Morgunblaðið - 09.06.2011, Qupperneq 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2011
Nauðungarsala
Uppboð
www.naudungarsolur.is
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Austurströnd 8, 206-6905, 50% ehl., Seltjarnarnesi, þingl. eig.
Guðlaugur Pétur Pétursson, gerðarbeiðandi Söfnunarsjóður
lífeyrisréttinda, þriðjudaginn 14. júní 2011 kl. 10:30.
Leiðhamrar 52, 203-8482, Reykjavík, þingl. eig. Hulda Þorbjarnardóttir,
gerðarbeiðandi B.M. Vallá hf., þriðjudaginn 14. júní 2011 kl. 13:30.
Sóleyjarimi 5, 227-1655, Reykjavík, þingl. eig. Þuríður Svanbjörns-
dóttir, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., þriðjudaginn 14. júní 2011
kl. 14:00.
Öldugrandi 15, 202-3952, Reykjavík, þingl. eig. Kristján Jóhann
Steinsson, gerðarbeiðandi Vörður tryggingar hf., þriðjudaginn 14. júní
2011 kl. 11:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
8. júní 2011.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Stillholti
16-18, Akranesi, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Jaðarsbraut 35, mhl. 01-0201, fnr. 210-0965, Akranesi, þingl. eig.
Guðni Jónsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn
15. júní 2011 kl. 10:00.
Kirkjubraut 17, skrifstofa, mhl. 01-0101,fnr. 210-1827, Akranesi, þingl.
eig. Arnþór Gylfi Árnason og Propagator ehf., gerðarbeiðandi Sjóvá-
Almennar tryggingar hf., miðvikudaginn 15. júní 2011 kl. 10:00.
Tindaflöt 4, mhl. 01-0402, fastanr. 227-5010, Akranesi, þingl. eig.
Leigufélagið Skjól ehf., gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðviku-
daginn 15. júní 2011 kl. 10:00.
Tindaflöt 6, mhl. 02-0301, 03B-11, fastanr. 227-5025, Akranesi, þingl.
eig. Leigufélagið Skjól ehf., gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður,
miðvikudaginn 15. júní 2011 kl. 10:00.
Tindaflöt 6, mhl. 02-0502, 03B-07, fnr. 227-9901, Akranesi, þingl. eig.
Leigufélagið Skjól ehf., gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðviku-
daginn 15. júní 2011 kl. 10:00.
Æðaroddi 8, hesthús, mhl. 01-0101, fnr. 210-0010, Akranesi, þingl. eig.
Elísabet Halldóra Pálsdóttir, gerðarbeiðandi Arion banki hf., miðviku-
daginn 15. júní 2011 kl. 10:00.
Ægisbraut 15, mhl. 01-0101, fnr. 210-0154, Akranesi, þingl. eig. Gunnar
Þór Jóhannesson, Björn Gústaf Hilmarsson og Haukur Sigurbjörns-
son ehf., gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Akranesi, miðvikudaginn
15. júní 2011 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Akranesi,
9. júní 2011.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Reynivellir 6, íb. 01-0201, bílsk. 01-0102 (214-9986) Akureyri, þingl. eig.
Hanna Hlíf Bjarnadóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og
Sýslumaðurinn á Akureyri, miðvikudaginn 15. júní 2011 kl. 10:00.
Strandgata 49, geymsla 02-0103 (225-4639) Akureyri, þingl. eig.
Björgvin Ólafsson, gerðarbeiðandi BYR sparisjóður, útibú 1145,
miðvikudaginn 15. júní 2011 kl. 10:20.
Strandgata 49, geymsla 02-0104 (225-4640) Akureyri, þingl. eig.
Björgvin Ólafsson, gerðarbeiðandi BYR sparisjóður, útibú 1145,
miðvikudaginn 15. júní 2011 kl. 10:20.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
8. júní 2011.
Halla Einarsdóttir, ftr.
Raðauglýsingar
Í dag verður
hann Pétur jarðsettur en hann
lést 6. janúar sl. og útför hans
fór fram 19. janúar. Hann kaus
að verða brenndur og hefur
aska hans verði geymd í
krukku uppi á hillu til dagsins í
dag, en hann hefði orðið níræð-
ur í dag. Hans verður því
minnst af fjölskyldunni í dag
jafnhliða því að hann verður
✝ Pétur Jónssonfæddist í
Reykjavík 9. júní
1921. Hann lést á
Landspítalanum
við Hringbraut 6.
janúar 2011.
Útför Péturs fór
fram frá Fossvogs-
kirkju 19. janúar
2011.
jarðsettur hjá
henni Dúnu sinni
og það meira að
segja ofan á henni
eins og hann sagði
glottandi.
Pétri kynntist
ég fyrst árið 1995
þegar ég tengdist
fjölskyldu hans og
fór að vinna í að
fjölga afkomendum
hans. Mér tókst
það ágætlega og áður en yfir
lauk hafði ég fjölgað þeim um
þrjá. Dætur mínar nutu þess að
umgangast langafa sinn. Hann
var skemmtilegur karl og hafði
gaman af að fá afkomendur
sína og fylgifiska í heimsókn.
Það var stutt í gleðina og
stríðnina hjá honum Pétri og
oft á tíðum tók hann undir þeg-
ar stríða þurfti Möggu, dóttur
hans, tengdamömmu minni.
Hann átti sex misstjórnsamar
dætur og oftar en ekki þóttist
hann vera „fórnarlamb“ þeirra.
Þegar ég kynntist Pétri fyrst
var Dúna enn lifandi en sjúk-
lingur. Hann var því sá sem sá
um allt á heimilinu. Hann eld-
aði og bakaði. Eitt af því sem
ég hef notið og nýt vonandi um
ókomin ár er uppskrift að
brauði sem bakað er um jól og
haft með hangikjötinu. Hann
hélt þó fyrir sig uppskriftinni
að brúnu sósunni með sunnu-
dagslærinu og fór hún líklega
með honum í gröfina. Þar fór
góð sósa forgörðum.
Eitt af því sem ég tók að
mér síðustu árin var að minna
hann á að endurnýja ökurétt-
indin sín. Hann var ágætlega
duglegur að fara á milli staða
innan borgar þó svo að umferð-
armannvirkin væru nú orðin
heldur flóknari en áður. Ekki
man ég til þess að kvartað hafi
verið yfir aksturslagi hans þó
svo að hann hafi verið gamall
maður með hatt í umferðinni og
ekki var hann að villast eða
týnast. Þegar hann lést var
hann enn með ökuréttindin í
gildi en hann ákvað síðasta
haust að hætta að aka sjálfur.
Einhvern veginn finnst mér
eins og hann hafi séð fyrir sér
að endalokin væru að nálgast.
Það var eitt og annað sem gaf
það til kynna að hann sæi fyrir
sér að hverju stefndi. Enda var
hann svo sem búinn að bíða eft-
ir því að hitta hana Dúnu sína
aftur.
Ég er þakklátur fyrir að hafa
kynnst Pétri og kveð hann með
söknuði. Ég er þakklátur fyrir
það að dætur mínar fengu að
kynnast langafa sínum og eiga
þær góðar minningar um hann.
Þær kveðja hann líka með
söknuði. Hvíldu í friði.
Guðmundur Fylkisson.
Pétur Jónsson
✝ SigurbjörgOttesen fædd-
ist á Ytra-Hólmi í
Innri-Akranes-
hreppi 25. maí
1924. Hún lést á
hjúkrunarheim-
ilinu Sóltúni 29.
apríl 2011.
Sigurbjörg var
dóttir Péturs Otte-
sen, bónda og al-
þingismanns, f.
2.8. 1888, d. 16.12. 1968 og
Petrínu Helgu Jónsdóttur hús-
freyju frá Káraneskoti í Kjós, f.
5.12. 1889, d. 2.9. 1972. Bróðir
Sigurbjargar var Jón Ottesen,
f. 4.11. 1927, d. 12.11. 1988.
Uppeldisbróðir Sigurbjargar
var Oddgeir Ottesen, f. 18.12.
1922, d. 8.6. 2010, einnig ólst
upp hjá foreldrum Sig-
urbjargar Anton Ottesen, f.
9.12. 1943, báðir synir Mortens
Ottesen, föðurbróður Sig-
urbjargar.
Árið 1946 giftist Sigurbjörg
Eggert, f. 1970, b) Sigurrós, f.
1972 og c) Heiða, f. 1974. 3)
Erla, f. 1947. Sonur hennar er
a) Sigurbjörn Orri, f. 1978, eig-
inkona Brynhildur Steindórs-
dóttir. Börn þeirra eru Arna
Sól og Brynja Sól.
Sigurbjörg sleit barns-
skónum á Ytra-Hólmi. Hún bjó í
Reykjavík með eiginmanni sín-
um. Eftir skilnað hennar og
Hauks flutti hún á ný á Ytra-
Hólm. Síðar flutti hún aftur til
Reykjavíkur og bjó lengst af á
Laugarnesvegi 110. Sigurbjörg
fór ung að vinna fyrir sér og
reyndist löngum eftirsótt til
vinnu fyrir dugnaðarsakir og
ósérhlífni. Hún vann ýmis störf,
m.a. við fiskvinnslu hjá Haraldi
Böðvarssyni á Akranesi og sem
ráðskona í mötuneyti Skóga-
skóla. Hún vann einnig við
þjónustu og umönnun, hún af-
greiddi í verslun en lengst af
vann hún við ræstingar og í bý-
tibúri á Hrafnistu og síðast á
Landspítalanum, þar sem hún
lauk starfsævi sinni.
Útför Sigurbjargar fór fram
í kyrrþey frá Fossvogskapellu
þann 6. maí sl.
Hauki Magnússyni
frá Reykjavík, f.
8.1. 1922, d. 12.1.
1995. Foreldrar
hans voru Sveina
Oddsdóttir hús-
freyja og Júlíus
Magnús Guð-
mundsson, bak-
arameistari frá
Reykjavík. Sig-
urbjörg og Haukur
hófu búskap í
Reykjavík, þau slitu samvistir.
Börn Sigurbjargar og Hauks
eru: 1) Pétur, f. 1945, eiginkona
Halldóra Árnadóttur, f. 1941,
þau skildu. Þeirra sonur er a)
Árni S. Pétursson, f. 1973, eig-
inkona Silja Huld Árnadóttir.
Börn þeirra eru Elín Kolfinna
og Birta. 2) Örn, f. 1947, eig-
inkona Kara Jóhannesdóttir,
stjúpbörn hans eru a) Signý, f.
1972, b) Ása Kristín, f. 1975, c)
Steingrímur, f. 1977 og d)
Tjörvi, f. 1980. Stjúpbörn Arn-
ar úr fyrra sambandi eru a)
Þann 29. apríl sl. kvaddi hún
Bía amma okkur. Ég var svo
ánægður að hafa náð að hitta þig
morguninn áður en þú skildir við
okkur, þannig gafst mér tæki-
færi til að kveðja þig.
Fyrstu minningar mínar um
ömmu má rekja til þess tíma er
ég bjó í New York með for-
eldrum mínum. Þá var ég 6 ára
og hún heimsótti okkur þangað.
Hún hafði alla tíð mikinn áhuga
á kóngafólki og forsetum Banda-
ríkjanna enda tók hún þá af
skarið í þeirri heimsókn og ferð-
aðist á eigin vegum með rútu frá
New York til Washington. Í
Washington fékk hún ósk sína
uppfyllta og kynnti sér þar
Hvíta húsið. Mér er einnig
minnisstætt úr bernsku minni
hversu mikill dugnaðarforkur
hún var. Ég gleymi því heldur
ekki þegar hún bauð mér á sýn-
ingu hjá Ladda á Hótel Sögu
þegar ég var 11-12 ára. Hún
hafði fengið boðsmiðann frá
Morgunblaðinu þar sem hún
starfaði til margra ára við að
bera út blaðið. En þannig hófst
dagurinn hjá henni eldsnemma,
við að bera út blöðin, en það var
bara rétt byrjunin. Því næst var
haldið niður í bæ og aukablöðin
sem hún átti seld til fastra við-
skiptavina og því næst lá leiðin á
Hringbrautina þar sem hún
starfaði á Landspítalanum við
ræstingar og í býtibúri. Þeirri
vinnu lauk kl. 16 en þá sá hún
enga ástæðu til að láta staðar
numið því eftir það fór hún ým-
ist í aukavinnu á Landspítalan-
um eða tók að sér heimilisþrif.
Það er því óhætt að segja að það
hafi verið nóg að gera hjá henni
frá morgni til kvölds.
Þegar ég var 19 ára og hafði
nýlokið framhaldsskóla fékk ég
enn betra tækifæri til að kynn-
ast ömmu. Þá lauk ég stúdents-
prófi í desember og hafði ákveð-
ið að fara í Háskólann haustið
þar á eftir. Ekki voru mörg störf
í boði á þeim tíma en þá fær
amma þá hugmynd að sækja um
starf fyrir mig á Landspítalan-
um við ræstingar á skurðdeild
spítalans. Hún útvegaði mér því
vinnu en þar starfaði ég við
vaktavinnu á sumrin og með
skóla. Ég hef ávallt verið henni
mjög þakklátur fyrir það, því á
þeim tíma gafst mér tækifæri til
að vinna á sama vinnustað og
hún til nokkurra ára. Þar kynnt-
ist ég henni mjög vel. Hún var
mjög röggsöm og mikill dugnað-
arforkur sem allir sóttust eftir
að hafa í vinnu. Mér er sér-
staklega minnisstætt að ég nýtti
oft vinnupásur mínar til að
heimsækja hana í býtibúrið þar
sem hún starfaði og þar spjöll-
uðum við mikið saman og tengd-
umst vel.
Amma fylgdist alltaf gríðar-
lega vel með því sem var að ger-
ast í þjóðfélaginu og hafði sterk-
ar stjórnmálaskoðanir. Það var
því alltaf gaman að spjalla við
ömmu enda lá hún sjaldan á
skoðunum sínum.
Amma var ávallt góð við mig
og henni þótti mjög vænt um
barnabarnabörnin sín. Mér þyk-
ir miður að eftir að ég flutti er-
lendis þá missti ég aðeins niður
sambandið við ömmu en engu að
síður þá ræddi ég og Silja, kon-
an mín, reglulega við hana. Silju
þótti alltaf gaman að spjalla við
ömmu og meðan við bjuggum
erlendis þá áttu þær oft löng
samtöl í gegnum síma.
Það er með miklum söknuði
sem við kveðjum kraftmikla
konu. Ég bið guð um að styrkja
pabba, Erlu, Örn og Orra og að-
standendur í þeirra sorg. Guð
verði með ykkur.
Árni Sigurður Pétursson.
Elsku amma mín, ég á þér svo
margt að þakka. Þegar ég var
sex ára gamall flutti ég ásamt
mömmu minni á þitt heimili og
bjó þar í 11 ár. Þú mótaðir mig
og gafst mér mikilvægt vega-
nesti inn í framtíðina. Margar
eru minningarnar um þig sem
ég kem til með að geyma um
aldur og ævi.
Þú varst eitt mesta hörkutól
sem ég hef á ævi minni kynnst.
Þú varst vöknuð alla daga fyrir
klukkan fimm á morgnana til
þess að bera út blöð. Þegar því
var lokið fórstu til vinnu á Land-
spítalanum þar sem þú varst að
fram á kvöld. Þessari vinnu-
hörku hélst þú allt þar til lík-
aminn gat ekki meir. Þú áttir
alltaf erfitt með að þiggja, þér
var afar umhugað um að allir
skyldu fá jafnt og sýndi það sig í
lifnaðarháttum þínum allt þitt
líf.
Við gátum rætt um allt milli
himins og jarðar, ávallt varstu
góður hlustandi og ég gat alltaf
treyst á þig enda varstu einn af
mínum bestu vinum. Núna ertu
komin á betri stað og allir verkir
horfnir. Ég kveð þig, elsku
amma mín, og um leið þakka ég
þér fyrir allan þann kærleik og
hlýju sem þú veittir mér og
minni fjölskyldu.
Að lokum vil ég kveðja þig
með bæn sem þú fórst oft með
fyrir mig þegar ég var lítill.
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
Hallgrímur Pétursson
Þitt barnabarn,
Sigurbjörn Orri Úlfarsson.
Sigurbjörg Ottesen
✝ Ingibjörg Jó-hanna Þórð-
ardóttir Hansen
fæddist á Kjart-
ansstöðum á Lang-
holti í Skagafirði
þann 3. sept. 1927.
Hún lést á Sjúkra-
húsi Skagfirðinga
á Sauðárkróki
þann 22. maí 2011.
Foreldrar hennar
voru Þórleif Sig-
ríður Benediktsdóttir hús-
freyja f. 17. ágúst 1899, d. 27.
maí 1931 og Þórður Jóhanns-
son bóndi á Kjartansstöðum f.
3. sept. 1892, d. 21. sept. 1950.
Ingibjörg var einbirni.
Hún giftist Jóhannesi Frið-
rik Hansen vöruflutningabíl-
ur Eddu Lúðvíksdóttur f. 1.
júní 1955. Börn þeirra eru Jó-
hannes Friðrik, Ingibjörg
Huld og Ragnhildur. Barna-
börn Þórðar og Eddu eru fjög-
ur. 3) Elín Jósefína f. 5. maí
1952, gift Ingimundi Tóm-
assyni f. 16. mars 1949. Börn
Elínar og Ingimundar eru
Ólafur Þór og Katrín Sif, fyrir
átti Elín soninn Inga Frey
Ágústsson. 4) Árni f. 22. jan.
1957. Börn Árna eru Jóhann
Þór, Kristinn Björgvin og
Alma Ösp. Barnabörn Árna
eru tvö. 5) Sigríður Ragna f.
22. júlí 1960, gift Ingimundi
Ingvarssyni f. 4. des. 1960.
Börn þeirra eru Ingvar Björn
og Jóhannes Friðrik, fyrir átti
Ragna dótturina Margréti
Björgu Guðnadóttur. Barna-
börn Rögnu og Ingimundar
eru tvö.
Útför Ingibjargar fór fram í
kyrrþey frá Sauðárkróks-
kirkju 2. júní 2011.
stjóra þann 7. júní
1947. Jóhannes
fæddist 23. des.
1925. Foreldrar
hans voru Friðrik
Hansen kennari á
Sauðárkróki, f. 17.
jan. 1891, d. 27.
mars 1952 og Jós-
efína Erlends-
dóttir húsfreyja f.
2. nóv. 1894, d. 19.
nóv. 1937. Börn
Ingibjargar og Jóhannesar eru
1) Kolbrún f. 28. nóv. 1947,
gift Guðna Pálma Oddssyni f.
3. ágúst 1947. Börn þeirra eru
Ingibjörg Hrönn, Guðni Rúnar
og Atli Már. Barnabörn Kol-
brúnar og Pálma eru sex. 2)
Þórður f. 8. júní 1949, kvænt-
Ef einhver er hjá Guði, þá er
það hún Ingbjörg sem á þar vís-
an stað, en hún lést sunnudag-
inn 22. maí síðastliðinn. Ingi-
björg var einstaklega góð
manneskja og mátti ekkert
aumt sjá, hvorki hjá mönnum né
dýrum, þó með einni undantekn-
ingu, flugur voru ekki velkomn-
ar inn á hennar heimili og urðu
ekki langlífar ef þær voguðu sér
þangað inn.
Mín fyrstu kynni af Ingi-
björgu voru þegar mér varð það
á að bakka á bíl heimasætunnar,
sem stóð fyrir utan húsið. Ég
barði að dyrum, heldur lúpuleg-
ur til að tilkynna óhappið. Hún
tók á móti mér og bauð mér upp
á kaffi og nýbakaðar kleinur, áð-
ur en hún kallaði á heimasætuna
sem þótti full mikið látið með
dónann sem var búinn að
skemma fyrir henni nýja bílinn.
En þetta átti allt eftir að lagast
og höfum við verið gift í rúm-
lega 20 ár. Eftir þetta var ég
tíður gestur á Ægisstígnum og
iðulega boðið upp á kræsingar
og notalegt spjall um daginn og
veginn. Mér varð strax ljóst að
Ingibjörg var einstaklega
hjartahlý manneskja og sást það
best, ef einhver var minnimáttar
eða átti á einhvern hátt bágt.
Einnig var hún mjög barngóð og
hafði gott lag á börnum, að aldr-
ei þurfti hún að skamma þau
eða hækka róminn til að hafa
þau góð.
Stundum þegar illa gekk í
barnauppeldinu var leitað til
Ingibjargar og dugði oft eitt
símtal við barnið til að gera
kraftaverk. Ingibjörg var heima-
vinnandi lengst af og ofdekraði
Jóa sinn, en málin snérust við
undir það síðasta en þá stóð Jói
sig hetjulega í eldamennsku sem
og í öðrum verkum er til féllu á
heimilinu.
Nú þegar ég get ekki lengur
leitað til Ingibjargar með göt-
ótta sokka, rifin föt, barnapöss-
un eða eitthvað annað tilfallandi,
get ég alltaf yljað mér við ótal
góðar minningar sem ég hef
eignast í kynnum mínum við
hana í gegnum tíðina.
Ingibjörg, þín er og verður
sárt saknað um ókomin ár.
Þinn,
tengdasonur,
Ingimundur Ingvarsson.
Ingibjörg Jóhanna
Þórðardóttir Hansen