Ný saga - 01.01.1991, Síða 78

Ný saga - 01.01.1991, Síða 78
Nú eru aö vaxa úr grasi kynslóöir sem sjónvarpiö hefur „aliö up p“ og því finnst sumum aö besta leiöin til að ná til þessa fólks sé meö myndum. AÐ SEGJA SÖGU í SJÓNVARPI Hringborðsumræður um sagnfræði og sjónræna miðla síðasta árgangiNýrmrsögu var viðtal við danska sagnfrceðinginn Karsten Fledelius þar sem hann sakar sagnfrœðinga um að vanrœkja hina sjónramu miðla. Orðrétt sagði hann: „Sagnfrœðingar bera auðvitað vissa ábyrgð á ríkjandi viðhorfum til fortíðarinnar og takistþeim að vekjafólk til umhugsunar um miðlunsögu ísjónvarþiogstuðla að gagnrýnni hugsun þá vœru þeiraðgegna því hlutverki sem þeim ber í þeim efnum. Láti sagnfrœðingar aftur ái móti eins og ekkert hafi í skorist og sniðgangisjónvarpið dœma þeir sjálfa sig úr leik. Þá axla þeir ekkiþá ábyrgð semþeir bera á því að fortíðin sé meðhöndluð af heiðarleika og skynsemi. “ Viðtalið endará ákalli hans til sagnfrœðinga um aðsofna ekki á verðinum heldur takast á við hina nýju miðla, þeir verði „ að þekkja sinn vitjunartíma vilji þeir hafa áhrif á það hvemig upþvaxandi kynslóðir skynja söguna. “ Þótt hérsé tekið djúþt í árinni þá er áhrifamáttur sjónvarps og kvikmynda staðreynd sem ekki verður horfl fram hjá. Börn og unglingar lifa og hrærast í myndum og hið ritaða mál á í vök að verjast. Hvemig eiga sagnfræðingar að bregðast viðþessum aðstæðum? Eiga þeir að snúa sér afkrafti að gerð sögulegra sjón- varpsþátta? Hafa þeir verið alltof ragir við að starfa með kvikmyndagerðarfólki? Hvaða vandamál mæta sagn- fræðingum við gerð sjónvarpsefnis? Hafa lifandi myndir verið vanrœktar sem heimildir? Ólal slíkar spurningar hljóta að vakna í huga allra þeirra sem áhuga hafa á sögu og miðlun sagnfræðilegs efnis. Viðfangs- efnið er brýnt og til að rœða það nánar fékk Ný saga til liðs við sig Erlend Sveinsson kvikmyndagerðarmann og sagnfræðingana Eggert Þór Bernharðsson og Helga Þorláksson en þeir hafa allir unnið að gerð mynda um söguleg efni. Fyrst voru þeir inntir eftir áliti sínu á orðum Fledeliusar sem tilfærð eru hér að ofan. Helgi: Er hættan nokkuð meiri en verið hefur? hað er í sjálfu sér ekkert nýtt í sambandi við myndir. Sagnfræðingarhafa lengi haft af því áhyggjur að þeir rannsaka og vinna frumvinnuna. Svo koma aörir, ganga í þeirra verk og fleyta rjómann ofan af; notfæra sér rannsóknirnar og skrifa aðgengilegan texta fyrir almenning. Ummæíi Fledeliusar minna á umræðu sem var áberandi fyrir tíu árum eða svo, t.d. í Sögnum. Pá var mikið rætt um það hvernig sagnfræðingar ættu að koma sér á markað. Ekkert var að vísu rætt um hina sjónrænu miðla en spurningin er hvort þetta sé ekki að einhverju leyti sambærilegt. Eggert: Vandamálin hljóta að vera ný. Á milli þess að skrifa texta og^ búa til mynd er langur vegur. í síðarnefnda tilvikinu eru komin til skjalanna tæki, tæknifólk og fleiri atriði sem við þurfum að kunna einhver skil á. Menn eru lítið farnir að hugsa um þetta af alvöru. Hins vegar er engin tilviljun að svona umræða skýtur upp kollinum einmitt núna. í Háskóla íslands hafa menn haft sívaxandi áhuga á miðlun sagnfræðilegs efnis og núna eru margir farnir að gera sér betur grein fyrir því en áður hvað hinir sjónrænu miðlar eru mikilvægir og hvað áhrif þeirra eru mikil. Nú eru að vaxa úr grasi kynslóðir sém sjónvarpið hefur „alið upp“ og því finnst sumum að besta leiðin til að ná til þessa fólks sé með myndum. Þetta er það sem Fledelius vildi vekja okkur til umhugsunar um. Helgi: En getur þáttur sagfræðinga orðið meiri en að þeir komi sjálfum sér á framfæri, Erlertdur Sveinsson Helgi Þorláksson Eggert Þór Bernharðsson 76
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Ný saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.