1:1, á heimavelli Lyon. Lyon hefur reynst Madridarlið- inu ákaflega erfiður mótherji. Liðin hafa mæst sjö sinnum í Meist- aradeildinni og hefur Real Madrid enn ekki tekist að fagna sigri en Lyon sló einmitt spænsku risana út í 16-liða úrslitunum á síðustu leik- tíð. Lærisveinar Josés Mourinhos binda þó vonir við að breyting verði á í kvöld. Real Madrid er eina liðið í Meistaradeildinni sem hefur ekki fengið mark á sig á heimavelli og verði ekki breyting á því í kvöld kemst Real Madrid áfram í átta liða úrslitin. „Lyon er hæfileikaríkt lið en við ætlum að slá það út og erum ekki að velta okkur upp úr sögunni eða tölfræðinni. Real Madrid er stærsta liðið í veröldinni en það hefur verið í dvala. Það er eins og fíll sem er sofandi en það er mikill kraftur í því þegar það vaknar til lífsins,“ segir José Mourinho en lið hans er taplaust í Meistaradeild- inni og hefur unnið alla 15 heima- leiki sína í deildinni og í Meist- aradeildinni. Líklegt er að Cristiano Ronaldo verði með Madridingum á ný en hann hefur misst af tveimur síð- ustu leikjum liðsins vegna smá- vægilegra meiðsla. Torres lofar fyrsta markinu Englandsmeistarar Chelsea eru í þægilegri stöðu fyrir síðari leikinn gegn danska meistaraliðinu FC Köb- enhavn því Chelsea hafði betur á Parken í Kaupmannahöfn, 2:0, og leiðin í átta liðin úrslitin því afar greið. Sölvi Geir Ottesen verður ekki með Kaupmannahafnarliðinu í kvöld frekar en í fyrri leiknum vegna meiðsla í baki. Helsta spennan á Stamford Bridge í kvöld verður sú hvort Spánverjanum Fernando Tor- res tekst að skora sitt fyrsta mark en hann hefur spilað fimm leiki með Lundúnaliðinu án þess að skora. „Ég hef góða tilfinningu fyrir leiknum og ég mun skora gegn FC Köbenhavn,“ sagði Torres við fréttamenn í gær. gummih@mbl.is Brýtur Real Madrid ísinn? Reuters Smeykur? Cristiano Ronaldo virðist skelkaður þegar boltinn stefnir á hann á æfingu spænska stórliðsins í gær. Hann spilar líklega gegn Lyon í kvöld. VIÐTAL Kristján Jónsson kris@mbl.is Ferill körfuboltaþjálfarans Hrann- ars Hólm hefur tekið skemmtilega stefnu í Danmörku þar sem hann býr og starfar. Hrannar er körfu- knattleiksáhugamönnum að góðu kunnur enda þjálfaði hann Þór Ak- ureyri, Njarðvík og KR á tíunda áratug. Á síðustu leiktíð var hann kjörinn þjálfari ársins í kvennakörf- unni í Danmörku og á þessari leiktíð eru tveir titlar komnir í hús hjá liði hans, SISU. Það sem meira er er að liðið var í miklu basli þegar Hrannar tók óvænt við stjórnartaumunum. „Ég hafði ekki þjálfað síðan fyrir aldamót en þá hafði ég þjálfað í um það bil fimmtán ár samfleytt. Ég var hins vegar viðloðandi íþróttina og var t.d. formaður Keflavíkur í mörg ár, sat í stjórn KKÍ og var for- maður landsliðsnefndar. Ég var því farinn að sinna alfarið þeirri hlið mála en ég flutti til Danmerkur sök- um vinnu. Fyrir algera tilviljun þá vantaði þjálfara í lið dóttur minnar á síðasta tímabili en hún spilaði þá með SISU. Ég var tilneyddur og átti að vera í hálfu starfi ásamt öðr- um þjálfara. Liðinu hafði gengið illa en endaði í undanúrslitum og ég fékk titilinn þjálfari ársins sem var auðvitað skemmtilegt. Þá vildu menn endilega að ég héldi áfram en ég var ekki alveg viss enda hef ég nóg annað að gera í lífinu. Ég ákvað þó að halda áfram að þjálfa liðið og þetta tímabil hefur verið hálfgert ævintýri,“ sagði Hrannar þegar Morgunblaðið sló á þráðinn til hans í gær. Þess má geta að Helena dóttir hans spilar ekki lengur með SISU. Hún kom heim um miðjan vetur í fyrra og varð bikarmeistari með Haukum en hefur ekkert spilað í vetur. Bikaraskápurinn bólgnar út SISU var í 8. sæti af 9 liðum þeg- ar Hrannar tók við en endaði í 2. sæti deildakeppninnar í fyrra. Á þessari leiktíð varð liðið bikarmeist- ari í janúar og deildameistari á dög- unum en liðið hefur aðeins tapað einum leik í vetur. „Allt í einu fóru hlutirnir að ganga og stundum veit maður ekki hvers vegna það gerist. Ætli það hafi ekki bara verið heppni? Stemn- ingin var góð og hópurinn tók sig saman og vann þetta í sameiningu. Eftir tímabilið í fyrra hefur verið unnið mjög vel og starfið hefur verið markvisst bæði hjá stúlkunum sjálf- um og einnig félaginu. Þær eru dug- legar og áhugasamar enda öflugir íþróttamenn,“ sagði Hrannar enn- fremur og nú er úrslitakeppnin handan við hornið. Sökum velgengni liðsins þá er litið á SISU sem meist- araefni í Danmörku. „Maður er aldrei með ávísun upp á framtíðina í íþróttunum en það verður að viðurkennast að takist okkur ekki að vinna titilinn verða það ákveðin vonbrigði. Yfirburðir okkar í vetur komu á hinn bóginn á óvart. Ef horft er til þess hvernig liðin eru skipuð þá er þetta ekki al- veg rökrétt hvað við höfðum mikla yfirburði í deildakeppninni. Mér finnst ekki mikill munur á getu leik- manna í mínu liði og í þeim liðum sem næst koma,“ benti Hrannar á. Þjálfar með öðru hugarfari Hann getur ekki neitað því að í allri velgengninni hefur neistinn fyr- ir þjálfun kviknað á nýjan leik. „Það er alveg rétt að ég hef haft mikla ánægju af þessu. Nú þjálfa ég með allt öðru hugarfari en ég gerði áður fyrr. Þá var þjálfunin miðpunkt- urinn í lífinu en nú er maður orðinn eldri og reyndari og hefur fleiri skyldum að gegna. Nú er þjálfunin orðin skemmtileg tilbreyting frá því að vera í vinnunni. Ég er mun af- slappaðri yfir þessu öllu saman og ég hef mjög gaman af þessu enda jafnast fátt á við að vinna leiki og titla,“ sagði Hrannar Hólm í samtali við Morgunblaðið. „Er mun afslappaðri“  Hrannar Hólm körfuboltaþjálfari hefur unnið tvo titla í Danmörku að undan- förnu  Segir tímabilið hafa verið ævintýri líkast  Hafði ekki þjálfað í áratug Morgunblaðið/Kristinn Sigursæll Hrannar Hólm hefur átt góðu gengi að fagna sem þjálfari danska liðsins SISU. Það hefur ekkigengið sem skyldi á und- irbúnings- tímabilinu hjá sænska knatt- spyrnuliðinu IFK Gautaborg þar sem fjórir Íslend- ingar eru á mála, Ragnar Sigurðsson, Hjálmar Jóns- son, Theódór Elmar Bjarnason og Hjörtur Logi Valgarðsson. Gauta- borg tapaði fyrir hvítrússneska liðinu BATE Borisov í æfingaleik í Tyrk- landi í gær, 1:0, og var þetta sjöundi leikur liðsins í röð án sigurs. Ragnar og Hjálmar voru í byrjunarliðinu, Theódór Elmar kom inn á en Hjörtur Logi gat ekki leikið vegna meiðsla. Keppni í sænsku úrvalsdeildinni hefst eftir tvær vikur.    Sænski landsliðsmaðurinn ZlatanIbrahimovic, sem er á mála hjá sjöföldum Evrópumeisturum AC Milan, hefur verið úrskurðaður í þriggja leikja bann vegna rauða spjaldsins sem hann fékk að líta á í leiknum gegn Bari um síðustu helgi. Zlatan missir þar með af leiknum gegn sínum gömlu félögum í Inter.    Þjóðverjinn Bernd Schuster erhættur sem þjálfari tyrkneska liðsins Besiktas. Illa hefur gengið hjá liðinu undir hans stjórn en Besiktas er í sjöunda sæti deildarinnar. Schus- ter, sem gerði Real Madrid að spænskum meisturum tímabilið 2007-08, tók við þjálfun Besiktas í fyrrasumar og hann keypti sterka leikmenn á borð við Ricardo Qua- resma, Guti, Hugo Almeida og Simao.    Joachim Löwlandsliðs- þjálfari Þjóðverja í knattspyrnu, hefur framlengt samning sinn við þýska knatt- spyrnusambandið til 2014. Löw tók við þjálfun lands- liðsins af Jürgen Klinsmann árið 2006 og undir hans stjórn urðu Þjóð- verjar í öðru sæti á Evrópumótinu árið 2008 og í þriðja sæti á HM í Suð- ur-Afríku síðastliðið sumar.    Jakob Örn Sigurðarson skoraði 16stig og Hlynur Bæringsson tók 15 fráköst þegar lið þeirra, Sunds- vall, tapaði á heimavelli fyrir LF Basket, 89:99, í næstsíðustu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í körfu- knattleik. Sundsvall hafði þegar tryggt sér sigur í deildinni en liðið er með sex stiga forskot á LF Basket þrátt fyrir tapið. Sundsvall mætir Borås eða Jämtland í 8 liða úrslit- unum sem hefjast næsta mánudag. Fólk sport@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.