Ný saga - 01.01.1991, Qupperneq 75

Ný saga - 01.01.1991, Qupperneq 75
SJÁLFSTÆÐISBARÁTTAN OG HÚSFREYJAN Á BESSASTÖÐUM Hún hefur aflað sér ítarlegrar vitneskju um rás viðburða og sársaukinn leynir sér ekki. Hún skrifar Grími Thomsen 25. febrúar 1850: „Bóndi nokkur að nafni Indriði, bróðir Konráðs, er sagt hafi verið einn af oddvitunum Friðriksgáfu- ferðarinnar. En faðir Konráðs, nafntogaður maður Gísli Konráðsson, hafði samið seðlana, sem þeir klíndu á gitterverkið. Sagt er líka, að þingmaður Skagfirðinga Jón Samsonsson, hafi verið hjálplegur í þessu hroða og voða verki. Ef þú skrifaðir assessor Jónassen, þá er það sá, sem þessu er kunnugastur. Eitthvert próf var tekið í þessu í Skagafirði, en sagt er, að fáir hafi mætt, sízt höfuð- mennirnir".29 Síðar í sama bréfi segir Ingibjörg: „En með hjartað sundurslitið af sorg minnist ég breytni Skagfirðinga við bróður minn sál. Slysalegt er, að Islendingar skuli útskúfa svona þeim manni, sem í fleiru en einu tilliti var afbragð og sómi síns föðurlands. Vona ég að sanngjarnari eftiröld minnist hans og viðurkenni hans framúrskarandi dugnað og mannkosti".30 HNEYKSLIÐ í DÓMKIRKJUNNI Annað reiðarslag fékk fjölskyldan veturinn 1850. Annar tengdasona Ingibjargar, Ásmundur Jónsson varð dómkirkjuprestur í Reykjavík 1846 eftir að hafa j^jónað í Odda um árabil. Það gerðist í messu í Dómkirkjunni í febrúar 1850 að Sveinbjörn Hall- grímsson þá ritstjóri Þjóðólfs stóð upp, kvaddi sér hljóðs og kvartaði yfir því að þjónandi prestur væri óhæfur, þar sem ekkert heyrðist í honum við messugjörð. Þetta þótti hneyksli en leiddi til j)ess að Ásmundur sagði upp starfi og hélt aftur til Odda.JI Ingibjörg er fáorð um þennan atburð. Hún skrifar í bréfi til Gríms Thomsen 25. febrúar 1850: „Ég Jiegi um allar frelsishreyfingar í Reykjavík, því ég veit, að mágur þinn skrifar Kvenskörungurinn Þorbjörg Sveins- dóttir (1828-1903) var brautryöjandi i kvenréttindabaráttu hér á iandi og haföi auk þess brennandi áhuga á sjáifstæöisbaráttu þjóöarinnar. Hún varö fyrstmanna tiiao sauma bláhvita fánann og láta draga hann aö húni í Reykjavík 2. ágúst 1897. þér þær allar, svo þægilegar sem joær eru“.-'2 Þarna er Ingi- björg ekki aðeins að vísa til atburðarins í Dómkirkjunni, heldur væntanlega einnig til Pereatsins sem gekk yfir þennan vetur. Ingibjörg er orðin kona full- orðin, hún situr enn á Bessa- stöðum. Grímur sonur hennar býr í útlöndum og gerir Jraö gott. Ingibjörg skrifar honum áfram og alltaf fylgist hún með landsins gagni og nauðsynjum á sinn hátt. Verslunarfrelsi er í augsýn, en um það er eins og annað sem um er rætt og efast. I bréfi til Gríms frá 10. nóv. 1854 gætir nokkurs nöldurtóns: „Þú ert að minnast á fríu verslunina. Gott væri hún yrði farsælli en þær breytingar, sem hafa orðið síðan 1840 og nú eru farnar að sýna sig“3J og tveimur árum síðar þegar þetta mikla baráttumál þjóðfrelsis- aflanna - frjáls verslun - er komið í höfn, skrifar Ingibjörg: „Lítið Joykir mönnum nú koma til fríhöndlunarinnar það sem af er.“M ÞJÓÐÓLFUR FINNUR SKYLDU SÍNA AÐ ÁREITA MARGA Glöggir lesendur hafa eflaust tekið eftir jwí að ekki hefur verið minnst á þá atburði sem Ertgan veginn var hún uppreisnar- kona. Hún leggur áherslu á aö menn eigi aö vera trúir sínum kóngi. „Ég þegi um allar frelsishreyfingarnar í Reykjavík, því ég veit að mágur þinn skrifar þér bær allar, svo þægilegar sem þæreru". hér gerðust árið 1851, er Þjóðfundurinn svokallaði sem svo miklar vonir voru bundnar við fór út um þúfur. Ástæðan er sú að Ingibjörg minnist ekki á hann einu orði í bréfum sínum. Það er merkilegt jwí margsinnis kemur fram að hún er í vinfengi við innstu koppa í búri svo sem þau Hólmfríði Þorvaldsdóttur og Jón Guðmundsson ritstjóra Þjóðólfs. Jón tekur fyrir ltana bréf til Kaupmannahafnar og hún sendi jieim hjónum kveðju þegar þau voru ytra, en Jón var þá að leita leiðréttinga sinna mála eftir að hann var sviptur sýslumannsembætti i kjölfar Þjóðfundarins." Ingibjörg skrifar t.d. um Jón í bréfi til Gríms Thomsen 25. febrúar 1856: „Það þykir mér eiga vel við, að þú eignir mér Jón Guðmundsson, joví hann vill hjálpa mér í öllu, sem í hans valdi stendur. Þjóðólf veit ég lítið um. Þó held ég hann sé nú meinlaus".* Það var annað hljóð í strokki Ingilijargar í garð Þjóðólfs 1851 er hún skrifaði Þóru bróðurdóttur sinni: „Hér eru enn flestir látnir í friði um stund, nema hvað Þjóðólfur finnur skyldu sína að áreita marga, ekki minnst land- stjórnina“.37 Þegar þetta bréf var ritað var Jón Guðmundsson í Kaupinhafn en áöurnefndur Sveinbjörn Hallgrímsson sá um Þjóðólf. Þá minnist Ingibjörg oft á Kristján Kristjánsson sýslumann, síðar amtmann í bréfunum, en hann var um skeið ritari Gríms amtmanns á Möðruvöllum. Kristján var rekinn úr starfi sýslumanns um skeið vegna framgöngu á Þjóðfundinum. Honum var fyrirgefið af stjórnvöldum, en ekki Jóni Guðmundssyni, hver sem ástæðan var fyrir [wí. En - Ingibjörg minnist ekkert á Þjóðfundarmálin I hinum prentuöu bréfum, livaö sem síðar kann að koma í ljós. Þaö er forvitnilegt að skoða að lokum hvaða viðhorf kemur fram hjá Ingibjörgu til yfiivaldanna. Engan veginn var hún uppreisnarkona. Hún leggur áherslu á að menn eigi að vera trúir sínum kóngi. Eftir 73
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Ný saga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.