Morgunblaðið - 09.06.2011, Blaðsíða 30
30 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
OG Í
KVÖLD MUNUM
VIÐ SÝNA...
„KÓNGULÆR TAKA
YFIR JÖRÐINA”
STRÁKAR, EIGIÐ ÞIÐ
ÞESSA EKKI Á DVD?
ÉG FANN
HANA!
ÉG FANN BÓKA-
SAFNSBÓKINA!
ÉG OPNAÐI ÍSSKÁPINN
OG ÞAR VAR HÚN!
ÞAÐ
ER
FRÁ-
BÆRT!
ÉG FANN HANA! HÚRRA,
HÚRRA, HÚRRA! ÉG TRÚI
ÞESSU EKKI! ÉG FANN
BÓKINA! ÞETTA ER
FRÁBÆRT!
FÓLK ER SJALDAN JAFN
FEGIÐ EINS OG ÞEGAR ÞAÐ
SLEPPUR VIÐ REFSINGU
VIÐ ÞURFTUM ÞVÍ
MIÐUR AÐ LOKA
HLAÐBORÐINU KLUKKUTÍMA
FYRR EN VENJULEGA
HA?
HVAÐ
KEMUR TIL?
HRÓLFUR
KOM Í
HÁDEGINU
EF ÞÚ HEFUR
ÁHYGGJUR AF ÚTGJÖLDUM
OKKAR ÞÁ ÆTTIRÐU KANNSKI
AÐ EYÐA MINNI PENINGUM
Í DEKUR
ÞAÐ
VÆRI
EKKI
AUÐVELT
NUDDARINN SEM ÉG
FER TIL ER SÁ EINI SEM
KANN ALMENNILEGA AÐ LOSA
UM VÖÐVABÓLGUNA MÍNA
HANN
VIRÐIST GERA
SÉR GREIN
FYRIR ÞVÍ
KANNSKI ÆTTI
ÉG AÐ FARA
SJALDNAR TIL
HANS?
ÉG
HJÁLPAÐI ÞÉR
AÐ RÆNA
BANKANN
ÉG
VIL FÁ
DÓTTUR
MÍNA AFTUR
VERTU
RÓLEGUR, HÚN
ER ÖRUGG
HVENÆR
MÁ ÉG
FARA
HEIM?
ÉG SLEPPI HENNI UM LEIÐ OG ÞÚ
HJÁLPAR OKKUR MEÐ RÁN SEM TEKST
VEGNA
ÞESS... AÐ EF ÉG
FÆRI MEÐ ÞIG
ÞANGAÐ ÞÁ VÆRI
ÞAÐ VARLA
EINVERUBYRGI
Aukum byggða-
kvótann
úr 8% í 30%
Breytingar eru á fisk-
veiðistjórnun. Lögð er
af sala eða leiga fisk-
veiðiheimilda. Í stað-
inn fá menn fiskveiði-
heimildirnar eða
veiðireynslu og 8%
byggðakvóta og
strandveiðikvóta, sam-
tals 15%. Mér finnst úr
því sem komið er, að
horfið er frá innköllun
á veiðiheimildum
(kvóta) 5% á ári næstu
20 ár, að það ætti að
stærstum hluta að miða við veiði-
reynslu en byggðakvótinn yrði auk-
inn úr 8% í 30%.
Byggðakvótinn sé á kostnað heild-
arfiskveiðiheimilda. Svo línutvöföld-
un báta og skipa frá 12 brúttótonnum
til 100 brúttótonna vegna gæða af
veiðunum. Til greina kæmi að það
yrði nokkurs konar uppbót ef heildar-
veiðin gengi illa.
Þá minni bátar. Strandveiðar
minni báta eru góðar og þeim ber að
viðhalda og auka ef eitthvað er. Það
þarf að meta og skoða hvað hentar
veiðunum vegna veðurs fyrir minni
báta. Mér finnst aukning á byggða-
kvóta nauðsyn vegna þess að það er
sanngjarnt að nýir menn komist inn í
greinina. Þá á ég að sjálfsögðu við að
það séu menn sem starfa á sjó. Minni
bátar þurfa að fá sinn skerf af heild-
arkökunni (fiskveiðiheimildum). Taka
mætti upp kerfi fyrir minni báta sem
tæki mið af stærð bátanna, veðráttu
og svo hvaða fisk menn
væru að veiða, t.d. lúðu
á Breiðafirði eða stærri
báta að veiðum í land-
grunnskantinum þá á
lúðuveiðum. Hugs-
anlega ættu minni
bátar sem stunduðu
handfæraveiðar að fá
að stunda þær sem
frjálsast í júní, júlí fram
í miðjan eða endaðan
ágúst ef veður leyfa í
ágúst. Stór þorskur
gengur t.d. upp á Sel-
vogsbanka í byrjun
ágúst og þurfa menn þá
helst tveggja eða
þriggja daga blíðu-
veður ef vel á að vera svo mönnum sé
óhætt við færaveiðarnar. Þá þurfa
menn gott ferðaveður fram og til
baka af bankanum.
Í ágústmánuði er heppilegast að
stærð báta sem róa á Selvogsbanka
sé ekki undir 12 brúttótonnum. En
veður geta oft verið válynd í ágúst-
mánuði. Þá er töluvert af lúðu á bank-
anum, m.a. á þessum tíma líka. Einn-
ig er töluvert af færafiski á sjö mílna
horninu svokallaða sem er sjö sjómíl-
ur suðvestur af Eldey. Þar er töluvert
rek vegna straums og þarf oft að
kippa eða sigla upp á sama punkt. Í
Reynisdýpi, syðra og vestara hrauni,
Látraröst, Breiðafjarðarfláka er mik-
ill færafiskur á sumrin.
Kristján Snæfells
Kjartansson skipstjóri.
Ást er…
… að horfa á sólina
setjast, hægt og rólega.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Árskógar 4 | Handavinna/smíði/
útskurður kl. 9. Botsía kl. 9.30. Helgi-
stund kl. 10.30. Myndlist kl. 13.30. Opinn
púttvöllur.
Bólstaðarhlíð 43 | Handavinna, kaffi/
dagblöð, ferðalag verður kl. 13. Bingó á
morgun kl. 13.
Dalbraut 18-20 | Valborg Ólafsdóttir
söngkona syngur við undirleik Orra Guð-
mundssonar kl. 15. Samverustund með
Erlu Björk Jónsdóttur guðfræðingi eftir
kaffi.
Dalbraut 27 | Opin handavinnustofa kl.
8-16. Stólajóga kl. 10.15. Boccia kl. 10.45.
Eftirlaunadeild símamanna | Sum-
arferðin verður 13.-17. ágúst. Upplýs-
ingar gefur Ragnhildur í síma 551-1137
eða 898-4437.
Félagsheimilið Boðinn | Handavinna kl.
13. Hugleiðsla kl. 13.30.
Félagsheimilið Gjábakki | Rammavefn-
aður kl. 9.05, handavinnustofan opin og
hádegisverður.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Qi Gong kl. 8.10, síðasti tími fyrir frí,
handavinnuhorn kl. 13, spila- og vinnu-
stofur opnar.
Félagsstarf Gerðubergi | Opið kl. 9-
16.30 m.a. perlusaumur eftir hádegi.
Miðvikud. 15. júní ferðalag um Árnes-
sýslu „ævintýralandið“, skipulag og leið-
sögn Jóhann Davíðsson, lagt af stað kl.
10, áætluð heimkoma kl. 18, skráning á
staðnum og s. 575-7720.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9,
Boccia kl. 10.30, félagsvist kl. 13.30.
Hraunsel | Leikfimi í Bjarkarhúsi kl.
11.20, félagsvist kl. 13.30.
Hvassaleiti 56-58 | Félagsmiðstöðin er
opin kl. 8-16. Boccia kl. 10. Félagsvist kl.
13.30, kaffisala í hléi. Fótaaðgerðir, hár-
snyrting.
Hæðargarður 31 | Við Hringborðið kl.
8.50, listasmiðja kl. 9. Matur og kaffi.
Hárgreiðslustofa og fótaaðgerðir. Uppl.í
síma 411-2790.
Norðurbrún 1 | Sölu- og handverkssýn-
ing 9. og 10. júní kl. 14-18. Veitingar og
harmonikkuleikur kl. 15.30.
Skemmtifélag eldriborgara | Óvissu-
ferð verður 15. júní, kaffi. Farið frá
Hraunbæ kl. 13, Mjódd kl. 13.05, Afla-
granda kl. 13.20, Vesturgötu kl. 13.25,
Lækjartorgi 13,30. Uppl. í síma 775-
1340.
Vesturgata 7 | Handavinna, glerskurður
(Tiffany’s), ganga kl. 9.15. Kertaskreyt-
ingar kl. 13. Kóræfing kl. 13. Leikfimi kl.
13.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Fé-
lagsmiðstöðin opin. Hárgreiðslu- og fóta-
aðgerðarstofur opnar.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir, Fíaá Sandi í Aðaldal, var að koma
af dansleik á Akureyri klukkan
þrjú aðfaranótt sunnudags og lýsir
því sem fyrir augu bar:
„Þá gat að líta þá rauðustu sól-
aruppkomu sem ég hef séð, risa-
vaxna skál á hvolfi að þokast upp úr
sortanum hátt yfir heiðinni. Ég
hafði því miður ekki myndavél, en
tók mynd þegar ég kom heim en þá
var hún farin að lýsast og minnka.“
Og auðvitað fylgir vísa:
Auð er jörð og einnig Víkurskarðið
öskuskaflar hátt á fjallatindum.
Eldrauð sól sést yfir rofabarðið
öskusól er glæsileg á myndum.
Sigrún Haraldsdóttir gefur ekki
mikið fyrir sumarið:
Illa þori út á hlað,
að mér hroll þar setur,
ég trúi því og treysti að
tíðin skáni í vetur.
Ágúst Marinósson tekur í sama
streng:
Þjóðin hnípin þráast við
þunglynd vegna skulda
Ekki batnar ástandið
allir skjálfa úr kulda.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af „sumri“ og öskusól
Öskusól Hólmfríður Bjartmars-
dóttir